Fálkinn


Fálkinn - 04.07.1931, Blaðsíða 4

Fálkinn - 04.07.1931, Blaðsíða 4
4 P Á L It I N N Frú Helga Andersen verður sjötug 9. þessa mánaðar. Frú Arndís Jónsdóttir, Lauga- veg 101 verður 60 ára 10. júlí Frú Sigrún Sigurðard., Akra nesi, varð 70 ára 28. júní. Ágúst Th. Blöndal sýsluskrifari á Seyðisfirði verður sextugur á morgun (5. júlí). Myndin hjer að ofan er af kirkjunni á Slórólfshvoli, sem bygð var í fyrra sumar og vígð í lok síðasta árs. Að ofan sjest vest- urgafl kirkj- unnar og hús til hægri, sem er samkomu- staður hrepps- ins en að neðan suðurhliðin. Er kirkjan hin vandaðasta og hitunartæki í henni eins og nú er orðið í flestum nýjum lcirkjum. Er hún úr timbri og smíðuð af Guðm. Þórðar- syni frá Lamba læk í Fljótshlíð. Sóknin er lítil og kirkjan sem þarna stóð áiður varð ekki gömul, svo að sjóður Stórólfshvolskirkju var ekki stór, en gjafir gáfust til hinnar nýju kirkju frá ýmsum, einkum gömlum sóknabörnum. Hjer birtist mynd af þátttalc- endunum í hinni síðuslu Is- landsglímu. Eins og kunnugt er orðið hrepti Sigurður Gr. Thor- arensen íslandsbeltið og kongs- heitið eins og fyr og sjest hann yst til vinstri á myndinni. Lagði hann alla fimm glímumennina, sem hann álli við. Næstur hon- um að vinningatölu var Georg Þorsteinsson, sem sjest yst til hægri á myndinni. Fjell hann fyrir Sigurði einum og voru jafnframt dæmd verðlaunin fyrir fegurðarglímu. Glíman var háð 21. f. m. Magnús V. Jáhannesson, fá- tækrafulltrúi verður fertugur 8. júlí. Nýlega kom ungur maður og stúlka inn í búð í Chicago. Stúlkan bað um að gefa sjer glas af vatni. Kaupmaðurinn geklc inn i bakher- bergi að sækja vatn, kom síðan fram aftur, en um leið og hann rjetti glas- ið að stúlkunni, tók hún fram skamm byssu og miðaði á kaupmanninn og hrópaði: peningana eða lífið! Siðan tóku þau alla peninga lcarlsins og óku síðan burt í biðfreið, sem beið þeirra fyrir utan búðina. Breskur maður, Idris Lewis að nafni ætlar í næsta mánuði að reyna að synda yfir Erinasund. Það ein- kennilega er, að maðnrinn hefir trje- fót vinstra megin. En hann kvað vera fyrirtaks sundmaður og það er ekki alveg óhugsandi að lionum tak- ist að synda yfir lil Frakklands. -----------------x---- Yngingar-galdramaðurinn Voron.ov prófessor, ætlar að liætta við apa- garðinn sinn á landamærum Frakk- lands og Ítalíu. Honum þykir orðið of dýrt að ala apana, enda fer. þeim fækkandi, sem láta prófessorinn „yngja sig“, svo hann liefir tapað miklu fje nú upp á síðkastið. :—-x----- Mr. Wood í New í York vann um daginn um tvær miljónir króna í lcappreiða-veðmáli. Skattanefndin komst að þessu skömmu áður . en maðurinn átti að fá peningana borg- aða út, og tilkynti honurn að hann yrði áð borga helminginu í skatt. Litlu síðar frjetti lögreglan úm þetta lán mannsíns og lilkynti honum að vinningurinn yrði gerður upptækur, þar eð Bandaríkjaþegnum væri bann- að að veðja , peningum við erlendar veðreiðar. Sama dag keypti mr. Wood sjer farmiða yfir landamærin til Kanada og skrifaði þaðan eftir miljónunum. -— -----x--- Vellauðug lcona i Wellingbrough á Englandi gleymdi um daginn tösk- únni sinni á bekk í skrautgarði í London. í töskunni voru 7000 krón- ur rúmar í peningum. AtVinnulaus niaður fann töskuna og skilaði henni undir eins á lögreglustöðina. Lög- reglan sagði manninum að fara með töskuna til eigandans og það gerði svo maðurinn. „Kærar þakkir, sagði frúin, og rjetti manninum tvær krón- ur í fundarlaun! •---x——- Samkvæmt opinberri skýrslu fyrir- fóru 10000 manneskjur sjer í Þýska- landi sjer á siðasta ári. Það eru um 44 manns á dag. ----x---- Það bar við um daginn i IHinois í Bandaríkjunum að verið var að sýna leikrit. í miðju leikritinu hvíslar einn leikendanna að stúlku á leiksviðinu: Ef þú ekki kemur með mjer i kvöld, þá drep jeg þig. Hún svaraði engu, cn lítilli stundu síðar dró hann upp skaminbyssu og slcaut stúlkuna. .Hann afsakar sig með því, að hann hafi ekki vitað að skammbyssan .var hlaðin, og líklega sleppur hann með þá afsökun. Ritstjóri að viðlesnasta skopblaði Bandarikjanna, framdi um daginn sjálfsmorð. Hann ljet eftir sig brjef og í þvi stóð: Jeg hefi verið hraustur ált mitt líf og er orðinn frægur fyrir teikniugar mínar. Jeg liefi grætt mik- ið af peningum og er rikur maður. Jeg hefi elskað og verið elskaður. Hvers get jeg óskað mjer frekar? Jeg liefi enga ástæðu til að lifa leng- ur. Koniið i Gleraugnabúðina á Laugáyeg 2, skoðið og reynið. Verð frá 8,50. Ennfr. Tjöld og útilegúáhöld, kompásar, hnífar og dolkar. — Gleraugu. 1

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.