Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 07.03.1974, Blaðsíða 12

Stúdentablaðið - 07.03.1974, Blaðsíða 12
nwnn EKKI ER ÖLL VIT- LEYSAN EINS! Nemendum á fyrsta ári í Læknadeild meinað að halda áfram, ef þeir geyma próf í síöasta tölublaöi Stbl. var sagt frá þcirri ákvöröun Læknadcildar, aö hlcypa ckki áfram í námi þcim 1. árs nem- um, scm ckki stæöust próf íyrra misscris nú í janúar. Gilti þá cinu hvort þeir féllu á ööru prófinu cða báðunt. I»ctta var auðvitaö mcsta lög- lcysa, cnda fór svo aö dcildin icll frá ákvöröun sinni. En lokaniöurstaðan var þó ckki par gáfuleg. Þeir nemendur, scm aðeins fóru í annað próf- iö, skyldu ckki fá að halda áfrain námi, jafnvel þó að þeir næöu þvi. Hinir sem fóru i bæði prófin og fcllu á báðum cöa ööru skyldi lcyft að halda áfrain. Snjallræði þctta mun vcra runnið undan rifjum , kcnnslustjóra dcildarinnar. Um þctta segir í öðru tölublaöi Kippilykkju, baráttumálgagns læknancma, í grcin sem bcr yfirskriftina SIGMUNDAR- DÓMUR: Á deildarfundi þ. 6. 2. sl. var samþykkt að þeir ). árs- menn, sem í bæði janúarpróf fóru, hvort sem þeir féllu eða náðu, skyldu setjast á seiiina misseri 1. árs. Sarinast sagna kom þessi stefnubreyting mjög á óvart. Áður var stefnan hörð og ótvíræð. Janúarpróf skyldu vera takmarkandi með einum prófmökuleika punktum og basta hvað sem reglugerðin segði. Hvers vegna var þá blaðinu snúið við? Stúdentar höfðu að vísu gagnrýnt nefnd próf harðlega, bæði á deildar- ráðsfundi og í Kippilykkju og fundið þeim margt til foráttu. Ekki er þess þó að vænta, að sú gagnrýni hafi haft nein á- hrif ef að líkum lætur. Stað- reynd málsins er sú, að deild- arráð fól Jónatani Þórmunds- syni prófessor í lagadeild að segja álit sitt á lögmæti prófs- ins sem takmarkandi prófs. Niöurstaða hans var sú, að það ætti sér enga stoð í reglu- gerð háskólans, og var því draumur deildarstjórnar urn gildi þeirra algerlega kastað A glæ. Af einhverjum ástæðum, stúdentum ókunnum, fékkst á- lit lögfræðinsins ekki lesið á deildarfundi 6. 2., þar sem urn janúarpróf var fjalllað, þrátt fyrir ítrekaðaar beiðnir um það frá stúdentum og Margréti Guðnadóttur. Illt er að trúa því að óreyndu að deildar- stjórn stingi undir stól gögn- um, sem henni er falið að afla. Ef til vill er skýringin sú, að álitið hafi ekki komið fyrir augu hennar áður en fundur- inn hófst. Þó höfðu stúdentar Framhald á 4. síðu. Kippilykkjumál: VELSÆMIS- BROT KALLAST ÞAD! Á deildarfundi í Læknadeild fyrir mánuði síðan, nánar til- tekið 6. febrúar var samþykkt ályktun þess efnis, að Háskóla- ráð tæki fyrir mál þeirra sjö manna sem stóðu að útgáfu fyrra tölublaös Kippilykkju, baráttumálgagns læknanema. Að þessari samþykkt stóðu fjórtán fundarmenn, en einn var á móti .Ekki er blaðinu kunnugt um hvað margir sátu hjá. Blaðinu er hinsvegar kunnugt um það, aö af þessum fjórtán lærifeðrum læknanema, voru ekki nema fjórir eða fimm, sem höfðu þá séð blað- ið. Til skýringar má geta þess, að flutningsmönnum tillögunn- líkaði ekki efni blaðsins, og töldu útgáfu þess jafnvel vera brot á 24. gr. háskólalaga, sem fjallar um óskilgreint vel- særni hóskólaborgara: 24. gr. Allir skrásettir stúdentar eru skyldir til að gæta velsæmis bæði í háskólanum og utan hans. Háskólaráð getur veitt stúdent ántinningu eða vikið stúdent úr skóla um tiltekinn tíma eða að fullu, ef hann hefur gerzt sekur um brot á lögum og öðrum reglum háskólans eðá reynzt sekur urn háttsemi, sem er ósamboðin há- skólaborgara. Áður en brottrekstur er ráðinnn, skal leila umsagnar háskóladeildar stúdents. Einnig skal veila stúd- ent kost á að svara til saka. Enn- fremur skal leita umsagnar stjórn- ar í deildarfélagi stúdents, áður en brottrekstur er ráðinn sam- kvæmt 2. málsgrein. Brottrekstur skal þegar í stað tilkynntur menntamálaráðuneytinu. Stúdent er heimilt að skjóta úr- skurði háskólaráðs til Hæstaréttar eftir reglum um kæru í opinberum málum innan 4 vikná frá því, að honum barst tilkynning urn úr- skurðinnn. Kæra frestar fram- kværnd úrskurðar, en stúdent ntá þó ekki ganga undir próf, fyrr cn úrlausn Hæstaréttar er fengin. Nú tckur stúdent sig á, og er háskólaráði þá heimilt að fella brott fyrri úrskurð um brottrekst- ur. í blaðinu var einkum fjallað um „fölsunarmálið“ svonefnda, en einnig um takmörkunarmál 1. árs nema, bæði janúarprófin og hótun deildarinnar um að beita „numerus clausus" í haust þó búið sé að ganga að velflestum kröfum hennar: „25 miljónir þegar í stað til tækja- kaupa, annars: NUMERUS CLAUSUS“. En aðgerðir læknanema í vetur fengu því meðal annars óorkað, að búið er að gefa vilyrði íyrir þriggja ára áætlun um að bæta tækja- kostinn. Á baksíðu, þessa ann- ars ágæta blaðs, eru svo nokkrir fúlir læknadeildar- brandarar, sem engir hafa gaman af nema læknanemar og þeirra lærifeöur. Dæmi: Forseti Læknadeildar er vax- inn upp af naflastreng. Fóstr- inu og fylgjunni var kastað. En það voru víst einkum þess- ir baksíðubrandarar, sem særðu velsæmistilfinningu flutningsmanna tillögunnar. Sjálfsagt hafa þeir scm greiddu tillögunni atkvæði, án þess að hafa séð málgagnið, ekki gert sér grein fyrir því, að þeir voru í reynd að fara frani á að sjö forystumönnum læknanema, allt saman gegn- um nemendum, væri vísað úr skóla eða að þeir víttir af Há- skólaráði fyrir velsæmisbrot. Hinsvegar má það vera ljóst, að flutningsmenn tillögunnar gerðu sér fulla grein fyrir at- höfnum sínum, því hún var borin upp sem dagskrártillaga, og umræður um hana ekki leyföar. Þeir sem báru fram tillöguna eru Arinbjörn Kol- beinsson, Hannes Blöndal og Sigurður Friðjónsson. Háskólaráð hefur þegar þetta er ritað ekki enn fengið mál þetta til meðferðar, en deildarforseta er skylt að leggja samþykkt sem þessa fyr- ir ráðið. Líklega verður henni þó þegar þar að kcmur vísað frá uinræðulaust og málinu þannig komið út úr heiminum. Að öðrum kosti er eins víst, að stúdentar i öðrum deildum skólans taki við sér, því það hlýtur að vera aðalsmerki skóla á borð við Háskóla Is- lands, að nemendur hafi fullan rétt, til að setja fram gagnrýni sína, í ræðu eða riti á stofnun- ina sjálfa eða forráðamenn hennar. ráa Alþjóðleg sendinefnd stúdenta til Chile Íslendingur með í förinni Alþjóðasam'band stúdenta, IUS, mun núna í lok þessa mánaðar, eða í byrjun þess næsta, senda alþjóðlega sendi- nefnd stúdenta til Chile, til að ferðast þar á milli háskóla og kynna sér ástandið af eigin raun. Eins og kunnugt er hafa chilenskir stúdentar sætt mild- um ofsóknum af hálfu herfor- ingjakl'íkunnar, leiðtogar þeirra og fjölmargir aðrir verið tekn- ir af lífi, margir fangelsaðir og tugþúsundum verið víscað úr skóla, fyrir utan það að ótal háskólum hefur verið lokað. Allar fregnir af þessu hafa þó verið heldur óljósar og því hefur Alþjóðasambandið á- kveðið að senda þangað stúd- entasendinefnd, sem í verða fulltrúar nokkurra stúdenta- sambanda í v-Evrópu, fimm eða sex talsins. Stúdentaráði H.í. var boðið að tiilnefna mann í nefndina, og hefur verið ákveðið , að Ævar Kjartansson verði full- trúi íslenskra stúdenta í henni. Ævar Kjartansson dvaldist um eins árs skeið í Br .silíu, svo hann er ekki með öllu ókunn- ugiir málefnum Rómönsku Ameríku, fyrir utan að hann bjargar sér vel á spænsku (eða portúgölsku). Ævar var og einn af þeim, sem mynduðu móttökunefnd fyrir Chilebúann Rafael Carrera, sem var gestur íslenzkra stúdenta 1. des. s.l. Tókust með þeim ágæt kynni, og þar sem þeir gátu rætt sín á milli á sömu tungu, er Ævar flestum íslenskum stúdentum fróðari um atbtuðina í Chile og tilfinningu þjóðarinnar gagnvart þeim. Aðrir sem verða í sendi- nefndinni eru fulltrúar stúd- entasambandanna á írlandi, í Finnlandi, V-Þýskalandi og Noregi. Til greina kemur að fleiri verði með, en ekki er bú- ið að ákveða það. Það verður að teljast talsverð viðurkenning á stefnu Stúdentaráðs í alþjóða- málum, að íslenskum stúdent- um skuli vera boðið að til- nefna mann í þessa sendinefnd, sem mun koma til með að skýra frá því á alþjóðavett- vangi, sem hún sér í Chile, þar sem morðkvikar öldur fas- ismans hefur ekki enn lægt.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.