Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 07.02.1959, Qupperneq 2

Stúdentablaðið - 07.02.1959, Qupperneq 2
2 Hinn glœsilegi fulltrúi háskóla- manna í ríkisstjórn. Stúdentar hafa löngum talið það lán sitt, að eiga góða mál- svara við stjórnarjötuna. Þess vegna liafa þeir oftast fagnað þvi, er háskólamenn hafa setzt í stól menntamálaráðherra, og svo var einnig að þessu sinni, þegar bókfærsludolctor liáskól- ans tók við þessu virðulega em- bætti. Að vísu voru stúdentar ekki á einu máli um það, hvert gagn doktor Gylfi mundi vinna hagsmunamálum þeirra, en nú eru þeir allir sammála, og hefur skoðun hinna bölsýnustu orðið ofan á. Þykir hlýða að gera reikningsskil ráðsmennsku bók- færsludoktorsins í almennu málgagni stúdenta. S)túdentat)(a.& Fjárveiting til stúdentaráðs. Fyrstu skipti háskólastúdenta við ráðherra þennan hófust haustið 1956, er stúdentaráð fór þess á leit við liið liáa alþingi, að það hældkaði fjárveitingu sína til ráðsins. Fjárveitingin hafði þá verið óbreytt síðan á fjárlögum 1947, kr. 10.000.00. Á þeim tíma hafði margt borið til, sem gerði aukna f járveitingu ekki aðeins réttlætanlega, lield- ur einnig nauðsynlega fyrir alla starfsemi stúdentaráðs. Skal þar einungis nefna, að allt verð- lag hefur margfaldazt, niður- stöðutölur fjárlaga fjórfaldazt og stúdentaráð verið svipt helztu tekjulind sinni, meðan öll starf- semi þess færðist stórlega í auk- ana. Stúdentaráð liafði reynt að fá fjárveitinganefnd alþingis til að hækka framlagið, en liún reyndist ófáanleg til þess. Varð Ragnhildur Ilelgadóttir til þess Stúdentaráð Háskóla Islands . . Skáksamband Islands.......... Alþýðusamband Islands........ Háskóli Islands ............. Tekjur í íkissjóðs .......... að flytja tillögu um hækkun á framlaginu upp í kr. 25.000.00. Tillaga þessi var felld með 29 atkvæðum gegn 19 að viðhöfðu nafnakalli, og greiddi þá dokt- oriún atkvæði gegn hækkuninni. (Alþt. 1956, B 958). Hér var um að ræða 15 þúsund króna hækk- un á fjárlögum upp á 800 millj- ónir. — Árið eftir hafði prófess- or doktor Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra sömu af- stöðu til þessa máls; hann lagð- ist gegn liækkun til stúdenta, og sannaði þeim þar með hug sinn í þeirra garð, þrátt fyrir ummæli lians um svipað leyti í hinni frægu „Fulbright-ræðu“, þar sem hann komst svo að orí^i, að aldrei væri nógu mikið gert fyrir stúdenta. Hvað er tvískinn- ungur sem þessi kallaður á ís- lenzku? Hræsni. Kvígska. Hér birtist tafla, tekin saman úr f járlögum 1947 og frumvarpi til fjárlaga 1959: 1947 1959 Hækkun 10.000 10.000 0% 1.600 30.000 1775% 10.000 150.000 1400% 1,6 millj. 5,7 millj. 256% 202 — 898 — 345%

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.