Stúdentablaðið - 28.07.1974, Síða 6
Háskóla íslands
Árleg skráning stúdenta hefst 2. september n.k.
og lýkur 30. sama mánaðar. Stúdentar eru ein-
dregið hvattir til þess að skrá sig snemma og
bíða ekki síðasta skráningardags eins og alltof
margir hafa gert undanfarin ár. Öll úrvinnsla og
skipulagning verður auðveldari þegar tímanlega
er mætt til skrásetningar.
ínu fyrir siðaskiptin, en«3a var
það ekki hægt tæknilega, vegpa
Rætt við Björn Þorsteinsson
Framhatd af 5. síðu.
fram á 15. öld. Við getum sagt
að það hafi verið afrek að
menn gátu numið land í útsæn-
um á opnum farkostum, en þeir
sigldu ekki nema rétt um há-
sumarið og bara aðra leiðina á
sumri. Víkingaaldarskip hafa
aiis ekki dugað að mínu viti tii
neinna stórflutninga, og bylting
í siglingatækni verður í byrjun
15. aidar, þegar Engiendingar
komu hingað. Landnám íslands
markar auðvitað tímamót í
siglingasögfunni. Þá var fyrst
sigit, navígerað yfir úthafið.
Ég veit ekki betur en ís-
lendingar hafi verið mjög sjálf-
stæðir allar miðaldir. Þeir settu
konungum sínum alitaf skiiyrði
og reyndu að tryggja nauðsyn-
legustu siglingar, eftir því sem
tæknin hrökk til, en íslending-
ar gátu ekki annast þær sjálfir.
Hvenœr lýkur þá miðöldum
á IslandiP
Við getum sagt að þeim ijúki*
dálítið snöggt með fyrsta her-
Jeiðangrinum til landsins, þegar
'Ogmundur biskup var tekinn
árið 1541. Þá urðu siðaskipti og
breytt konungsvald í Evrópu, og
Danir og Norðurlandamenn
höfðu tryggt sér tækni tímans.
ÞEGAR ÖLL FJÁRLÖG
HLJÓÐUÐU UPP Á
MENNINGU
Verður þá ekki til allmikill
menni-ngarmunur milli alþýð-
unnar annars vegar og danskrar
og hálfdanskrar yfirstóttar hins
vegar?
Einhver munur verður. En
því má ekki gleyma að Danir og
danskir konungar snobbuðu fyrir
íslenskri menningu. Þagar siða-
skiptin voru innleidd í Dan-
mörku og Noregi, þá var Biblí-
an gefin út í 3000 eintökum,
að því er mig minnir, handa
norska ríkinu, en Guðbrandur
Þorláksson fékk styrk, 1000
ríkisdali, til að gefa út 500 ein-
tök á íslensku, og þetta er
glæsiiegasta bók, sem gefin hef-
ur verið út hér á landi til þessa,
enda samsvarar styrkurinn sem
veittur var til útgáfunnar um 10
milljónum króna í dag. Yfir-
stéttin hér eða Danir kröfðust
þess aldrei að íslendingar töluðu
dönsku. Það kom aldrei til mála
þegar alþingi hófst að nýju að
þar yrði talað annað en íslenska,
— konungsfuUtrúa leyfðist að
tala dönsku.
Þú vilt sem sé ekki fallast á
að hér hafi ríkt mikil menning-
arleg niðurlceging á tímum ein-
veldisins?
Nei, en það verðut mikil
breyting við siðaskiptin. Fjárlög
íslenska ríkisins á miðöldum
lújóðuðu—öl 1 -' upp. -á.^menningu,
runnu að langmestu leyti til
kirkjunnar. Menning okkar er
nær öll frá kirkjum komin. Þá
voru klaustrin skólar og bóka-
gerðarstofnanir, og handritin er
flest hægt að rekja til þeirra.
En við siðskiptin urðu klaustr-
in tekin beint undir konungs-
valdið og gerð að innheimtu-
stöðvum fyrir það. Meira að
segja voru tekjur biskupastól-
anna skertar. Við siðskiptin er
nokkur hluti þessara tekna tek-
inn undan, og við látnir taka
þátt í almennum kostnaði við
ríkisheildina, hernaðarútgjöld og
öðru. Áður var skatturinn lág-
ur og lenti að miklu leyti í
höndum íslenskra umboðsmanna.
Að mínu viti voru íslendingar
ekki skattpíndir af konungsvald-
Að þínu mati var hér aldrei um
að rceða menningarlega niður-
lcegingu af hálfu Dana. Samt
töldu talsmenn sjálfstceðisbarátt-
unnar á nítjándu öld að svo
hefði verið. Þeir vildu gera u-pp
við þennan tíma og litu þá
mjög aftur til fjarlcegrar fortíð-
ar.
Á nítjándu öld eru menn að
berjast fyrir breyttu stjórnar-
fyrirkomulagi, miðað við það
hálfgerða lénsveldi sem áður
ríkti. Það var ekkert sérkenn-
andi fyrir íslendinga að verða
fornaldardýrkendur, það voru
Danir líka og Þjóðverjar. Menn
höfðuðu til fyrri tíma út frá
þeirri vitneskju sem þeir höfðu
um þá.
AFMÆLISHÁTÍÐ
En hefur það einhverja þjð-
ingu, nú á okkar skynsemdar-
tímum að höfða til fortíðarinn-
ar, til dcemis í okkar eilífu
sjálfstceðisbaráttu?
Fortíðin verður lifandi á með-
an við búum hér með íslenskan
veruleika allt í kringum okkur.
Þá höfðar það til okkar hvern-
ig mönnum vegnaði á hverjum
tíma. Þess vegna erum við menn
að við höfum eitthvert minni og
meira að segja langminni, sem
við búum okkur til með alls
konar lestri og lærdómi.
Nú hafa íslenskir stjórnmála-
menn reynt að höfða til ein-
hverrar þjóðlegrar uarfleifðar
Þannig hefur verið reynt að sýna
fram á að á Þjóðveldisöld hafi
ríkt mikil einstaklingshyggja
með þjóðinni og eins hitt að þá
haji félagshyggjan verið allsráð-
andi. A það einhvern rétt á sér
að höfða á þann hátt til fortíð-
arinnar?
Á ekki allt tilverurétt sem
hægt er að nota? Engin þjóð
hefur efni á því að eitthvert
tímabil hennar slitni úr tengsl-
um við nútíðina. Hins vegar
er það fráleitt, ef við ætlum að
fara að byggja upp sósíalískt
eða kapítalískt þjóðfélag, að
leita að fordæmi aftur í öldum,
áður en sósíalismi eða kapítal-
ismi var til.
Nú er þjóðhátíð fyrir dyrum.
Getum við vcenst þess að loún
verði eitthvað annað en skraut-
sýning?
Við stöndium kannski dálítið
illa að vígi núna, þar sem mark-
miðið er ekki annað en að halda
hátíð. 1874 voru íslendingar að
uppgötva sjálfa sig, að þeir væru
einhver „þjóð". Þetta var þeim
HOLARÍ*
SETNING
PRENTUN
OFFSETPRENTUN
BÓKBAND
HÓLAR HF.
Bygggarði - Seltjarnarnesi
Símar 24216 - 24217 - Pósthólf 7014
nýtt, að koma saman, og stjórn-
arskráin er eitt stórmerkas-ta
skref se-m stigið er í okkar sögu.
Ég lít á Alþingishátíðina 1930
sem eins konar opnunarhátíð fyr-
ir fullvalda ríki. Hingað var
boðið fulltrúum annarra þjóða
eins og til að sanna að hér
væri orðið til fullvalda ríki.
Lýðveldishátíðin hefur 1-íka aug-
ljóst markmið.
En 1100 ára afmæli er fyrst
og fremst a-fmælishátíð. Hún er
líka öðrum þrasði einhver áróð-
urshátíð, útávið, t. d. vegna
landhelgisdeilunnar.
Þú hefði kannski kosið það
heldur að hátíðin hefði verið
tengd einhverjum áþreifanlegum
áfanga, s. s. brottvísun banda-
ríska herliðsins?
Já, en þá hefði þurft að setja
það fram áður. Þar tókst ekki
betur til en til var stofnað.
Ýmsir hefðu heldur kosið að
hátíðin hefði verið tengd ein-
hverjum áþreifanlegum aðgerð-
um. Þannig hefði verið gaman
ef við sagnfræðingar hefðum lagt
saman í að gera upp t. d. sjálf-
stæðisbaráttuna.
En þú vilt sem sé ekki meina
að þessi þjóðhátíð tengist nein-
um sögulegum tímamótum.
Nei, hún er bara afmæli og
vonandi ánægjuríkt afmadi!
Viðtalið átti gg
Ferðirnar brugðust
Framhald af forsíðu. *..<
bil 25 sínefélagar höfðu skráð
sig í ferðina.
Allir þessir samningar voru
munnlegir, en hvort sem um
er að kenna reynsluleysi í bísn-
ess eða einhverju öðru, vildi
Sínestjórnin treysta því að
staðið yrði við gefin loforð.
Örfáum dögum áður en ferðin
skyldi farin sögðu svo þeir
Sunnumenn, að af henni gæti
ekki orðið.
Sú ástæðan sem gefin var
fyrir þvl að ferðinni var af-
lýst var sú að hópurinn væri
of lítill, hann gæti ekki fyllt
vélina. Samkvæmt reglum um
slíkar hópferðir má aðeins fara
með einn hóp í hverri ferð.
Væri þetta allt saman gott og
Saga íslenskrar stéttabaráttu (framhald)
IMOráut-UR. REJÞPISK
H3ÓK. Q ’, KAU-46/ SAMAkt
'flEtUA/íiTTa
blessað, ef Sunnu-forstjórinn
hefði ekki sagt stjórn Síne, að
hægt væri að fljúga með náms-
mennina ásamt öðrum hópum.
Stjórn Síne hafði unnið
mikið starf að því að tryggja
þessar ferðir, kynna þær með-
al námsmanna erlendis og taka
við pöntunum. Jafnskjótt og
Ijóst var að ekki yrði af
Sunnuferðinni hófst stjórnin
handa og tryggði far hjá
Flugfélaginu fyrir hluta hóps-
ins og tókst þannig að firra
mestu vandræðunum. Þau ó-
þægindi sem námsmenn erlend-
is urðu fyrir hljóta að skrifast
á reikning ferðaskrifstofunnar,
því að mistök Sínemanna
liggja í því einu að treysta
þeim loforðum sem gefin
höfðu verið.
Stúdentar hljóta að draga þá
lærdóma af þessum viðskipt-
um, að ekki megi lengur hika
við að hefja undirbúning að
sjálfstæðum ferðarekstri stúd-
enta. Á formannaráðstefnunni
í Færeyjum, sem haldin var
áður en úrslit lágu fyrir í Síne-
fluginu, áttu formaður og
gjaldkeri Stúdcntaráðs viðræð-
ur við forystumenn norrænu
stúdentasambandanna um
ferðamál. Buðu jreir fram að-
stoð sína við að tryggja ís-
lenskum stúdentasamtökum
þátttöku í hinum geysiöfl-
uga ferðaskrifstofurekstri stúd-
cntasambandanna á Norður-
löndum. Er hcldur ekki seinna
vænna að hefja undirbúning
að ferðaskrifstofurekstri næsta
ár, þar sem mörg Ijón eru á
veginum. s.s. strangar reglur
um ferðaskrifstofur og leigu-
flug.
gg
6 — STÚDENTAB* AÐIÐ
t