Stúdentablaðið - 07.03.1974, Page 5
M ÁSTAN
&
I
UÐUR-VIETNAM
Á frelsuðu svæðunum hafa
Þjóðfrelsisfylkingin (FNL) og
Bráðabirgðabyltingarstjórnin
(BBS) notað tímann frá undir-
ritun Parísarsáttmálans til end-
uruppbyggingar og starfs sem
miðar að því að bæta lífskjör
íbúanna á þessum svæðum.
Byltingarstjórnin hefur styrkst
á öllum sviðum, húsaviðgerðir
og húsbyggingar eru í fullum
gangi og hefur barnaskóla og
heilsuverndarstöð verið komið
upp í hverjum hreppi og sjúkra-
húsi og fæðingardeild í hverri
sýslu.
Landbúnaðarframleiðslan er í
uppgangi og er svo fyrir að
þakka sæði og áburði, sem BBS
hefur lagt bændunum til, en
þeir hafa einnig að miklu leyti
fengið jarðnæði frá stjórninni.
Heimilisiðnaður og handiðn-
aðarmenn njóta líka góðs af
hinum nýja tíma.
Að sjálfsögðu höfum við að-
eins stigið fyrstu skrefin til að
uppfylla þarfir fólksins á þess-
um sviðum, og hin gífurlega
eyðilegging, sem árásarstríð
Bandaríkjanna hefur valdið,
gerir uppbyggingu alit annað en
auðvelda. Þó einkennist ástand-
ið á þesstun svæðum af miklum
framförum. Á menningarsviðinu
er t.d. að finna starfandi söng-
og dansfélög í hverju héraði
auk leikhúss, en tala áhugaleik-
félaga eykst stöðugt. Þetta þýðir
stöðuga þróun þjóðlegrar listar
og ýtir undir frekari listsköpun.
Á hinu pólitíska og diplómat-
íska sviði eykst virðing BBS og
"'Staða stjórnarinnar fer sífgllt
batnandi: Stjórnin var t.d. ný-
lega viðurkennd sem hinn eini
rétti fulltrúi fyrir S-Víetnam
af toppráðstefnu hludausra ríkja,
þar sem mættu æðstu menn eða
utanríkisráðherrar frá meira en
70 löndum. Forseti FNL Nguy-
en Huu Tho var hylltur á ferð
sinni um Afríkulönd og hlaut
þær móttökur, sem aðeins þjóð-
höfðingjar fá. BBS hefur gert
samninga við fjölmörg lönd og
hefur hlotið stjórnmálalega við-
urkenningu af enn fleiri lönd-
um.
Hins vegar er stríðinu í Víet-
nam ekki lokið. Parísarsáttmál-
inn er sigur fyrir hina víet-
nömsku þjóð; hann þýðir að í
fyrsta sinn í heil 115 ár er eng-
inn óvinaher á víetnömsku
landi; opinberlega. En samtímis
þýðir sáttmálinn örlagaríkt skip-
brot fyrir pólitík Bandaríkja-
manna og leppstjórnina í Sai-
gon. Hin síðarnefnda er algjör-
lega upp á bandarísku pólitíkina
komin vegna persónulegra hags-
muna. Og þess vegna brýtur
Saigonstjórnin með Bandaríkin
að baki sér, svo til ailar greinir
sáttmálans á kerfisbundinn hátt.
Hvað vopnahlésákvæðunum
viðvíkur ber hún ábyrgð á yfir
27.000 brotum fyrstu níu mán-
uði samkomulagsins. Þ.e.a.s. með
landvinningaherferðum, stór-
skotaárásum, sprengjuárásum og
ekki síst vopnaðri íhlutun.
AIJKNAR HERNAÐ-
ARAÐGERÐIR
Ástandið i S-Víetnam er mjög
RÆÐA
LE VAN KY
í TJARNARBÚÐ
í 5. DES. SL
alvarlegt einmitt núna. Banda-
ríkin og Saigon hafa nú nýlega
gripið til mestu srríðsmögnunar-
aðgerða síðan Parísarsáttmálinn
var undirritaður. Snemma í
september s.l. byrjaið Saigon að
beita allt að 30 herdeildum í
hverri árás sinni á hin frelsuðu
svæði: Fótgönigulið, stórskotalið,
skriðdrekaherdeildir og sprengju-
flugvélar voru send samtímis
langt inn á hin frelsuðu svæði.
Þessar stríðsaðgerðir voru skipu-
lagðar með hjálp amerískra ráð-
gjafa. Þau svæði sem einkum
verða fyrir þessum meiriháttar
hernaðarárásum eru svæðin á
hásléttunni, sléttan í miðhlua
S-Víetnam, héraði Tay Ninh
fyrir vestan Saigon og svæðið
norðan Saigonborgar. Nú síðast
hefur Saigonstjórnin þar á ofan
beint umfangsmiklum sprengju-
árásum að minni bæjum langt
inni á svæðum undir stjórn
BBS. í þessum árásum er beitt
flugvélum hlöðnum sprengium
og eiturgasi. Þúsundir húsa
hafa verið lögð í rúst, uppsker-
an er eyðilögð og þúsundir
manna hafa verið drepnir eða
særðir í þessum árásum.
Til þess að freista pess að
hylja eigin brot ákærir Saigon-
stjórnin BBS fyrir svipuo brm
og hún sjálf fremur. Hún hróp-
ar um undirbúning stórsoknar o.
s. frv. Tilgamgurinn með slúður-
herferðinni er að teyna að
blekkja almenningsálitið og fela
eigin afbrot og stríðsundirbún-
ing Saigonstjórnarinnar, sem
nýtur öflugs stuðnings Banda-
ríkjanna.
Fyrir stuttu síðan hefur t.d.
orðið vart mikils liðssafnaða>
Saigonhers á svæði 180 km
fyrir norðaustan Saigon oc viro-
ist hann í vígahug.
NAUÐUNGAR-
FLUTNINGAR
Hernaðarárásir á yfirráðasvæði
BBS eru ekki einu brotin sem
Saigonstjórnin gerir sig seka um
Reiknað er með, að frá því að
Parísarsáttmálinn var undirrit-
aður, hafi allt að milljón manna
verið fluttir nauðungarflutning-
um af Saigonstjórninni með lög-
regluaðgerðum. Þessar vopnuðu
aðgerðir hafa að markmiði að
reka fólk úr heimabyggð sinni
ekki síst ef hún er á yfirráða-
svæði BBS, í risavaxnar ein-
angrunarbúðir, sem á fríðu máli
eru nefndar „flóttamannabúðir'
og eru sérstakur útgjaldaliður
á fjárlögum Saigonstjórnarinnar
í svonefndum „friðunarherferð-
um" sem framkvæmdar hafa
verið í Quang Nam, Quang
Ngai og Quang Bihn héraði
(sem liggur að strönd miðhluta
S-Víetnam) hafa konur, börn
og aldraðir verið kæfð með gasi
þar sem þau hafa flúið í neðan-
jarðarbyrgi eða verið drepin á
annan hátt, hafi þau þverskall-
ast við að láta flytja sig.
Tröllauknar jarðýtur jafna
heil þorp við jörðu og rísakrar
íbúanna eru eyðilagðir. Með eit-
urefnum er jörðin gerð óræktan-
leg. Ljóst má vera af þessu að
Saigonstjórninni er ekki sérlega
umhugað um hin ahnennu lýð-
réttindi fólksins, s.s. ferðafrelsi;
rétt til að lifa í eigin húsnæði
og rétt til að yrkja þá jörð sem
maður hefur fórnað lífi sínu. Á
svæðunum undir yfirráðum Sai-
gonstjórnarinnar, einkum ■ bæj-
um og nauðungarbúðum. er
hvorki til að dreifa prentfrelsi
né félagsfrelsi; og eins eg allir
vita sitja ennþá 200 DÚsund
pólitískir fangar í fangelsum
Saigonstjórnarinnar.
Áður en til vopnahlés kemur
og innleidd verða venjuleg lýð-
réttindi er tómt mál að tala um
þá pólitísku lausn, sem Parí >at-
Framhald á 10. síðu.
Mál & menning - - Heimckrmg'i i
NÝJAR BÆKUR 1973-1974 j
Jóhannes úr Kötlum: Bi'ynjólfur Bjarnason:
Ljóðasafn III Með storminn
Verð: kr. 800 (innbundin) í fangið I-III
Jóhannes úr Kötlum: Verð: kr. 800 (pappírskiljur)
Ljóðasafn IV R. Debray og S. Allende:
Verð: kr. 700 (innbundin) Félagi forseti
Helgi Hálfdánarson: Verð: kr. 400 (pappírskilja)
Kínversk ljóð E. Fischer:
frá liðnum dögum Um listþörfina
Verð: kr. 800 (innbundin) Verð: kr. 360 (pappírskilja)
Hjörleifur Guttormsson: Björn Th. Björnsson:
Vistkreppa eða Aldateikn
náttúruvernd Verð kr. 1.500 (innbundin)
Verð: kr. 1.100 (innbundin) Þórbergur Þórðarson:
Þorleifur Einarsson: Ofvitinn
Gosið á Heimaey Verð: kr. 1.200 (innbundin)
Verð: kr. 800 (innbundin) (VERÐ ÁN SÖLUSKATTS)
STLJDENTABLAÐIÐ — 5