Spegillinn - 01.06.1968, Qupperneq 38
34
SPEGILLINN
Ég hef sjálfur valið mér vagn
í verzlun sem ég þekki,
þessi hérna gerir sitt gagn
þó glænýr sé hann ekki.
VAGNASALAN
SKÓLAVÖRÐUCTÍG 46
SÍMI 17175
Það var í einu af þessum fínu
partíum. Talið hefur snúizt um dá-
semdir konunnar og gáfumennirn-
ir láta Ijós sitt skína.
Alltaf finnst mér nú hárið vera
ein helzta prýði konunnar, segir
einn.
Fallegt hár er að vísu prýði, en
augun eru þó tvímælalaust það
sem mestu veldur um hve hrífandi
konan er, segir annar.
I mínum augum eru það varirnar
sem ráða úrslitum, segir sá þriðji.
Ég mundi nú segja, og tala þá í
hreinskilni, að það sé hinn hvelfdi
barmur konunnar sem hefur mestá
aðdráttaraflið, sagði sá fjórði.
Þá stóð húsfreyjan á fætur og
sagði: Ég vona að herrarnir afsaki
þó ég hverfi á brott meðan ein-
róma fundarsamþykkt verður gerð
um það hvað karlmönnum finnst
höfuðprýði hverrar konu.
ATVINNA:
(Nokkra misendismenn vantar í
vinnu hið allra fyrsta).
Viljum ráða vana innbrotsþjófá,
ávísana- og víxlafalsarg, skatt-
svikara og jafnvel brennuvargá.
Heill skari kemur til greina.
Starf þeirra sem öðlast um-
ræddar stöður verður meðal ann-
ars það, að leysa; fjármálaöng-
þveiti þjóðarinnar.
Meðmæli frá sakadómara eða
viðurkenndu tugthúsi æskileg.
Laun verða ákveðin af næsta
kjaradómi.
Fjárhagsráðuneytið.
HUGMYND
ergóð HUGMYND!