Fálkinn


Fálkinn - 21.11.1941, Side 4

Fálkinn - 21.11.1941, Side 4
4 F Á L K I N N BÆNDAUPPREISNIN í ÞÝSKALANDI OG DANMÖRKU P^ANSKIR bœndur hafa eigi unað vel hag sínum undir stjórn Þor- valdar Staunings og stundum verið að halda œsingafundi og lieimta kjarabætur. Á þessum fundum vitna þeir stundum í Skipper Klement og hændauppreisnina á siðskiftaöldinni. En fáir muna nú Skipper Klement þó að vísu hafi nýlega verið reist standmynd af honum í Álaborg, á 400 ára afmæli þess að hann var hengdur. HVER VAR SKIPPER KLEMENT? Það hefir jafnan verið einskonar dularhjúpur yfir þessu nafni og enn- þá eru menn eigi sammála um hvers- konar persóna hann hafi verið og hvort hann eigi standmyndina skilið. Klement var tekinn af Hfi sem upp- reisnarmaður, sem afvegaleiðari lýðs- ins, er hann liafði æst upp gegn aðli og Ijensherrum. Það voru Ijens- herrarnir sem bælu þessa byltingu niður og handtóku Klement og lögðu hann á gaddabrík, fylgismönnum hans til varnaðar. Skipper Klement. var hvorki greifi, landeigandi nje' veiðimeistari heldur nýtísku bylt- ingasinni, sem var svo ógæfusamur að vera nokkrum hundruð árum á undan sínum tíma. Á hans tíð hafði heimurinn ekki tekið þeim efna- hagslegu stakkaskiftum að hann væri viðbúinn að skilja hugsjónir Klem- ents. Siðbótin — hin andlega barátta gegn rómversku kirkjunni — átti rót sína að rekja til efnahagsbreyt- inga einstaklinganna í þjóðfjelaginu. Það var farið að bóla á iðnaði i Ijensherralöndum miðaldanna. Stór- kostlegar uppgötvanir höfðu verið gerðar (púðrið og prentlistin) og verslunin, sem elti iðnaðinn, hafði myndað borgarastjett, sem var í and- stöðu við ljensmannarjettindin. Púðr- ið olli þvi, að virkjaborgir Ijens- inannanna voru ekki óvinnandi framar. Prentlistin þýddi, að klerka- sljettin hafði ekki lengur einkarjett á lestri og inentun. Hin byrjandi verkaskifting gerði einnig vart við sig hjá mentamönnunum. Ný lög- fræðingastjett tók embættin frá klerkunum. En undir öllum öðrum stjettum slóðu bændurnir. Á þeim lifðu allar hinar stjettirnar: furstar, aðalsmenn, klerkar, emhættismenn og borgarar. Það kom út á eitt hvort bóndinn var þræll fursta, aðals- manns, klausturs eða bæjarfjelags. Hann var allstaðar vinnudýr, ofur- seldur dutlungum húsbænda sinna. Lengstum varð hann að þræla fyrir Jiá, en af því, sem hann aflaði i frí- stundunum varð hann að greiða tí- und, rentur, skatta, lierkostnað. Hann T. v.: Trjeskurðar- mynd af jóskum uppreisnarmanni. — T. h.: Johannes Ranz, hershöfðingi jjriggja Danakonunga.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.