Fálkinn - 15.10.1943, Page 1
16 ifltar.
Frá liðinni tíð
Hve margir unglingar í Reykjavík kannast við svona mynd? G áslepputrönurnar með röðum af vandlega hirtum góðfiski, sem
því miður hefir verið „tekin úr umferð“ í höfuðstaðnum. Myndin er ein þeirra, sem minnir fullvaxta fólk á, hve tímarnir
eru fljótir að breytast. Það er orðið að máltæki, að „við lifum á öld liraðans“. Það gera að vísu allar siðmenningarþjóðir, en
sjerstakíega kemur hraðinn hart niður á þeirri þjóð, sem hafði, svo að segja, staðið í stað í mörg hundruð ár. — Allir eru sam-
mála um að fagna hraðanum og lcalla hann „framför“. En hitt er víst að einmitt hraðinn leggur í auðn, ár frá ári, svo margt
gott, þjóðholt og þjóðlegt, að vandamál fer að verða úr. Nú er hætt að flytja út fullverkaðan fisk og ekki einu sinni hálfverk-
aðaii. En ekki eru nokkur ár síðan að íslenskur saltfiskur var talinn besti saltfiskurinn í heimi. Svona breytast tímarnir.
Ljósm. Þorst. Jósepsson.