Stúdentablaðið - 01.12.1954, Side 48
40
STÚDENTABLAÐ
VinnumiSlun
stúdenta var haldið áfram. I vinnumiðlunarnefnd
áttu sæti Vilhjálmur Þórhallson, stud. jur., form.,
Baldur Vilhelmsson, stud. theol. og Þórir Einarsson,
stud. oecon. Sú nýbreytni var tekin upp í starfsemi
vinnumiðlunarinnar, að reynt var eftir föngum að út-
vega stúdentum, sem þess óskuðu, vinnu samhliða nám-
inu. Kom það mörgum vel. Einkum útvegaði nefndin
mörgum vinnu rétt fyrir jól við afgreiðslustörf, útburð
á pósti o. fl. Alls hlaut 101 stúdent vinnu fyrir atbeina
nefndarinnar. Vinnumiðlunin hefur þegar hafið starf-
semi sína að nýju.
Utanfarir.
Sigurður Guðmundsson, stud. med., sat í apríl þing
sambands brezkra stúdenta í Sheffield. Skúli Bene-
diktsson sat í sumar ráðsfund I. U. S. í Moskvu og
Valdimar Kristinsson, stud. oecon., heimsótti höfuð-
stöðvar vestrænu stúdentasamtakanna í Leyden í
Hollandi.
Þrir stúdentar fóru á stúdentamót er C. O. S. E. C.
gekkst fyrir í San Remo á Ítalíu í sumar. Aðal við-
fangsefni þingsins var andlegt frelsi. Þeir sem fóru
voru: Einar Sverrisson, stud. oecon., Jón Böðvarsson,
stud. mag. og Þórir Einarsson, stud. oecon.
I sumar fóru 5 stúdentar til Bandaríkjanna í boði
Bandaríkjastjórnar. Dvöldust þeir vestra í tvo mán-
uði og kynnti hver þeirra sér sín hugðarefni. Hinir
fimm, sem völdust til ferðarinnar voru: Kristján Búa-
son, stud. theol., Magnús Gíslason, stud. odont., Magnús
Sigurðsson, stud. med., Matthías Jóhannessen, stud.
mag. og Sveinn Skorri Höskuldsson, stud. mag.
Háskólinn og borgarstjórnin í Kiel buðu tveimur ís-
lenzkum stúdentum til „Kielarvikunnar“ í sumar,
en það er nokkurs konar „sæluvika" Kielarbúa. ís-
lenzku stúdentarnir voru guðfræðinemarnir Asgeir
Ingibergsson og Þorleifur Kristmundsson. Tóku þeir,
ásamt gestum frá hinum Norðurlöndunum, þátt í gleð-
skap borgarbúa, siglingum og íþróttum o. fl., skoðuðu
háskólann, söfn og fleiri merkisstaði. í sambandi við
vikuna var þar opin íslenzk bóka- og myndasýning á
vegum háskólans. Einnig flutti próf. Jón Helgason
þar fyrirlestur. Borgarstjórnin í Kiel mun eftirleiðis
veita einum íslenzkum stúdent námsstyrk árlega.
Almennur stúdentafundur
var haldinn 18. nóv. s. 1. að kröfu 20 stúdenta. Rætt
skyldi um 1. des. hátíðahöldin. Ingólfur Guðmundsson,
stud. theol., bar fram tillögu um að helga daginn kirkju
og kristni í landinu með sérstöku tilliti til Skálholts.
Eftir nokkrar umræður var borin fram frávísunar-
tillaga, sem jafnframt fól í sér samþykki á ákvörðun-
um stúdentaráðs og ritnefndar varðandi hátíðahöldin
og blaðið. Tillaga þessi var samþykkt með 141 atkv.
gegn 100.
íþróttaskylda
er nú ekki annað en bókstafur og harma það fáir.
Karlakór háskólastúdenta
starfaði af miklum áhuga. Kom hann fram við mörg
tækifæri, t. d. bókmenntakynningar og í útvarpsdag-
skrá seinasta vetrardag. Kórinn hélt eina kvöldvöku,
„Bellmanskvöld", í Þjóðleikhúsinu og tókst hún vel.
Söngstjóri er Carl Billich. Tvisvar efndi kórinn til
kynningar á tónverkum, sem sinfoníuhljómsveitin
flutti skömmu síðar. Róbert A. Ottósson flutti skýr-
ingarþætti og verkin voru leikin af hljómplötum. Enn-
fremur voru kynnt verk yngri bandariskra tónskálda.
Róber A. Ottósson flutti erindi og Guðmundur Jóns-
son óperusöngvari söng. Tónlistarkynning er nýr þáttur
í starfsemi kórsins og er þess að vænta, að áfram
verði haldið á sömu braut.
I sjórn karlakórsins eru Már Egilsson, stud. med.,
formaður, Jón Hallsson, stud. med., ritari og Jóhann
Guðmundsson, stud. med. gjaldkeri.
Stúdentafélög
sem nú starfa i háskólanum:
Dcildafélög:
Félag guðfræðinema: Ásgeir Ingibergsson formaður,
Matthías Frímannsson ritari og Ingólfur Guðmundsson
gjaldkeri.
Félag Iæknanema: Haraldur Guðjónsson formaður,
Eiríkur Bjarnason ritari, Jósef Fr. Ólafsson gjaldkeri,
Guðmundur Pétursson, Magnús Þorsteinsson og Leifur
Bjarnason meðstjórnendur.
Orator, félag laganema: Örn Þór formaður, Lúðvík
Gizurarson varaform. og ritstjóri Úlfljóts, Sigurður
Egilsson ritari, Ólafur Walter Stefánsson gjaldkeri og
Bragi Hannesson aðstoðarritstjóri.
Kaupahéðinn, félag viðskiptafræðinema: Gísli Ein-
arsson formaður, Þórir Einarsson ritari og Ólafur
Stefánsson gjaldkeri.
Félag verkfræðinema: Sigurbjörn Guðmundsson for-
maður, Sigurður Sigfússon ritari og Gunnar Baldvins-
son gjaldkeri.
Mímir, fclag stúdenta í íslenzkum fræðum: Hannes
Pétursson formaður, Stefán Karlsson ritari og Pétur
Urbancic gjaldkeri.
Félag tannlæknancma: Sverrir Einarsson er formað-
ur. Aðalfundur hefur ekki verið haldinn.
Stjórnmálafélög:
Félag frjálslyndra stúdcnta: Formaður Bjarni Ein-
arsson stud. oecon., ritari Guttormur Sigurbjörnsson
stud. philol. og gjaldkeri Jóhann Lárus Jónasson stud.
med.
Félag róttækra stúdenta: Formaður Jón Böðvarsson
stud. mag., ritari Sigurður V. Friðþjófsson stud. mag.
og gjaldkeri Hallfreður Öm Eiríksson stud. mag.
Stúdentafélag lýðræðissinnaðra sósíalista: Formaður
Vilhjálmur Þórhallsson stud. jur., ritari Helgi Sig-
valdason stud. polyt., gjaldkeri Sverrir Bjarnason stud.
med. og meðstjórnendur Árni G. Stefánsson stud.
philol. og Halldór Steinsen stud. med.