Fálkinn


Fálkinn - 16.01.1948, Blaðsíða 16

Fálkinn - 16.01.1948, Blaðsíða 16
16 FÁLKINN l TILKYNNING FRÁ SKATTSTOFU REYKJAVÍKUR Með tilvísun til skattalaganna nr. 6/1935, laga um eignakönnun nr. 67/1947 og reglugerðar um eignakönnun frá 26 nóv. 1947 er sérstaklega vakin athygli á eftirfarandi atriðum varðandi skatt- framtal 1948 og eignakönnunarframtal í Reykjavík. 1. Atvinnurekendur og stofnanir í Reykjavík og aðrir, sem hafa haft launað starfsfólk á árinu, eru áminntir um að skila launaupp- gjöfum til Skattstofunnar í síðasta lagi þ. 10. þ. m., ella verður dagsektum beitt. Launaskýrslum skal skilað í tvíriti. Komi það í ljós að launauppgjöf er að einhverju leyti ábótavant, s. s. óupp- gefinn hluti af launagreiðslum, hlunnindi vantalin, nöfn eða heimili launþega skakkt tilfærð, eða heimilisfang vantar, telst það til ó- fullnægjandi framtals, og viðurlögum beitt samkvæmt því. Við launauppgjöf til giftra kvenna skal nafn eiginmanns tilgreint. Sérstaklega er því beint til allra þeirra, sem fengið hafa bygg- ingarleyfi og því verið sendar launaskýrslur, að standa skil á þeim til Skattstofunnar, enda þótt þeir hafi ekki byggt, ella mega þeir búast við áætluðum sköttum. Á það skal bent að orlofsfé telst að fullu til tekna. Um launaupp- gjöf sjómanna athugist, að áhættuþóknun er öll skattskyld, en fæði sjómanna, scm dveljast fjarri heimili sínu, telst eigi til tekna. 2. Skýrslum um hlutafé og arðsúthlutanir hlutafélaga ber að skila til Skattstofunnar í síðasta lagi h. 10. þ. m. 3. Skattaframtali fyrir árið 1948, sem jafnframt er eignakönnun- arframtal, ber að skila til Skattstofu Reykjavíkur í síðasta lagi 31. jan. næstkomandi. Hefir Skattstofan ekki rétt til þess að veita lengri framtalsfrest, hvorki einslaklingum né fyrirtækjum, nema með sérstakri heimild framtalsnefndar, ef sérstaklega stendur á. Ákvarðanir varðandi slíka heimild munu eigi teknar fyrr en undir lok þessa mánaðar, en þegar er ákveðið að sett verða mun þrengri takmörk fyrir frestveitingum en áður hefir tíðkast. Er því þeirri aðvörun beint til allra framteljenda, einstaklinga, fyrirtækja, félaga og stofnana, að skila skattframtali, fyrir næstu mánaðamót, eða reynist það ókleift, að gera ráðstafanir til þess að það geti orðið sem fyrst eftir lok mánaðarins. 4. Allir einstaklingar, sem náð hafa 16 ára aldri á framtalsdag- inn, þ. e. 31. des. 1947, eru framtalsskyldir, eins þótt þeim hafi ckki borist skattframtal eða þótt eign þeirra sé ekki svo mikil að skattskyldu nemi. Undanþágur frá framtali, sem veittar hafa ver- ið sjúklingum, gamalmennum, öryrkjum, styrkþegum o. fl„ eru úr gildi fallnar, og hvílir sú skylda á þeim, eða forráðamönnum þeirra án undantekningar, að útfylla eignakönnunarframtal. 5. Ef börn innan 16 ára aldurs eiga einhverja eign, skal einnig senda sérstakt framtal fyrir þau, ef barnið hefir öðlast eignina fyrir 1. sept. 1946, eða hefir sjálft aflað fjárins. Að öðrum kosti 'teljast eignir barns á framtali foreldra. 6. Þeim, sem hafa í huga að njóta aðstoðar Skattstofunnar við að útfylla framtal skal á það bent, að útfærsla framtalsins tekur nú lengri tíma en verið hefir. Er fólki því ráðlagt að koma sem fyrst til að láta útfylla framtölin, en geyma það ekki til loka mánaðarins, þegar ösin er orðin svo mikil, að bið verður á af- greiðslu. Þess er krafist af þeim, sem vilja fá aðstoð við útfyllingu fram- talsins, að þeir hafi meðferðis öll nauðsynleg gögn til þess að framtalið verði réttilega útfyllt, og ennfremur, að þeir hafi áður lokið nafnskráningu á innstæðum sínum. 7. Auk allra félaga og stofnana, sem skatískyld eru cftir skatta- lögunum, eru nú einnig framtalsskildir hverskonar sjóðir, félög og stofnanir, bú, sem eru undir skiptum og aðrir ópersónulegir aðilar, sem einhverja eign eiga, enda þótt þeir reki ekki atvinnu eða njóti skattfrelsis að lögum. Öllum slíkum aðilum ber því að senda Skattstofunni, í siðasta lagi 1. jan. næstk. skattframtal á- samt reikningum um tekjur sínar og gjöld á árinu 1947 og eignir og skuldir á framtalsdegi. 8. Þess er krafist, að fyrirtæki og einstaklingar, sem vöru- birgðir eiga, skili til Skattstofunnar í siðasta lagi 14. þ. m„ skrá um vörubirgðir sínar h. 31. des. 1947. Skal birgðaskráin sundurliðuð og tilgreint kostnaðarverð og magn á hverri einstakri vörutegund, en hcildarsamtala þarf ekki að vcra fundin. Sé vörubirgðaskrá ekki skilað á réttum tíma telst það til ófullnægjandi framtals, og við- urlögum beitt samkv. því. 9. Að gefnu tilefni er fram tekið, að Skattstofa Reykjavíkur annast ekki um neinar skrásetningar á innstæðum eða vcrðbréfum. Skrifstofa framtalsnefndar, Lindargötu 9, annast í umboði Skatt- stofunnar um skráningu innlendra handhafaverðbréfa og enn- fremur um nafnskráningu á innstæðum þeirra, sem heimilisfastir eru i Reykjavík en eiga innstæður í lánsstofnunum utan umdæm- isins. Ber því að snúa sér þangað með slikar verðbréfatilkynning- ar og innstæðuyfirlýsingar. 10. Framteljendum er bent á að kynna sér sem rækilegast hið nýja framtalsform, svo að þeir geti útfyllt það sem réttast, og sem minnst þurfi að ónáða þá með fyrirspurnum eða kvaðningum eftir á. Ennfremur að veita athygli á refsiákvæðum 18. og 19. gr. laga um eignakönnun, en þau hljóða þannig: 18. gr.: „Nú skýrir maður af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi rangt frá eignum sinum á hinu sérstaka framtali samkvæmt þess- um kafla, og skal þá eign sú, sem hann þannig dregur undan, falla óskipt til ríkissjóðs. 19. gr.: Hver sá, sem af ásetningi gefur rangar, villandi eða ófull- komnar upplýsingar um eignir sínar á hinu sérstaka framtali, svo og hver sá, sem af áseíningi lætur undan fallast að telja fram á rétt- um tíma, skal sæta sektum allt að 200.000.00 krónum. Sömu refsingu skal sá sæta, sem gerist sekur um hlutdcild í slíku broti. SKATTSTJORINN í REYKJAVÍK

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.