Stúdentablaðið - 18.03.1959, Page 4
4
S)túdentabta&
íslenzkir þegnar og héldu áfram
að vera það eftir landtöku og
landnám á Grænlandi, enda höf-
um við hvergi heimildir um ann-
að. Við vitum ekkert til þess að
þess getið né um það lesið, að
þeir liafi sagt sig úr „várum lög-
um“, en samkvæmt alþjóðarétti
þarf nýbyggð að segja sig úr
lögum við móðurlandið með
sérstakri ráðstöfun, eigi sjálf-
stætt þjóðfélag að myndast. En
slíkt kom auðvitað ekki til
greina, þar sem Grænland var
þegar í íslenzkri landhelgi áð-
ur en það byggðist.
Hvorki Grágás né þær lögbæk-
ur, sem síðar giltu hér á landi,
kannast nokkru sinni við Græn-
land sem erlent ríki, heldur ætíð
sem innanlands. I mörgum upp-
talningum þessara lögbóka á er-
lendum þjóðum eru Grænlend-
ingar aldrei nefndir á nafn,
heldur falla þeir ætið undir
nöfnin „Islendingar" og „ís-
lenzkir menn“. Þau ákvæði i
Grágás eru mörg, sem ótvirætt
kveða á um stöðu Grænlands
og ekki er liægt að villast á.
„Ef maðr á konur tvær hér á
landi eða í várum lögum, varðar
þat fjörhaugsgarð“. „Vár lög“
merkir, eins og allir vita, það
svæði, þar sem íslenzk lög giltu,
ogaf þessu sambandi sést,aðþau
giltu víðar en á Islandi einu,
þ. e. á Grænlandi. Þá segir Grá-
gás einnig: „Ef maður verður
sekur á Grænlandi og er hverr
þeirra manna sekur liér, er þar
er sekur.“ Getur nokkur túlkað
þessi orð á annan veg en þann,
að dómar grænlenzku dómþing-
anna giltu á tslandi og gagn-
kvæmt? Aldrei er til þess vit-
að, að maður, sem dæmdur var
útlægur á Islandi, liafi leitað
til Grænlands eða öfugt.
FRAMH. Á 6. SÍÐU
FRÁ STÚDENTAFUNDI
UAi VAR
Almennur stúdentafundur var haldinn í 1. kennslustofu há-
skólans þriðjudaginn 3. marz s.l. Umrœðuefni var „varnarmál
íslands“.
Tilkoma þessa fundar var sú, að Ragnar Arnalds, stud. mag., ung-
lingakennari í Hafnarfirði suður, sem jafnframt er einn aðal for-
ystumaður samtakanna „Friðlýst land“, hóf snemma í haust undir-
skriftarsöfnun þar, sem þess var farið á leit við Stúdentaráð,
að það gengist fyrir áðurnefndum fundi. Munu fimm fulltrúar
í Stúdentaráði sjálfu hafa skrifað undir plaggið.
Fundurinn hófst um kl. 9, og var fundarstjóri skipaður Hjört-
ur Torfason, en fundarritari Kristján Baldvinsson. Aðal rœðu-
menn voru þeir Jósef H. Þorgeirsson, formaður Vöku, félags lýð-
rœðissinnaðra stúdenta, Heimir Hannesson, fyrrv. formaður Fé-
lags frjálslyndra stúdenta, Emil Hjartarson, stud. med. og Ragn-
ar Arnalds. Talsverð harka var í fundarmönnum og urðu nokkr-
ar deilur um fundarsköp strax í byrjun, þar eð Ragnar Arnalds
taldi á sér brotin lög, hvað fundarstjóri taldi fjarstœðu. Umrœður
Fundarsálur var þéttskipaður.
(Ljósm. Magnús Skúlason, sem einnig tók aðrar myndir á fundinum).