Fréttablaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 24. september 2009 3
Á eftir klæðnaðinum er auðvitað næsta mál að líta á fylgihlutina fyrir veturinn sem
geta annað hvort fullkomnað
heildarútlitið eða bjargað fólki
frá stórum tískuslysum. Gæða
jafnvel stöku sinnum gömul föt
nýju lífi. Ódýr tískuföt má bæta
upp með flottum skóm eða réttu
töskunni. Belti með áberandi
sylgju, til dæmis, eða falleg
perlufesti dregur athyglina frá
uppruna klæðanna.
Fyrir nokkrum árum héldu
stórar handtöskur innreið sína
á markaðinn og því stærri því
betri voru þær. Í vetur eru þær
enn í boði þó einnig megi finna
smærri töskur. Meira sést af
ansi frúarlegum töskum sem
kannski einhvern tíma hefðu
verið kallaðar kerlingarlegar
en margir hönnuðir eru afskap-
lega kvenlegir í hönnun sinni
sem einkennist af stíl áranna
1950-1960 og þessar töskur því
fullkomnar til að setja punktinn
yfir i-ið. Þeir sem hafa aðgang
að fataskápum hjá ömmu eða
frænku gætu sjálfsagt komist
í feitt.
Í nýjustu útgáfu franska
tískublaðsins Elle er það rautt
sem á að vera mál málanna
í töskum og skóm á komandi
vetri. Bæði hárautt en einn-
ig bæði ryðrautt og dumbrautt.
En það er eins og með fötin að
það er ekki eins mikið af litum í
boði þegar í búðirnar er komið.
Annars eru fylgihlutirnir
dökkir eins og klæðnaðurinn
almennt en í bland ber talsvert
á dökkbláum litum og fjólubláu
sem og brúnu.
Stígvél upp á mið læri „cuiss-
ards“ eins og það heitir upp
á frönsku, eru aðalnýjungin í
skótaui og ganga sumir hönn-
uðir svo langt að taka upp eftir
veiðistígvélum, reimuð um mitt-
ið líkt og með sokkabandabelti
(Prada). Gætu reyndar verið
ótrúlega góð í stormi og hríð
uppi á Íslandi. Þessi háu stíg-
vél er hægt að finna á öllu verði
allt frá 150 evrum hjá Zöru upp
í yfir þúsund evrur hjá fínu
tískuhúsunum. En stundum er
ódýri varningurinn ekki alveg
í toppgæðum og Zörustígvélin
láta stundum lit á lærum
viðskiptavinanna.
Annars eru það áfram gríð-
arlega þykkbotna háhæla skór
sem eru hvað helst móðins,
sumir með pinnahælum úr
málmi. Einnig eru skór með
fylltum botni hærri en nokkru
sinni og verður að skoða mynd-
ir af þeim til að skilja hverju
þeir líkjast, bæði hjá Kenzo og
Balenciaga.
Svo er fjöldi ódýrra lausna í
boði sem tískuskríbentar hafa
verið uppteknir af að kynna á
ýmsu verði. bergb75@free.fr
Rauður vetur
Undir gospeltónum og andlegri tón-
list gengu fyrirsætur tískupallinn
á enda á tískusýningu Christop-
hers Kane á tískuvikunni í London
í vikunni.
Fyrir þremur árum vakti hinn 27
ára gamli Kane athygli á tískuvik-
unni fyrir níðþröng klæði í rokkara-
stíl. Nú var lína hans fyrir vorið og
sumarið 2010 mun kvenlegri og
sætari. Þar bar helst á dúkkuleg-
um kjólum í bleiku, ljósbláu, súkku-
laðilitu og bláköflóttu. Kvenleik-
ann dró Kane fram með púffermum
og áherslu á barminn en þó með
mjög íhaldssömum hætti. Öll fötin
þóttu vel útfærð, fallega saumuð
og greinileg natni lögð í minnstu
smáatriði.
Kane þykir kunna vel að mynda
sérstaka stemningu á tískusýn-
ingum sínum sem þótti einnig vel
til takast nú með sérstæðu tón-
listarvali. Inntur eftir því hvaðan
hann fengi innblást-
ur fyrir fötin nefndi
hann þrennt. Af mynd
sem hönnuðurinn
sá af Nancy Reagan
á flötinni fyrir utan
hvíta húsið, kvikmynd-
inni Lólítu og
frá heimild-
armynd sem
hann sá um
Jonestown-
fjöldamorðin í
Gvæjana árið
1978.
Á fremsta
b e k k á
tískusýn-
ingunni
sátu
meðal
ann-
ars
Don-
atella
Versace sem réði Kane þegar hann
var enn nemi, Anna Wintour, rit-
stjóri bandaríska Vogue, Tops-
hop-mógúllinn Sir Philip Green og
rússneska ofurfyrirsætan Natalia
Vodianova. solveig@frettabladid.is
Köflótt sakleysi
Hinn ungi tískuhönnuður Christopher Kane sýndi á sér nýjar og
mýkri hliðar á tískuvikunni í London nýverið. Í stað ruddalegra, níð-
þröngra fata voru komnir sakleysislegir kjólar í anda Lólítu.
Christopher Kane hannar föt fyrir Top-
shop-keðjuna. NORDICPHOTOS/GETTY
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Burberry upp á
sitt besta
FÁGAÐIR LITIR OG FORM EINKENNA
VOR- OG SUMARLÍNU BURBERRY.
Tískuhönnuðurinn
Christopher Bailey
hefur starfað fyrir Bur-
berry síðan 2001
og þykir eiga mik-
inn þátt í velgengni
tískuvörufram-
leiðandans. Hann
sýndi það og sann-
aði með vor-
og sumarlín-
unni sem var
kynnt í Lond-
on um miðjan
mánuðinn
en hún gaf
klæðnaði
stórstjarna
á borð
við Gwyn-
eth Palt-
row, Victoriu
Beckham,
Emmu Wat-
son, Liv Tyler
og Mary-Kate Olsen,
sem mættu á sýn-
inguna, ekkert eftir.
Pastel- og jarðlit-
ir voru gegnum-
gangandi
ásamt rykk-
ingum á pils-
um og yfir axlir
sem þykja ein-
staklega vel
útfærðar. Eins
voru stuttar
aðsniðnar
kápur, sem
fyrirsæturnar
báru í sumum
tilfellum sem kjóla,
einkennandi. - ve
Sé kápunni hneppt
virkar hún eins og
kjóll.
Pilsið hjá
Christ op-
her Bai-
ley þykir
einkar vel
heppn-
að.
Á slóðinni www.th.is er hægt
á aðgengilegan hátt að
skoða úrvalið og gera
góð kaup!
Það er alveg óþarfi að láta
sér verða kalt á höndunum
Fjölbreytt úrval af leðurhönskum af öllum stærðum og gerðum!
Blaðberinn
bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...