Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Síða 25

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Síða 25
STUDENTABLAÐ 17 Hið nýkjörna stiidentaráð Háskóla íslands: Vilhjálmur Þórhallsson, stud. jur., Björn Ólafsson, stud. polyt., ]óii Böðvarsson, stud. mag., Árni Björnsson, stud. inag., gjaldkeri, Skúli Benediktsson, stud. theol., fonnaður, Jónas Hallgrtmsson, stud. med., ritari, Sverrir Hermannsson, stud. oecon., frú Ragnhildur Helgadóttur, stud. jur. og Ingólfur Guðmundsson, stud. theol. ánægjulegar aflestrar. Samt er lítið lesið. Hér steytir áhugi almennings á öðru skeri, sem er tímaleysið. Hinn síaukni hraði nútímans veld- ur því, að menn stöðvast lítt við friðsæla tóm- stundaiðju í heimahúsum. Ótal margt glepur, eitt hér, annað þar. Ekki er þó fyrir það að synja, að enn er til fólk á Islandi, sem unir heima og á sínar kvöldvökur í friði. En nú hefur útvarpið að mestu leyst af hólmi lesturinn, sem áður var ein helzta tómstunda- iðja manna. Utvarpið getur því ekki heldur talizt syndlaust gagnvart sögunni. En er það þó ekki það menningartæki, sem mest er af að vænta í þessu efni? Og er nokkur aðili þess fremur umkominn en einmitt útvarpið sjálft að bæta fyrir það, sem það kann að hafa með tilkomu sinni misgert gagnvart sjálfsnámi manna í sögulegum fræðum? I hinni almennu dagskrá útvarpsins eru oft erindi og þættir úr sögu þjóðarinnar. Slíkt út- varpsefni er ávallt mjög vinsælt. En væri ekki vel til fallið og full ástæða til að flytja í útvarpið fasta fræðsluþætti um sögu lands og þjóðar, þætti, sem fluttir væru á ákveðnum tímum og beinlínis byggðir upp sem námsgrein? Eyrirlestraformið mundi henta þessu efni einkar vel og mætti því vænta meiri árangurs af kennslu þessari en byrjunarkennslu þeirri í erlendum tungumálum, sem útvarpið liefur haldið uppi um alllangt skeið, þar eð yfir- heyrsluaðferðin er að flestra dómi hin eina, sem dugir við kennslu í erlendum tungumál- um, enda notuð í öllum skólum. Mikils væri um vert, að höndunum yrði ekki kastað til þessarar kennslu. Þyrfti því að fá forsjá hennar hinum færustu mönnum, og yrði því máli vart með öðru móti betur borgið, en að leita til Háskólans um liðveizlu og fá fræði- menn innan vébanda hans til að hafa hönd í bagga með tilhögun og stjórn þessara þátta. Bæri slík fræðsla tilætlaðan árangur, ætti hún einnig þátt í að lengja líf þjóðarinnar, því að „þjóðir, sem eiga sér sögu, deyja ekki“.

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.