Fálkinn


Fálkinn - 24.11.1939, Blaðsíða 11

Fálkinn - 24.11.1939, Blaðsíða 11
F Á L K I N N 11 i I k K vikmy ndaf r j et tir LEIKKONA — Á MÓTI VILJA SÍNUM. Þýska leikkonan Heli Finkenzeller segir svo frá: „í læröa skólanum hafði jeg gamlan og skrítinn kenn- ara, sem við kölluðum „Litla púka“. Það var hans mesta yndi að lesa Jjóðalanglokur uppliátt og láta okk- ur gera það líka. En enginn gat gert „Litla púka“ til hæfis. Hann var strangur, þegar hann var að leið- rjetta okkur og hreytti altaf ein- liverjum ónotum í mig. Loks varð jeg svo leið á þessu, að jeg einsetti mjer að gera honum til liæfis, og æfði mig timunujn saman lieima, undir upp- lesturinn. Svo þegar næst kom að mjer, varð „Litli púlci“ stórhrifinn. „Þjer hafið ágæta upplestrargáfu og það er synd ef þjer notið hana ekki i þarfir listarinnar, betur en jeg liefi gert.“ Jeg fór að ráðum lians, og undir eins og skólannum var iokið fjekk jeg m'jer kenslu í framsagnar- list. Og skömmu síðar varð jeg kvik- myndaleikari. Og þetta á jeg alt „Litla púka“ að þakka, enda geymi jeg altaf mynd af honum, sem er verndargrip- ur minn.“ Næsta myndin, sem Heli Finkenz- eller leikur í, heitir „Hjónaskilnað- arferðin“ (Die Scheldungsreise). — Leikur hún þar á móti Victor de Kova. WINDSOR-HERTOGINN. Myndin er tekin á góðgerðadansleik í Cannes, þar sem verið var að safna inn fje til franskra örkumlamanna, og aðsóknin liefði auðvitað orðið minhi, ef það hefði ekki vitnast að hin frægu hjón yrðu á dansleiknum. VALERIE HOBSON TEKUR TIL SINNA IÍÁÐA. Unga stúlkan, sem sýnd er hjer á myndinni, er enska Jeikkonan Val- erie Hobson, sem leikur í glæpa- myndinni „This man is ne'ws1'. í þessari mynd á liún ekki aðeins að vera falleg og segja margt skemti- iegt. Hún á iíka að gera ýmislegt „verklegra" — berja glæpaþrjót í liausinn með hamri og láta brenna sig inni lifandi — eða þvi sem næst. í myndinni gerist það sem sje, að bófar, sem eru að eltast við mann- inn hennar, binda liana við stól og kefia hana. En hún sleppur úr öllu þessu. Á myndinni er hún sýnd ásamt manni sínum. KVENFÓLIKIÐ AÐEINS TIL AMA. Þetta er lögreglumynd, en þó gam- anmynd um leið, en sú tegund mynda á vaxandi vinsældum að fagna. Hefir Columbia gert myndina og lieitir hún „There’s that Woman again“ og er er framhald af myndinni „Theres al- ways wornan". Melvyn Douglas Jeik- ur aðalhlutverkið og Virginia Bruce er konan hans. Sjást þau hjer á myndinni. Douglas er einkanjósnari. Nú er framið innhrot í borginni og liann fær máJið til rannsóknar. Kemst hann von bráðar á sporið. En konan hans hefir orðið fyrri til. Og í á- kafanum flækist hún inn í morð- mál, svo að Douglas* fær nóg að hugsa. Fyrst að hjarga konunni sinni af höggstokknum og svo að ná sjer niðri á þjófunum. NÝASTA NÝTT í PARÍS. Margar sígarettuauglýsingar eru svo skemtilega og einkennilega sam- ansettar, að fundið hefir verið upp á því að nota þær sem fyrirmynd við vefnað. Hjer sjest árangurinn; sjerkennilegur silkikjóll, þar sem öll liusanleg merki eru samankomin í öllum regnhogans litum. DÖKKBLÁR FILTHATTUR MEÐ FJÓLUBLÁU BANDI. Hjer sjest einn af hinum klæði- legu hauslhöttum. Hann er með há- um kolli, en það sem setur aðalsvip- inn á hann er slaufan í hnakkánum. En Jjað er ekki nóg að bera klæði- legan hatt; takið eftir fallega háls- klútnum, svínaskinnshönskunum og Chamberlains-regnhlífinni. ÞESSI FALLEGI KJÓLL, sem sýnist vera úr röndóttu efni, er saumaður úr silkiböndum og blúnd- um (milliverkum). Undirkjóllinn er að sjálfsögðu svartur. BLÖNDUR ERU ALTAF f TÍSKU. Þetta er einn af Madame Schiapar- ellis smekklegu eftirmiðdagskjóJum. Hann er úr svörtu „marocain" með „bolero“-sniði, og er vestið kantað með hvítum kniplingum, sem fara sjerlega vel við kjólinn.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.