Fálkinn - 08.01.1943, Síða 3
F Á L K I N N
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM
Ritstjóri: Skúli Skúlason.
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested
Skrifslofa:
Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6
Blaðið kemur út hvern föstudag
Allar áskriftir greiðist fyrirfram
HERBERTSpren/.
Skraddaraþankar.
Sú var tí'ðin, að ekki var um ann-
að meira talað hjer á landi en „á-
standið<l svokallaða, en ]>að orð
táknaði í stystu máli lausiæti ís-
lenskra kvenna. Móðursjúkir karl-
ar og konur ætluðu að rifna ai'
vandlætingu og lögreglan fór að
telja Ijettúðardrósirnar og komst
upp í nokkur þúsund. En gamlir
hórkarlar gerðust Farísear, stað-
næmdust á strætum og gatnamótum
og börðu sjer á brjóst og töluðu
grátklökkir um spillinguna.
Nú minnist enginn á þetta ástand
framar. Það er gleymt eins og gam-
all fjárkláðafaraldur. En það minn-
ast líka fáir á annað ástand, sem þó
er í rauninni umhugsunarvert, engu
síður en hitt.
Saga síðustu þrjátiu ára liefir sýnt
okkur, að ísland kemst ekki af, -—
er ekki bjargálna — nema á óheil-
brigðum tímum. Rökrjett ályklun af
þeirri reynslu er sú, að ef ekki
verði haldið uppi ófriði i veröldinni
á nokkurra ára fresti, þá geti þjóð-
in sagt sig til sveitar, eða lagt sig
fyrir og „farið að deyja“, eins og
Job gamli.
íslendingar græddu talsvert fje i
síðustu styrjöld. En áður en varði
var þjóðin orðin staurblönk. Hún
gat ekki framleitt vörur fyrir úl-
lenda markaði, nema með reksturs-
halla, liún varð að senda menn til
Englands til þess að taka lán á lán
ofan. Rikið og bankarnir notuðu
lánstraust sitt upp i topp. Útvegs-
fyrirtækin, sem ekki nutu aðstoðar
bankanna, urðu að leggja árar í bát.
Núverandi styrjöld er ekki lokið,
en samt er orðin ber sú óáran, sem
í íslensku mannfólki býr. Þó að
söluverð íslenskra afurða hafi stór-
liækkað þá er nú svo komið, að
stöðvun ýmsra framleiðslufyrirtækja
er þegar gengin í garð. Við hrúgum
að vísu upp innstæðum erlendis, og
það er gott, út af fyrir sig, en
hversu lengi endast þær til framfær-
is þjóðinni, ef atvinnufyrirtækin
stöðvast?
Atvinnuvegir íslendinga eru á ó-
heilbrigðum grundvelli. Þeir eru með
hitasótt, sem drepur þá ef ekki
veruð að gert í snatri. Sjórinn
kringum ísland er talinn fiskauðug-
astur í heimi. En samt borgar sig
ekki fyrir togarana að sækja fisk-
inn. íslenskir bændur hafa mest
landrými og ódýrast jarðnæði allra
bænda i heimi. En samt geta þeir
ekki framleitt kjöt nema svo dýrt,
Bræðurnir frá Skógum.
Þessir fjórir bræður og bændaöld-
ungar mega heita að liafa enst ó-
venjulega vel, og hafa þó hvorki
hlíft sjer við hættum nje erfiði um
æfina. Hvað liætturnar snertir þá
má geta þess, að þrir þeirra hafa
alla æfi verið nágrannar Jökulsár á
Sólheimasandi og liklega farið hana
oftar en flestir núlifandi menn, en
jafnan haft betur í viðureigninni
við þetta mannskæðasta vatnsfall
landsins. Og útræði hafa þeir óg
stundað öðrum þræði frá hafnlausri
suðurströndinni.
Bræðurnir fjórir eru nú rúmlega
77 ára að meðaltali, en systur þeirra
tvær, Guðrún og frú Anna Jónsdæt-
ur 7514 árs. Alls voru systkinin sjö
talsins, en eitt þeirra Valgerður,
andaðist i bernsku, og mátti það
heita óvenjulega litið i þá daga af
svo stórum brnahóp.
Bræðurnir eru allir vel ernir og
hittust hjer í Reykjavik í vetur og
var þá mynd þessi tekin af þeim.
Þar eru (talið frá vinstri) Gissur
Jónsson í Drangshlíð, sem er yngstur
bræðranna, fæddur 15. desember
1868, en næstur er Ólafur í Sólheim-
um, f. 25. nóv. 1867. Þá kemur Hjör-
leifur í Skarðshlið, fæddur 5. april
1865 og loks aldursforsetinn, Magn-
ús í Klausturhólum í Grímsnesi,
fæddur 18. maí 1861. Samtals eru
þeir bræðurnir 308 ára og missiris
gamlir. Hafa þeir allir verið forustu-
menn, hver í sinni sveit og haft á
hendi trúnaðarstörf fyrir sveitafje-
lagið svo sem hreppstjóra-, oddvita-
eða sýslunefndarmannsstörf. Og
heimili þeirra hafa borið af fyrir
rausn og myndarbrag.
Eldri systirin, Guðrún er fædd
20. ágúst 1862 og sú yngri, frú Anna
10. september 1872. Eru þær þvi
samtals yfir 150 ára og systkinin
öll sex samtals 459 ára, eða 76% árs
að meðaltali. Skyldi vera til annar
jafnstór systlcinahópur eldri á land-
inu?
Ormum Sverrisson frá Efri-Ey,
nú á Kaldrananesi, Mýrdal, varð
90 ára 7. þ. m.
að það er óseljanlegt á erlendum
markaði. Og smjerið er svo dýrt,
að flytja verður inn smjör frá Can-
ada, til þess að gefa ágóðann af sölu
þess með íslenska smjörinu. Hvar
lendir nú þetta?
Örnólfur V aldemarsson, út-
gerðarm. og kaupm. á Suður-
eyri í Súgandafirði, varð 50
ára 5. þ. m.
Er miðstöð verðbrjefaviðskiftanna.
Frú Ólöf Lárusdóttir, Kirkju-
bóli, Vestmannaeyjum, varð 80
ára 19. des. s.l.
Friðjón Jensson, tannlæknir á
Akureyri, varð 65 ára 6. þ. m.
Bogi Benediktsson, verslunarm.
varð 65 ára 2. þ. m.
Eirikur Jónsson, skósmiður,
Njálsg. 52, verður 65 ára 19. þ.m.