Stúdentablaðið - 01.05.1983, Qupperneq 1
4. tbl. 59. árg. maí 1983
stúdentablaóíó
Ljóða-
þáttur
— bls. 11
Slúður
— bls. 10
Islenska
fyrir
erlenda
stúdenta
— bls. 4
Málþing
heimspeki-
deildar
— bls. 5
Skoðana-
könnun
í vetur kom upp sú hugmynd í
ritnefnd Stúdentablaðsins að efna
til könnunar meðal nemenda í H.í.
Nokkrir nemendur í félagsfræði
tóku að sér framkvæmdina. Tekið
var 200 manna tilviljunarúrtak og
um helgina 16.—17. apríl var
hringt í þá sem í úrtakinu lentu.
Tókst að ná í 157 manns, sem eru
tæplega 80% heimtur. Spurt var um
ýmis atriði er varða aðstæður nem-
enda og auk þess var forvitnast
litillega um kosningaþátttöku, vin-
sældir öldurhúsa o.fl.
Könnunin hafði ekki mjög hnit-
miðað eða ákveðið mark, var miklu
fremur samansafn ósamleitra
spurninga sitt úr hvorri áttinni. Þetta
verður til þess að könnunin er siður
nothæf til að draga af henni vís-
indalegar ályktanir. Til þess að
segja eitthvað má þó halda því
fram að hún sé gerð til að lýsa hin-
um almenna stúdent. Með því að
keyra saman hina ólíkustu hluti má
svo pæla í hinu og þessu varðandi
stúdenta.
Því miður gefst ekki rúm til þess
að birta neinar niðurstöður í þessu
blaði, en I haustblaði verður fjallað
ítarlega um könnunina. Til ábend-
ingar fyrir komandi sumarleyfi má
þó geta þess að Óðal, Holly og
Borgin virðast njóta hvað mestra
vinsælda meðal stúdenta.
Aðalfundur Vöku
vakti heimsókn flóttamanns
frá Afganistan mikla athygli.
Sú nýbreytni var tekin upp að
fá utan að komandi frum-
mælendur á félagsfundi. Þeir
Birgir ísl. Gunnarsson, Frið-
rik Sóphusson og Sigurður
Skagfjörð mættu á fund um
húsnæðismál og lánamál
stúdenta. Prófessor Þórólfur
Þórlindsson og Jónas Haraldz
voru frummælendur á fundi
er bar yfirskriftina „Framtíð
Háskólans". Alls voru haldnir
um 10 félagsfundir á starfsár-
inu og voru flestir þeirra mjög
vel sóttir.
Að loknum aðalfundi var
farið á veitingahúsið Lækjar-
brekku þar sem dýrindis veig-
ar voru framreiddar og sátu
Staurar þar í miklu yfirlæti
frameftir kvöldi.
Aðalfundur Vöku var hald-
inn þann 16. apríl s.l. Á fund-
inum lét af störfum stjórn
Sigurbjarnar Magnússonar og
ný stjórn tók við. Formaður
var kosinn Gunnar Jóhann
Birgisson. Aðrir í stjórn eru:
Haraldur Guðfinnsson vara-
formaður, Jóhann Baldursson
ritstjóri Vökublaðsins, Jakob
Bjarnason gjaldkeri, Baldur P.
Erlingsson ritari, Lína G.
Atladóttir meðstjórnandi og
Stefán Kalntansson með-
stjórnandi.
í skýrslu fráfarandi for-
manns kom fram að starfsemi
Vöku hefur verið mjög öflug
síðast liðið ár og ber þar hæst
aðalfund EDS (Samtök lýð-
ræðissinnaðra stúdenta í
Evrópu) er haldinn var í
Reykjavík seinasta sumar. Þá
Rúnar
Guðbrandsson
í hlutverki sínu.
r
(Ljósm.: Asdís)
Sjá grein bls. 2
Nýr
meirihluti
íSHÍ
í annarri og þriðju viku apríl sá
hinn nýi meirihluti Stúdentaráðs
dagsins ljós. Á einni viku sömdu
umbar og vinstri menn málefna-
samning sem birtur er á blaðsíðu
4—5 hér í blaðinu. Að samnings-
gerð lokinni komu menn sér saman
um stöður. Stjórn stúdentaráðs er
nú svo skipuð: Aðalsteinn Stein-
þórsson (FUS), formaður, Guð-
varður Már Gunnlaugsson (FVM)
varaformaður, Valgerður Jóhanns-
dóttir (FVM) gjaldkeri og aðrir i
stjórn eru Elsa Friðfinnsdóttir
(FUS), Jóna Hálfdánardóttir
(FVM) og Baldur Ragnarsson
(FUS). Aðalfulltrúi stúdenta í
stjórn LÍN er G. Pétur Matthíasson
(FVM), og aðalfulltrúi í stjórn ÆSÍ
er Baldur Ragnarsson.
í stjórn FS hafa og orðið
mannabreytingar. Þar eiga
stúdentar þrjá fulltrúa, af fimm.
Hina tvo skipa Háskóli og
Menntamálaráðuneytið. Einn full-
trúi stúdenta skipar stöðu for-
manns og skal sá vera útskrifaður í
einhverju háskólafagi. Þá stöðu
skipar nú Kristín Ástgeirsdóttir,
sagnfræðingur og kvennafram-
boðsmanneskja. Er hún valin að
tilhlutan vinstri manna. Aðrir full-
trúarstúdenta eru þeir Kristján Ari
Arason (FVM) og Þorsteinn Hún-
bogason (FUS).
— sjá mál-
efnasamning
á bls. 6-7
og grein
á bls. 3
Nokkur atriði
um húsnœðismál
Háskóla Islands
Fjöldi nemenda í Háskóla
íslands verður á þessu ári um
4.000. Eins og fram hefur
komið í fréttum hefur aðsókn
aukist mikið á síðustu árum.
Nær þriðji liver tvítugur Is-
lendingur tekur nú stúdents-
próf í stað sjöundi hver árið
1970 auk þess sem þeir sem
eru 20—25 ára eru fleiri en
áður.
Eigið húsnæði háskólans er
um 21.500 m2. Af þessu rými
eru 18.700 m2 í varanlegum
húsum á háskólasvæði. Þá
hefur háskólinn húsnæði á
leigu víðs vegar um bæinn,
samtals rösklega 5.000 m2.
Samkvæmt breskum staðli
ætti háskóli af okkar stærð og
að teknu tilliti til skiptingar
nemenda milli deilda að vera í
um 50.000 m2 í stað 26.500 m2.
Sjá viðtal við rektor og greinar á bls. 8-9
Ein Be-
richt fiir
die Aka
demie
r Aðalfundur Félags
umbótasinnaðra stúdenta
Á aðalfundi Félags um- Dan Brynjarsson varafor-
bótasinnaðra stúdenta sem maður
haldinn var í F.S. þann 30. Jóhann Jónsson ritari
apríl s.l. voru eftirfarandi Elín M. Lýðsdóttir gjaldkeri
menn kosnir i trúnaðarstöður Eiríkur Jóhannsson
á vegum félagsins: meðstjórnandi
Stjórn: F.h. Félags umbótasinnaðra
Þorsteinn Húnbogason for- stúdenta
maður Herdís Herbertsdóttir J