Alþýðublaðið - 19.12.1922, Page 7
ALÞYÐUBLAÐIÐ
7
Notið tœkitoílð. Kom.
ið a GOmaiivi&nustofu Reybjavík
ar. Þar verður (ramvegtn *eit cfní
tií viðgerðar á gúmmiskófatoaði
Igámooilím og gúmmi) Dáíítíð er
eftár af uiðstíikum gúmmísóiam
og fcælam. Viðgerðir á skóixíífum
og gúmnsístigvélum eadast lengst
og eru ódýrsstar á
GúmiuÍTÍnnnstoin ReykjaTÍkitr,
Laugaveg 76.
P’órarinn Kjartansson.
HjáífaretS# Hjúicma&riói&gsini
Lííra ar opk s*m kér sscsfk;
Uáimdaga . , ■. kl. ti—*a í. fe.
Þriðfadaga ... — % — ð a, b,
Mðvikudaga . . — j.— 4 e. te.
f öatudaga$ — 6 «. h
Laagárdaga ... — 3 — 4 »• k.
l'.GÓð Íl»©BSÍngrffæs» fyrir
fáa sura bJá^Litla Kafflhúsinn,
Laugaveg 6.^
jSáStkiSSW*
Grammófónar.
15 % afsláttnr tíl jðla.
Verð áður 50,00 aú 42,50.
— 60,00 — 5l,5o.
“ — 85,00 — 7375.
— 150,00 —.12750
— — 175.00 — 1487S.
— 200,00 — 170,00.
2 piötur og 200 nálar fylgfa.
Míkið úrval &( plétuœ
Koroið » tfm*.
Hljóðfærahúsið.
Tnhler v.Bríta°íá
Regnkáp
4yrir kar’ií, kosur og böra, era Býkoæsjar. — Nokkrar kípur, síta
ikemat hafa, vería seidar með mjðg VS90U V©a?ði.
. _ - ......... ................
Helgi Jónsson
Júsugav©g 11«
oiagjo
V ctoria saumavél er dn sú aiira bezta jóiagjöf, sem bægt er sð gefa.
Þesnar heimsviðurkendu saumavéiar fást gegra síbofgunum í
F á 1 k a n u m.
Edgm’ Ric* Burroughs: Tarzan snýr aftnr.
á öllú J)ví, er snerti náttúruna; en það var ekkert smá-
ræði, er hér gaf á að líta. Hættur hugsaði hann aldrei
um.
„Aldrei“, mælti Samuel T. Philander við Tenning-
ton lávarð, „hefir Porter prófessor verið svona erfiður
viðfangs — eða — ef eg mætti segja ómögulegur. Til
dæmis 1 morgun; eg leit af honum hálfa klukkustund,
og þegar eg kom aftur var hann horfinn. Og hvar
haldið þér svo eg hafi fundið hann? Hálfa mílu enska
úti á sjó. Þar réri hann einum björgunarbátnum líf-
róður. Eg veit ekki hvernig hann hefir komist þetta,
því hann réri að eins einni ár, og fór því stóra hringa,
Þegar einn sjómaðurinn hafði róið mig út til hans á
öðrum báti, varð hann reiður því, er eg bað hann að
koma strax í land. ,Nú, Philander', sagði hann, ,eg er
hissa á þér, herra minn, sem sjálfur ert lærður maður,
að þú skulir dirfast að trufla vísindatilraunir, Eg var i
þann veginn að leiða í ljós, út frá sérstöku stjarnfræði-
legu fyrirbrigði, sem eg hefi rannsakað nú í nokkrar
nætur, algerlega nýja skoðun á stjörnuþokunum, sem
setja mundi vísindaheiminn á annan endan. Eg þurfti
að skoða í ágæta bók um kenningu Laplace, sem eg
veit að er til f einkabókasafni einu í New York. Af-
skiftasemi yðar, herra Philander, mun seinka mér ó*
hæfilega, þvf eg var einmitt á leiðinni yfir um til þess
að fá lánað handritið1. Og mér gekk afarerfiðlega að
koma honum í land aftur, án þess að beita valdi", lauk
Phílander máli slnu.
Ungfrú Strong og móðir hennar voru mjög hugrakk-
ar þrátt fyrir sffeldar árásir villidýra á skipbrotsmenn-
ina. Þær, voru ekki eins vísar og hinir um, að Jane,
Clayton og Thuran hefðu komið í skip.
Esmeralda var sífelt grátandi vegna þess að vera.
skilin frá húsmóður sinni.
Ténnington lávarður var alt af jaínkátur og góð-
lyndur. Hann var enn þá gestgjafinn, sem gxeip hvert
tækifæri til þess að gera gestunum- til hæfis. Hann ,var
ákveðinn, en réttlátur gagnvart skipshöfninni af Lady
Alice. Hann skar hér úr öllum ágreiningi eins og áður
á snekkjunni.
Ef þessi hópur, er svo var vel á sig kominn, hefði
séð þremenningana sem reikuðu illa á sig komnir og
klæðlitlir um ströndina fáum mílum sunnar, heíði hann
ekki trúað 'því, að þar væru komin þau, er hlegið höfðu
og leikið sér á þilfari snekkjunnar.
Clayton og Thuran voru því nær naktir; þeir höfða
rifið föt sln á þyrnum og kjarri, er þeir leituðu sér
fæðu í skóginum, sem alt af varð erfiðara verk.
Jane hafði raunar ekki ferðast eins mikið um, ere
Mn var samt illa til reika.
Clayton hafði haldið saman öllum skinnum af dýr-
um þeim, er þeir höfðu drepið. Hann hafði strengt þau
á milli greina, og með því að hirða þau vel hafði hann
haldið þeim óskemdum. Til þess að bæta úr nekt
sifini var hann farinn að gera sér fatnað úr s’ innum
þessum. í nálarstað hafði hann oddhvassa s[ ííu, ec
saumþráðurinn var tágar og sinar úr dýrunum.
Loksins var fatið fullgert, og Clayton fór í það. Það
var kufl er náði á hné niður, og leit maðurinn kynlega
út 1 búningnum, svo Jane skelti upp úr, er hún sá hann,
þrátt fyrir ástandið.