Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 07.02.1959, Blaðsíða 10

Stúdentablaðið - 07.02.1959, Blaðsíða 10
10 BREF TIL Hr. ritstjóri! Við stúdentar, sem lesum á háskólabókasafninu, höfum stundum velt þvi fyrir okkur, livort ekki væri kostur á að fá einhverja þægilega bekki eða stóla, sem við getum tyllt okk- ur niður á, þegar við skreppum fram, til þess að hressa okkur upp og spjalla saman milli á- fanga. Þú værir vís til að koma þessari hugmynd á framfæri. Kveðja, Studi'osus perpetuus. Samkvæmt upplýsingum, sem blaðið hefur aflað sér um mál- i8, bar stúdentaráð fyrir nokkru fram við rektor þá ósk, að bætt yrði úr þessu og benti í því sam- bandi á það, að t. d. mætti leysa vandann með því að koma U—6 litlum borðum ásamt stólum (samskonar og i anddyri Lands- bókasafnsins) 'fyrir við inngang- inn í hátíðasalinn. — Þessi mála- leitan er nú til meðferðar hjá háskólaráði. stúdenta á Norðurlöndum dag- ana 5. og 6. febrúar. Að því búnu munu þeir félagar lialda til Perú og taka þátt í störf- um 8. þings alþjóðasamtaka þeirra (ISC—COSEC), sem stú- dentaráð er aðili að, en það fer fram dagana 15.—25. febrúar skammt fyrir utan borgina Lima, höfuðborg landsins. Þessi ferð mun væntanlega taka um mánaðartíma. BLAÐSINS Hr. ritstjóri! Mig langar til þess að biðja þig að koma á framfæri verð- skulduðu þakklæti til tónlistar- kynningarnefndar báskólans fyrir kynningar á sinfóníum Beetbovens.Þær hafaverið eink- ar fróðlegar, og lief ég, eftir að hafa fylgzt með þeim, mun meiri ánægju af því að blýða á þessi miklu snilldarverk. Þar sem ég geri fastlega ráð fyrir, að þessari starfsemi verði haldið áfram, svo vel sem bún hefur mælzt fyrir, vil ég nota tækifærið til þess að ympra á einu lítilvægu atriði, sem ég held að gæti betur farið í sam- bandi við kynningarnar. Ef satt skal segja, finnst mér dálítið hvimleitt ráp þeirra, sem setja ])löturnar á og taka þær af, inn í bakherbergið, með þeim hurðaskellum, sem því eru sam- fara og ekki verður komizt bjá, þó að fyllztu varkárni sé gætt, en það gera umræddir menn vissulega. Þessi hávaði minnir að nokkru á hamarshöggin, sem ósjaldan má lieyra í útvarpinu og menn bafa löngum fett fing- ur út í. Kannske væri þó nær sanni að líkja því við það, að þulurinn þrammaði á þungum skóm einn Iiring í þulsherberg- inu, áður en liann byrjaði að útvarpa hverjum þætti þess tón- verks, sem flutt er. Ég mundi því vilja leggja til, að ráðin yrði bót á þessu, t. d. með því að bafa allan tímann á bak við fastan mann, sem lídentablai Skíðaferð Ferðaþjónusta stúdenta byggst efna til skíðaferðar helgina 7. og 8. febr. Dvalizt verður í skíða- skála Æskulýðsfylking- arinnar. Valdimar Örnólfsson mun væntanlega veita mönnum leiðbeiningar og kennslu í skíða- iþróttinni. Á laugardagskvöld verður kvöldvaka og dans. Kostnaður verður 50—60 kr. Mætum öll! Ferðaþjónusta stúdenta fylgdist með því sem fram fer i salnum (og ugglaust heyrist aftur fyrir), en setti síðan plöt- urnar bávaðalaust á, þegar við ætti. Að lokum: Bezlu þakkir. Tónlistarunnandi.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.