Fálkinn


Fálkinn - 27.02.1937, Blaðsíða 2

Fálkinn - 27.02.1937, Blaðsíða 2
2 F Á L K 1 N N ------- GAMLA BÍÖ ----------- Mannorð hennar i hættn. Efnisrík og fjörug gamanmynd frá Metro-Goldwyn-Mayer. Aðalhlutverkin leika: MYRNA LOY, WILLIAM POWELL, JEAN HARLOW, SPENCER TRACE. Myndin sýnd bráðlega. Það er ljóta ástandið i skrifstofum og prentsmiðju „Evening Star“. Blað- ið er komið hálfa leið gegnum press- una,og eitthvað lítið af þvi farið út, en ritstjórinn nýfarinn til að halda brúðkaup sitt, þegar það vitnast, að grein, sem í blaðinu er, um dóttur auðmannsins Allenbury, muni fá blaðinu meiðyrðamál á sig, ef út komist. Pressan er stöðvuð í snatri, og hann verður að flýta sjer í skrif- stofuna, án þess að geta gert brúð- urinni aðvart. Þegar þangað kemur, vitnast það, að vinir Allenburys hafa náð í eintak, sem út hefir komist af blaðinu, og hafa þegar gert ráðstaf- anir til málshöfounar (skaðabóta- krafa 5 mitjónir dollara), enda þótt hann sje annars sjálfur staddur i London. Haggerty ritstjóri sjer, að eina ráðið við þessu er að sanna sökina (að hafa tekið eiginmann frá konunni) á auðmannsdótturina, og til þess er með mikilli fyrirhöfn náð í Bill Chandler, sem þykir hafa ráð undir rifi hverju. Á hann að fá Connie — auðmannsdótturina — til að sýna sjer ástaratlot, en svo á konan hans að koma að þeim. Nú er bara sá gallinn á, að Bill á enga kon- una, en úr því er bætt með þtií, að hann er gefinn saman við konuefni ritstjórans, og síðan sendur af stað til Englands til þess að verða þeim mæðginum samferða vestur um haf, en spæari einn er með honum, til þess að sanna á þau sökina ef svo vill verkast. Svo fer samt um sjó- ferð þá, að ekkert rekur né gengur, en seinna er hann boðinn með auð- manni til að veiða silung. Læst hann vera útfarinn í þeirri list, en kann hinsvegar ekkert, og er það einn bezti þátturinn í myndinni, þegar hann er við silungsveiðarnar. Auðvit- að keppir hann að marki sínu, eftir beztu getu, en málið snýst dálítið óvænt í höndum hans, og hefir ýmis- legt í för með sjer, sem alls ekki var með í ,.planinu“. En ekki má taka af fólki spenninginn með því að rekja það hjer. Myndin verður sýnd á GAMLA BÍÓ. Blaðaeigendafjelagið í London hef- ir nú loksins fengið leyfi til að senda Ijósmyndara til Tower að taka mynd af krúnugimsteinunum, sem þar eru geymdir. Þar eru kórónurnar, gull- eplið og veldissprotinn og ýmsir af- ar dýrir demantar. Dýrgripir þessir eru almenningi til sýnis, en ekki hefir fengist leyfi til að taka mynd af þeim. þar sem þeir eru geymdir í Wakefield Tower, fyr en nú. Pjetur Jónsson fyrv. kaupm., Grettisg. 12 varð 75 ára 20. þ. m. Baden-Powell áttræður Þessi ágæti æskulýðsleiðtogi, sem fyrir löngu er orðinn heimsfrægur fyrir skátafjelagsskapinn, sem hann skóp, varð áttræður þ. 22. febr. síð- astliðinn. Hann dvelur nú meðal skáta í Ind- landi og þangað bárust honum kveðj- ur og heillaóskaskeyti svo þúsundum skifti á afmælisdaginn. Eitt af þeim lieillaóskaskeytum var frá Bandalagi isl. skáta. í öllum blöðum heimsins birtast nú myndir og frásagnir um þennan merkilega mann, sem ellin virðist ekki ætla að geta yfirbugað, en starfar enn af fullu fjöri fyrir málefni skáta og gengur oftast á stutt- buxum. Á alheimsmóti skáta, sem haldið verður í Hollandi að sumri komandi munu skátar frá öllum heimi — einnig frá íslandi — hylla sameiginlega höfðingja sinn, Baden- Powell og jafnframt halda upp á 30 ára afmæli skátahreyfingarinnar. í Höfðanýlendu hvarf fyrir skömmu níu ára gömul telpa, sem var úti með öðrum börnum. Heitir hún Geralldine Hector og foreldrar hennar eru ensk. Hún hafði farið upp í fjall til að tína blóm og vilst þar frá hinum börnunum. Þrátt fyrir mikla leit hefir hún ekki fundist og nú er haldið, að apar — sem þarna er mikið af — hafi náð í hana og haft hana á burt með sjer. Einu eftir hana kjólnum hennar. ----x--- Dýrafræðingurinn Hachet-Souplet í París leggur það fyrir sig, að venja dýr á ýmislegt, sem er gagnstætt eðli þeirra. Þannig hefir hann vanið stór- an svatan kött á það að kafa niður í vatn til þess að ná sjer í fisk. Kett- irnir eru vatnshræddir og það tók prófessorinn átta mánuði að venja köttinn á að sækja æti sitt ofan i vatnið. Nýlega varð Peter Knutzen for- stjóri ríkisjárnbrautanna í Danmörku fimtugur. Hefir hann endurskapað járnbrautir Dana og bætt þær svo, að danskar járnbrautir standa mjög framarlega og hefir hraði þeirra verið aukinn stórlega. Rekstur braut- anna hefir borið sig miklu betur i tíð Knutzens en áður var. Hjer er mynd af Iínutzen i glugganum á ein- um af hinum svonefndu „lyn“-vögn- um, sem hann hefir innleitt. ----x----- Fastir starfsmenn útvarpsfjelags- ins enska, British Broadcasting Com- pany, eru 2500 og fá samtals 50 miljón krónur i kaup. ----x----- Karlar sem hirtu gamlar tuskur í Bjalistok í Póllandi voru nýlega að losa af vagni og urðu þá varir við Sokkbol, sem þeim fanst einkenni- lega þungur. Við nánari athugun fundu þeir í sokknum 1000 gulldoll- ara, 5000 gullrúblur frá keisaratím- unum og fleiri gullpeninga. Eigandi fanst enginn að þessum verðmætum, svo að tuskukarlarnir skiftu þeim á milli sín. ----x----- Hagskýrslur sýna, að 6 hver erfið- ismaður i Bandaríkjunum lifir beint eða óbeint á bifreiðaiðnaðinum. ----x----- í Mariposa Grave i California er trje, sem er 2500 ára gamalt og afar stórt. Það er holt að innan og er notað fyrir bílskúr. -------- NÝJA BlÖ. -------------- Viktoria. Mikilfengleg „dramatisk", kvik- mynd samkvæmt hinni heims- frægu ástarsögu með sama nafni eftir norska stórskáldið KNUT HAMSUN. Myndin er tekin í Noregi af þýska félaginu,, Mínerva film“. Aðalpersónurnar: Viktoriu, dótt- ur barónsins og skáldið Johann- es Vendt leika: LOUISE ULLRICH og MATHIAS WIEMANN. Aðrir leikarar eru: Alfred Abel, Erna Morena, Erika Dannhoft og fl. Viktoria er ein af tilkomumeslu og fegurstu ástarsögum, er skrif- aðar hafa verið í heiminum. Kvikmyndun sögunnar hefir tekist afburða vel og er talin stærsti sigur þýskrar kvik- myndalistar um margra ára skeið. Það munu vera um 25 ár síðan skáldsaga Hamsuns, Viktoría kom út á íslensku og var svo alment lesin og dáð, að varla þarf að efa, að öll- um þorra manna sje forvitni á að sjá söguna á kvikmynd, og mest furða, að sú kviltmynd slculi ekki vera komin fyrir löngu. En svona er það nú samt, að nú fyrst er hún að koma. Myndin er tekin hjá Min- erva Film i Bertín, og aðalhlutverkið VIKTORIU leikur Luise Ulrich, en Jóhannes er leikinn af Mathias Vie- mann. Auk þeirra koma þarna fram aðrir þektir leikarar, svo sem Erna Morena, Alfr-ed Abel og margir fleiri. Vegna þess, hve efni sögunnar er þekt af öllum almenningi, verður það ekki rakið lijer, en i stað þess má lauslega drepa á, hvað frændur vorir Danir segja um hana. B.T. kallar myndina hvorki meira nje minna en fegurðar-opinberun, og Berlingske Aftenavis segir, að Mathias Wie- mann hafi leyst af hendi snildar af- reksverk með leik sínum. i,Hann var ekki einungis hamsunskur — hann var norskur .... Jeg hef aldrei sjeð betri leik“. Fleira mætti upp teija, en alt er það í þessum dúr. Margír, sem um myndina rita, segja, að hún sje fyrirboði þess, að þýsk kvik- myndalist sje aftur á framfaravegi, Framhald á bl. 15. Kouise Ullrich í hlutverki Viktoriu, menjarnar sem fundust voru slitur af

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.