Spegillinn - 01.04.1983, Side 3
Leiðari
Þjóðin er í vanda. Léttúð og lausung ráða ríkjum. Alvarleg og menningarleg
umræða á undir högg að sækja. Mannvit og skapandi hugsun er á undan-
haldi.
Nokkrir framsæknir menn sáu í hendi sér að við svo búið mætti ekki
standa öllu lengur. Þeir tóku saman ráð sitt, stofnuðu félagsskap, Félag
áhugamanna um alvarleg málefni, og ákváðu að endurvekja hið forna
menningartímarit, Spegilinn.
Sem jafnan áður mun blaðið verða sálarspegill þessarar þjóðar og sam-
viska hennar. Þess vegna liggur líka í hlutarins eðli að það verði frjálst blað
og óháð og ofar flokkum og eindreginn málsvari ríkisstjórnarinnar hverju
sinni og málgagn hennar.
Það mátti ekki seinna vera að Spegillinn liti nýjan dag, því ríkisstjórn er
að kveðja. Ríkisstjórn, sem hvorki hefur átt málgagn upp á að hlaupa né við
að styðjast. Það verður því fyrsta verkefni þessa blaðs að festa niður helstu
afrek ríkisstjórnarinnar. Er það létt verk og ljúft að vinna, því þessi ríkis-
stjórn hefur verið starfsöm og leyst sín verk vel af hendi.
Helstu afrek ríkisstjórnarinnar eru þessi: Henni hefur tekist að halda
verðbólguni niðri, og hefur hún aldrei, á rúmlega þriggja ára ferli stjórnar-
innar, farið yfir 100 stig.
Hún hefur sýnt fram á, að enn njóta Islendingar lánstrausts erlendis og
hefur tekið stærri og fleiri lán þar en nokkur fyrri stjórn.
Henni hefur tekist að skerða kaupmátt launa með þeim hætti, að enginn
landsins þegn hefur orðið þess var, sem sést best á því að aldrei hefur
verslunin verið blómlegri né innflutningur meiri.
Hún hefur greitt öllum vöskum og vinnufúsum mönnum láglaunabætur,
sem eins konar premíu fyrir langan vinnudag og óeigingjörn störf.
Henni hefur tekist að halda rafmagnsverði til stóriðju í algjöru lágmarki,
þó sótt hafi verið að henni úr ýmsum áttum þess vegna, og þannig treyst
undirstöður atvinnulífsins.
Lengi enn mætti tíunda afrek þessarar starfsömu stjórnar. Hér verður þó
látið staðar numið og stjórninni færðar þakkir fyrir þjóðhagslega farsæl
störf og henni árnað velfarnaðar í kosningunum þann 23ja.
SpegiIIinn óskar þjóðinni þess helst og fremst að hún beri gæfu til að
eignast aðra stjórn þessari líka. Og mun hún þá rétta úr kútnum, andlega og
líkamlega.
43. árg. 1. tbl.
Útgefandi: Félag áhuga-
manna um alvarleg málefni.
Málgagn félagsins og ríkis-
stjórnar hverju sinni. Þiggur
gjarnan ríkisstyrk og tekur við
áheitum og framlögum á ávís-
anareikning sinn í Alþýðu-
bankanum. Fast verð á fyrsta
tbl. kr. 70.- Aðsetur: Grjóta-
gata 9, 101 Reykjavík.
Auglýsingasimi 14215. Sími
ritstjórnar 14215. Pósthólf
1169. Starfsmenn: Hjörleifur
Sveinbjörnsson. Úlfar Þor-
móðsson. Aðalteiknarar: Brian
Pilkington, Halldór Þor-
steinsson, Ólafur Pálsson.
Haus: Auglst. Gísli B.
Björnsson. Uppsetning:
Björn Br. Björnsson, Helga
Garðarsdóttir. Aðalijósmynd-
ari: Gunnar Elísson. Höf-
undar efnis: Bestu synir og
dætur þessarar þjóðar og
fleiri. Setning og umbrot:
Prent hf. Litgreining: Mynda-
mót. Filmu- og plötugerð -
prentun: Prentrún hf. Bók-
band: Arnarberg. Áskrifandi:
Höskuldur Skarphéðinsson,
skipherra.
Áskrifandinn
3