Fálkinn - 12.01.1935, Side 5
F Á L K I N N
5
Scotts og Blacks, þá komust
þeir til Ástralíu (Port Darwin)
á hádegi á mánudag og höfðu
þá verið alls 2 sólarhringa, 4
tíma og 38 mínútur á leiðinni
frá London til Ástralíu. Ilve
geypilegt met þetta liafi verið
má ráða af því, að enski flug-
maðurinn Ulm, sem hafði
hraðamet áður á leiðinni milli
Englands og Ástralíu, var 6 sól-
arhringa 17 tima og 45 mínútur
á leiðinni og þótti flug hans mik
ið afrek fyrir aðeins einu ári.
En ennþá voru þeir Scott og
Black ekki komnir á áfanga-
staðinn. Þeir áttu enn eftir tvo
áfanga, frá Port Darwin til
Charleville og þaðan til Mel-
bourne, sem var lokaáfanginn.
I Indlandshafi hafði annar
hreyfill þeirra bilað, svo að
þeir urðu að fljúga á öðrum
hreyflinum einum í 2% tíma.
Gerðist þetta yfir Timor-hafinu
og seinkaði þeim mjög. Hjeldu
þeir um eitt skeið að þeir yrðu
að fresta fluginu og leita að-
gerðar á hreyflinum og að það
tæki svo langan tíma, að Holl-
endingarnir yrðu fyrstir.
En Scott og Black urðu fyrst-
ir til Melbourne, eins og þeir
höfðu verið fyrstir á fyrri á-
fangastaðina. Þeir voru um tvo
sólarhringa og 23 tíma á leið-
inni -— og leiðin sem þeir fóru,
telst mönnum til að hafi verið
18176 kílómetrar. Meðalhraði
þeirra hefir því verið um 257
kílómetrar á klukkustund og
er þá meðtalinn viðstöðutimi
þeirra á leiðinni, svo að flug-
hraðinn liefir verið talsvert
meiri.
Að vísu voru viðstöðurnar
stuttar. Þeir fjelagarnir liöfðu
ekki sofnað dúr á allri íeiðinni!
Og þegar húrra-hrópin kváðu
við frá þeim 30.000 manns, sem
liöfðu safnast saman á flugvell-
inum í Melbourne til að bjóða
sigurvegarana velkomna, þá
heyrðu þeir þau ekki. Bæði
voru þeir svo úrvinda af svefn-
leysi og þreytu og svo var hitt,
að sífeldur hávaðinn í hreyfl-
unum hafði gert þá heyrnar-
lausa um sinn.
Fregnin um þennan glæsilega
sigur barst eins og eldur i sinu
um allan heim. Enginn liafði
búist við slíku flugafreki — að
tekist gæti að lælcka flugtíma-
metið miþi Englands og Ástr-
alíu um meira en hehning.
Meðal þeirra, sem fyrstur
varð til að bjóða ensku sigur-
vegarana velkomna var lioli-
enski konsúllinn í Melbourne.
Hann hafði með sjer hlómvönd
frá kgl. loftferðafjelaginu lioll-
enska, sem gert hafði út þá
Parmentier og Moll, og átti að
efhendast sigurvegaránum —
hver sem liann yrði. En Ilollend
ingarnir ljetu eklci lengi á sjer
standa. Þeir komu til Charle-
ville í Queensland, næstu á-
fangastöðvarinnar við Mel-
bourne, þremur tímum eftir að
Neðst á myndinni sjest ,,Irish Swoop“, vjel Irans Fitz Maurice, sem þóttist eetla að slá met Scotts. Vjel-
in er Ballance-ilugvjel. sama tegund og komst einu sinni sjóleiðis á hafnarbakkann í Reykjavík, þegar
verið var að leita að Courtoul Grænlandsfara.
Mynclin er tekin á Mildennall-flugvellinum, þegar flugvjelarnar voru að Ijetta i Ástralíuflugið, og sýnir
kvikmyndarana að verki.
Scott og Black höfðu lent í Mel-
bourne. Og í raun og veru
vakti flug þeirra engu minni
athygli en sigurvegaranna,
vegna farþeganna sem þeir
höfðu með sjer. Svo mikið er
vist, að Englendingar sjálfir
öfunduðu þá af flugafrekinu,
og Bobinson forstjóri enska
loftferðafjelagsins Imperial
Airways falaðist þegar eftir að
fá keypta flugvjel þeiiTa Holl-
endinganna og hauð í hana
400.000 krónur. Þessi vjelateg-
und er smíðuð af Plessmans-
verksmiðjunum i Amsterdam
og þykir hafa sýnt ágæti sitt í
þessu mikla þolflugi.
Amerikumennirnir Turner
og Pangborn komu til Mel-
bourne á líkum tima og Holl-
endingarnir og var einnig tekið
með miklum fagnaðarlátum af
mannfjöldanum. En nú voru
Melbourne-húar orðnir þreyttir
og áhuginn farinn að dofna.
Þegar fjórða flugvjelin kom
þangað, með þá Jones og Wal-
ler voru aðeins nokkur hundr-
uð manns á flugvellinum til að
Danski þáttakandinn í Ástralíuflug-
inu, Michaei Hansen liðsforingi.
taka á móti þeim. Og svo leið
langur tími þangað til litlu
flugvjelarnar, sem aðeins tóku
þátt í hinu svonefnda „handi-
cap-flugi“ fóru að tínast að.
En þeim var næsta lítil eftirtekt
veitt. í þeim hóp voru m. a.
tvær flugvjelar af sömu gerð
og Jolm Grierson flaug á vest-
ur yfir ísland og Grænland i
sumar, og einn danskur maður
var í þeim hóp, Michael Hansen
liðsforingi, sem flaug á svo-
nefndri Desoutier-vjel. Alls
voru sjö vjelar í ferðinni, sem
ekki tóku þátt í samkepninni
um aðalverðlaunin, en ekki
komust þær allar til Ástraliu
en strönduðu margar i Indlandi.
Þeir Scott og Black verða rík-
ir menn á þessum flugsigri.
Fyrst og fremst fá þeir aðal-
verðlaunin, sem eru yfir 220.000
krónur. En svo hafa þeir feng-
ið rausnarlegt tilboð um fyrir-
lestrahald, blaðaskrif, kvik-
myndanir og þessháttar, í svo
ríkum mæli, að þeir þurfa
Framh. á bls. 11.