Fálkinn - 26.11.1943, Síða 1
16 síður.
Þungur róður
Ilinn ágæti talsmciður íslenskrar sjómensku, Sveinbjörn Egilson, harmaði það einu sinni mjög í blaðagrein, að síðan vjel
bátar og togarar hefðu rutt sjer til rúms væru sjómenn farnir að vanrækja tvent, nfl. að kunna að róa og að haga seglum.
Það má vera að þetta hafi mátt til sanns vegar færa, en hitt er víst, að á síðari árum hefir róðraríþróttin komist til vegs
á ný, og má eflaust þakka það kappróðrarmótunum að miklu leyti. Róðurinn er holl íþrótt, sem erlendis cr eigi aðeins iðk-
uð af sjómönnum heldur líka Icyrsetumönnum til að þjálfa 'íkamann. Og mikill sómi þykir það hverju skipi, að eiga áhöfn
þess báts, sem sigur ber úr býtum á Sjómannadaginn. — Hjer á myndinni sjást fjórir ungir piltar, sem kunna að taka á ár-
inni. 'ÍíAl&M' Ljösm.: Vigf. Sigurgeirsson.