Fálkinn - 28.04.1939, Page 3
F Á L K 1 N N
3
Kvenfimleikaflokkur Knattspyrnnfjeiags Reykjaviknr.
í lok marsmánaðar fór hjeðan að
heiman kvenfimleikaflokkur frá K.R.
undir stjórn Benedikts Jakobssonar
fimleikakennara, til Kaupmanna-
hafnar til að sýna þar fimleika á
norræriu móti. í flokknum voru 14
stúlkur á aldrinum 15—18 ára. —
Svo hafði verið ákveðið að á þessu
móti sýndi hver flokkur aðeins
einu sinni. En íslenska kvenflokkn-
um einum hlotnaðist sá heiður auk
finsks karlmannaflokks að sýna
tvisar á mótinu.
Er þetta gott dæmi um það, hv
flokkurinn þótti góður.
Flokkurinn hafði tvær sýningar í
Svíþjóð, Málmey og Lundi, og fekk
ljar mikla aðsókn og ágætar viðtök-
ur. Auk mótsýninganna tveggja hafði
flokkurinn sýningu í Forum í Kaup-
mannahöfn, fyrir mörg þúsund á-
horfendum, og hlaut ágæta dóma
lijá stórblöðum Kaupmannahafnar.
Flokkurinn kom heim siðastliðinn
laugardag með Gullfossi, og var hyll-
ur af íþróttafólki bæjarins og öðr
um bæjarbúum.
Á myndinni sjest flokkurinn á-
samt kennara sínum og fararstjóra.
A/(V)W/V(W
T. v.: Sverrir kemur ciö marki. — T. h.: Hin
sigursæla sveit K. R.: Oddgeir Sveinsson, Sverrir
og Indriði Jónsson.
Víðavangshlaup tþróttafjelags Reykjavíknr.
Víðavangshlaupið fór fram á sum-
ardaginn fyrsta að þessu sinni eins
og að undanförnu. Hefir það nú
l'arið fram í 24 ár og þykir jafnan
einn af merkari íþróttaviðburðum
bæjar.ins.
Þátltaka var nú fremur dauf. —
Keppendur 17, frá fimm fjelögum:
Glimufjelaginu Ármann, íþróttafjel.
Reykjavíkur, Knattspyrnufjel. Rvik-
ur, íþróttafjelagi Kjósarsýslu og
Ungmennafjelaginu „Stjarnan“ i
Dalasýslu.
Að þessu sinni var hlaupin alveg
ný leið, sem svipuð var l)ó að vega-
lengd og undanfarið. Ivept var um
verðlaunabikar, og hlaut það fjelag
hann að verðlaunum, sem liafði
jafnbesta þriggja manna sveit. Auk
þess hlutu þeir þrir keppenda, er
t'yrstir komu í mark, yerðlaun. —
Sverrir Jóhannesson úr K. R. varð
fyrstur. (Er það i fjórða sinn í
röð, sem hann vinnur Víðavangs-
hlaupið). — Rann hann skeiðið á
13,45 min. Annar varð Haraldur
Þórðarson úr ungmennafjel. „Stjarn-
an“ á 13.52 mín., og þriðji Indriði
Jónsson úr K. R. á 13.59 mín. Indr-
iði er ekki nema 19 ára og er efni-
legur hlaupari.
1\. R. sveitin vann hlupið. Átti
1. og 3. mann, eins og áður er getið
og 9. mann, Oddgeir Sveinsson. •
Næst að stigafjölda varð „Stjarnan."
Fyrsta plómutrjeð var gróðursetl
i Ameríku árið 1870, en síðastliðið
ár framleiddu Bandaríkjamenn 237,-
000 smálestir að þurkuðum plómum
eða sveskjum. Framleiðslan er orðin
svo mikil, að siðastliðið ár hirtu
menn ekki ávextina af nærri öllum
trjám, því að hún var óseljanleg.
En nú hafa visindamenn gert tilraun
ir með að nota sveskjur til skepnu-
fóðurs og liafa þær gefist ágætlega,
einkum til að fóðra á þeim lcýr.
Sveskjulausir íslendingar fara að
öfunda kýrnar í Ameríku!
KONUNGSHJÓNUNUM FAGNAÐ I
SKAGEN.
Alveg nýlega voru 25 ár liðin frá
því að dönsku konungshjónin komu
Guðm. Jónsson, skósm., Vest-
mannaeyjum, varð 'iO ára 23.
þ. m.
Helgi Guðmundsson brjóstsyk-
ursgerðármaður, varð 50 ára
Í3. þ. m. Sama dag átti Helgi
25 ára starfsafmæli hjá firmanu
Magnús Th. S. Blöndahl h/f, en
37 ár eru liðin síðan liann byrj-
aði að starfa við brjóstsykurs-
gerð H. Tli. A. Thomsens, sem
fyrstur manna mun hafa byrjað
að reka hjer brjóstsykurs- og
sæti ndaverksmiðju.
fyrst í opinbera heimsókn til Skagen,
en síðan liafa þau jafnan farið þang-
að á hverju ári og dvalið þar i
nokkra daga.
í tilefni af þessu aldarfjórðungs-
afmæíi heimsóttu þau gamlar stöðv-
ar og var þeim fagnað innilega af
Skagenbúum. Á myndinni sjást kon-
ungur og drotning ganga milli hópa
hins fagnandi fólks.
Jimmy Hirst.
í Wakefield liggur greifadæmið
Raxvcliffe, sem fáir muna nú. En
einu sinni var það nafn á allra
vörum. Þvi þar bjó Jimmy Hirst,
hinn ókrýndi konungur Ra-wcliffe.
Jimmy Hirst var sonur rikra for-
eldra og fekk ágæta mentun og var
að því kominn að verða háskóla-
prófessor, þegar hann varð ástfang-
inn af fátækri stúlku, en þar með
var frægðarbraul hans lokið. Ástar-
hamingja hans var ekki varanleg,
þvi að ekki höfðu þau verið saman
marga mánuði, þegar hann varð
liess vís, að trygð stúlkunnar var
ekki af besta taginu. Þetta varð svo
tnikið áfall fyrir hann, að hann
gerðist mannfælinn og beindi allri
ást sinni að dýrunum.
Dag nokkurn, þegar hann var úli
að ganga rakst hann á vilt naut.
Hirst ávarpaði nautið með lilýlegum
orðum og svo undarlega brá við,
að það varð honum óðara þjált.
Hirst fór með nautið heim til sín
og tamdi það til reiðar. Og á þess-
um reiðskjóta vann hann eitt veð-
hlaupið á fætur öðru. Til að byrja
með hló fólk að honum, þegar hann
kom á bola, en það hætti þvi þegar
Hirst vann öll fyrstu verðlaunin
á hann!
Ást Hirst á dýrunum jókst ár frá
ári. Vinur hans gaf honum sveita-
setur, og þar hafði hann svin, björn,
ref, apa og fleiri dýr. Auk þess sem
bann hafði mikið yndi af dýrum,
þótti honum mjög gaman að setja
saman smáflugvjelar. Og einu sinni
lagði hann upp í loftið í flugvjelinni
sinni, en sú ferð fór báglega, sem
ekki heldur var neitt undarlegt við.
Hann hrapaði niður, fjell ofan í
djúpan skurð, þar sem hann braut
flugvjelarvængina.
Alt til æfiloka var Jimmy Hirst
sorgarbarn. Síðustu peningana sína
gaf hann tveimur hljóðfæraleikur-
um, sem skuldbundu sig til að spila
einhver fjörug lög við kistuna hans!
Útbreiðið Fálkann.