Spegillinn - 01.06.1968, Page 16
16
SPEGILLINN
TAKTEIMR
Tékknesk smásaga:
Fyrir skömmu voru þeir Ulbricht
og Maó að talast við, og tal þeirra
snerist auðvitað um vandamál
landa þeirra, Ulbricht með sínar 17
miljónir Þjóðverja á bak við sig
og Maó með sínar 800 miljónir Kín-
verja. Kom þá að því að Ulbricht
spurði:
„Hvernig er það Maó minn, eru
ekki einhverjir stjórnarandstæð-
ingar við lýði hjá þér ennþá?'1
Þá svarar Maó:
,,0, eitthvað slangur".
Ulbricht: .,Hvað gætirðu gizkað
á, að þeir væru margir?"
Maó: ,,Ætli það geti ekki verið
svona 15—20 miljónir".
Ulbrigcht: ,,Nú hva, ekki fleiri.
Þetta er svona álíka og hjá mér".
□
önnur ttékknesk smásaga:
Það gerðist í Tatrafjöllum. Ung
og glæsileg stúlka gekk um á
fjallsbrún og trallaði og söng af
ólgandi lífsgleði: 25 tralala, 25 tra-
lala, 25 tralala, söng og söng. Þá
kemur þar að einn af hernámslið-
um Rússa, ungur föngulegur mað-
ur og spyr: Hvað er það sem gleð-
ur þig svo mjög, unga mær?
Stúlkan: Ó, ef þú vissir hvað ég
hef séð?
Rússinn: Séð?
Stúlkan: Dásamlegt, Dásamlegt.
Rússinn: Nú, hvar?
Stúlkan: Hérna, .. . af fjallsbrún-
inni.
Og hún benti Rússanum að
koma með sér, og hann kom með
henni því hann langaði svo sann-
arlega að sjá dýrðina. En þegar
komið var fram á brúnina, hrinti
hún Rússanum fram af, sneri til
baka og söng: 26 tralala, 26 tralala,
26 tralala . . .