Fálkinn


Fálkinn - 16.01.1948, Blaðsíða 7

Fálkinn - 16.01.1948, Blaðsíða 7
FÁLKINN 7 Moshe Shertok helsti pólitíski leiðtogi Jeivish Ageney. Hann er talinn líklegur í utanríkis- ráðherraembætti hinnar nýju Gyðingastjórnar. Per Federspiel, danski fulltrú- inn í Palestinunefndinni. llans bíður nú erfitt verk og torleyst. Dregur til stórtíðinda í Pale- stínu. — Eftir að samþykkt var á þingi sameinuðu þjóðanna að skipta Palestínu milli Ar- aba og Gyðinga, hafa Arabar við austanvert Miðjarðarhaf stofnað til mikilla æsinga. Á myndinni til hægri sést hinn leynilegi arabiski her í Palest- ínu á hersýningu. Á myndinni hér að neðan sést, hvar bresk- ir hermenn hafa bjargað Gyð- ingahóp, sem Arabar hafa ráð- ist á úti á götu í Jerúsalem. Fyrir aftan brynvarða bilinn, sem bresku hermennirnir og Gyðingarnir eru á, sést brenn- andi bíll. Reykjarmökkur stígur upp úr Gyðingahverfi í Jerúsalem þar sem Arabar hafa kveikt í nokkrum húsum. Michael og Anna. — Michael fyrrv. Rúmenínkonungur er nú kominn til Sviss með móður sinni. Hefir hann dvalist í Laus- anne við Geneve-vatnið síðan hann lagði niður konungs- tign og kvaddi föðurlandið. Hér sést hann á bíl á göiu í Laus- anne með Önnu af Bourbon-Parma, unnustu sína við hliðina. Ung stúlka brennir greni til þess að fá góða lykt i herbérgi sitt á jólunum. ■#> Alit meó íslenskum skipum! * Egils ávaxtadrykkir

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.