Fálkinn - 12.01.1935, Síða 1
16 siflnr 40anra
A HELLISHEIÐI
Hellisheiði er sú fjallvégur á fslandi, sem mest umferð er gfir, bæði sumar og vetur. Hinar fólksmörgu sveitir austanfjalls,
Árnessýsla og Rangárvallasýsla sækja flestar nauðsynjar sínar lil Reykjavíkur og selja þangað mestan hluta afurða sinna.
Fyrrum fóru nálega allir þungavöruflutningar yfir Hellisheiði fram vor og haust, en síðan bændur fóru að framleiða nýmeti
fyrir markaðinn í Reykjavík er orðin brýn þörf á daglegum samgöngum, einkum síðan mjólkurbúin austanfjalls fóru að
starfa og selja nýmjólk til Reykjavíkur. En þái vill stundum komasá þröskuldur í veginn, sem enginn fær ráðið við: snjórinn.
Og þó að allmiklu fje sje varið til snjómoksturs og snjóbílar hafi verið keyptir til að halda uppi ferðum um heiðina þá er
það ekki einhlítt. Hinsvegar gleðjast Reykvíkingar í aðra röndina þegar snjór er kominn á Hellisheiði, því að þar er besta
skíðasvæði þeirra.