Stúdentablaðið - 20.03.1974, Qupperneq 1
3. TBL. 20. MARS 1974 50. ÁRG.
UM KOSNINGAR
til Stúdentaráðs, og Háskólaráðs
Frestur til aö skila framboö-
um til Háskólaráðs og Stúd-
entaráðskosninga rann út miö-
vikudaginn 13. mars. Tvö
framboð bárust, annað frá
Vöku, félagi Jýðræðissinnaðra
stúdenta, en hitt frá Vinstri
mönnum í H.I-
Að þessu sinni eru viðhafð-
ar listakosningar til Stúdenta-
ráðs, en eins og mönnum er
kunnugt var áður kosið um
íiambjóðendur í hinum ein-
stöku deildum, og hafði hver
deild sinn fulltrúa í ráöinu.
FuJlt samkomulag varð innar
Stúdentaráðs um þessa brevt-
ingu og eins lýstu félögin,
Vaka og Verðandi, sig sam-
þykk. Hefur frambjóðendum
nú verið úthlutað bókstöfum
til auðkenningar listum sínum,
og kom bókstafurinn A í hlut
Vöku, en Vinstri menn hlutu
þókstat'inn B. Rosningarnar
fara fram miövikudaginn 20.
mars.
Að |x;ssu sinni er kosið um
fulltrúa til tveggja ára, bæði í
Stúdentaráð og Háskólaráð.
Reglur þær sem gilda í kosn-
ingum þessum er að finna ann-
ars staðar hér á síðunni. Um
skipan á framboðslistana tvo
er fátt að segja, þar hafa verið
valdir til menn úr öllum deild-
um Háskólans, auk þess sem
aðrir hagsmunahópar eiga þar
sjálfsagt sína fulltrúa. Rauð-
sokkum skal til að mynda bent
á að kynna sér hver hlutur
kvenna er í þessum framboð-
um.
Á fyrstu og annarri opnu
blaðsins gera frambjóðendur
grein fyrir helstu stefnumiðum
sínum, og var þeim aðilum
sem að framboðum standa, út-
hlutað því plássi í samráði við
útgáfustjórn Stúdentablaðsins.
Hér til hliðar eru auk þess
birtir framboðslistar beggja
aðila.
ráa
Kosningareg/ur
Um hvað er kosið?
Kosið er um 13 inenn, sem
aðalfulltrúa í Stúdentaráði, og
einn, sem sæti á bæði í Há-
skólaráði og Stúdentaráði.
Varainenn aðalfulltrúa af
hverjum Iista eru allir þeir,
sem á listanum eiga sæti, og
í sömu röð og þeir endanlega
hljóta. Fulltrúi í Háskólaráði
hefur sérstakan varamann.
Hverjir hafa
kosningarétt?
Kosningarétt hafa allir, sem
skráðir eru til náms í Háskóla
íslands skv. reglugerð Háskól-
ans, þ.e.a.s. þeir, sem h.afa inn-
ritað sig í Háskólann og greitt
skrásetningargjald kr. 2.200,00.
Kærur vegna kjörskrár skulu
hafa borist kjörstjórn á hádegi
þriðjudaginn 19. marz n.k.
Hvernig er kosið?
Kosið er hlutbundnum lista-
kosningum, sem eru skriflegar
og leynilegar.
Kjósandi grejðir atkvæði á
þann hátt, að hann markar
kross á kjörseðilinn fyrir fram-
an bókstaf þess lista, sem hann
vill kjósa.
Vilji kjósandi breyta nafna-
röð á lista þeim, er hann kýs,
setur lrnnn tölustafinn 1 fypir
framan það nafn, er hann vill
hafa efst, töluna 2 fyrir fram-
an það nafn, er hann vill hafa
annað í röðinnj, töluna 3 fyrir
framan það nafn, sem hann
vill hafa það þriðja o.s.frv.
Vilji kjósandi hafna einum
eða fleiri frambjóðendum strik-
ar hann yfir viðkomandi nafn
eða nöfn á listanum. — Kjós-
andi má þó ekki hagga neitt
þeim lista, sem hann ekki kýs,
hvorki strika yfiy nöfn á þeim
né breyta á þeim nafnaröð, né
gera nein önnur merki á kjör-
seðilinn, að öðrum kosti telst
seðillinn ógildur. V.P-
í stúdentaheimilinu
MUNIÐ JAM-SESSION Á
MÁNUDAGSKVÖLD kl. 9-12
Kjartan Gunnarsson
Bogi Águstsson
Markús K. Möller
I
Sigurður Tóniasson
Arnlín Óladóttir
Eríing Ólaísson
Á -LiSTI
Framboðslisti Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúd-
enta í Stúdentaráðs- og Háskólaráðskosningum
1974.
Til Stúdentaráðs:
1. Kjartan Gunnarsson laganemi
2. Bogi Ágústsson, sagnfræðinemi
3. Einar Brekkan, læknanemi
4. Árni Gunnarsson, viðskiptafræðinemi
5. Einar Stefánsson, læknanemi
6. Berglind Ásgeirsdóttir, laganemi
7. Magnús Björn Björnsson, guðfræðinemi
8. Linda Rósa Mikaelsdóttir, enskunemi
9. Hilmar Baldursson, viðskiptafræðinemi
10. Oddur Einarsson, guðfræðinemi
11. Ragnar Ó. Steinarsson, tannlæknanemi
12. Sveinn Guðjónsson, sagnfræðinemi
13. Ragnar önundarson, viðskiptafræðinemi
14. Anna Kristrún Jónsdóttir, lyfjafræðinemi
15. Inga Sólnes, frönsku- og bókmenntanemi
16. Helgi Harðarson, líffræðinemi
17. Margrét María Þórðardóttir, læknanemi
18. Ingibjörg Rafnar, laganemi
19. Jón Ólafsson, lyfjafræðinemi
20. Helgi Sigurðsson.læknanemi
21. Guðmundur Geir Gunnarsson, viðskiptafræðinemi
22. Sigríður Siemsen, lyfjafræðinemi
23. Gunnar Guðmundsson, laganemi
24. Ólafur H. Jónsson, viðskiptafræðinemi
25. Hafliði Pétur Gíslason, verkfræðinemi
26. Hannes J. Sigurðsson, læknanemi.
Til Háskólaráðs:
Markús K. Möller, stærðfræðinemi.
Til vara:
Inga Jóna Þórðardóttir, viðskiptafræðinemi.
B-LISTI
Framboðslisti vinstri manna í kosningum til Stúd-
entaráðs H.l. og Háskólaráðs fyrir starfsárið 1974
Til Stúdenaráðs Háskóla íslands:
1. Sigurður Tómasson, íslenskunemi
2. Arnlín Óladóttir, læknanemi
3. Jón Sigurjónsson, líffræðinemi
4. Gylfi Kristinsson, laganemi
5. Eísabet Berta Bjarnadóttir, norsku- og þýskunemi
6. Lára Júlíusdóttir, laganemi
7. Atli Árnason læknanemi
8. Ævar Kjartansson, þjóðfélagsfræðinemi
9. Knútur Árnason, eðlisfræðinemi
10. Sigurjón Benediktsson, tannlæknanemi
11. Halldór Árnason, verkfræðinemi
12. Mörður Árnason, íslenskunemi
13. örn Gústafsson, viðskiptafræðinemi
14. Gestur Guðmundsson, þjóðfélagsfræðinemi
15. Páll Stefánsson, líffræðinemi
16. Þorsteinn Gunnarsson, sálfræðinemi
17. Einar Már Sigurðsson, guðfræðinemi
18. Sveinn Rúnar Hauksson, læknanemi
19. Áskell Kárason, sálfræðinemi
20. Ingimar Ingimarsson, heimspekinemi
21. Gunnlaugur Stefánsson, þjóðfélagsfræðinemi
22. Guðlaugur Ellertsson, viðskiptafræðinemi
23. Gestur Jónsson, laganemi
24. Garðar Mýrdal, eðlisfræðinemi
25. Jóhann Tómasson, læknanemi
26. Halldór Ármann Sigurðsson, íslenskunemi.
Til Háskólaáðs:
Erling Ólafsson, íslenskunemi.
Til vara:
Gizur Gottskálksson, læknanemi.