Fálkinn


Fálkinn - 26.11.1948, Blaðsíða 14

Fálkinn - 26.11.1948, Blaðsíða 14
14 FÁLKINN VITIÐ ÞER . . . . ? að fyrir seðilinn, sem hérna sést, var hægt að kaupa hús í Kína 1944. Þetta er nefnilega kínverskur 10.000 dollara seðill, en nú eru peningarnir svo verðfallnir, að maður má þakka fyrir ef mað- ur fær einn eMspýtustokk fyrir seðilinn. hvernig ameríska húsmóðirin gerir innkaupin í stórverslun- unum? Um leið og hún kemur inn er henni afhentur ofurlítill vagn með stórri körfu á, og ekur hún honum á undan sér meðfram hillunum og tekur vörurnar sjálf, því að allt er afvegið og innpakkað. Við útgöngudyrnar er það talið saman, sem hún hefir keypt. að gíraffinn berst við hættuleg rándýr? Flestir telja gíraffann ákaflega meinlaust og friðsamt dýr og það er hann líka. En ef hann er áreittur getur hann varist, jafn- vel Ijónum, með því að slá þau með afturlöppunum. Nftt - Xtftt Grænmeti Hraðfryst. Hvítkál Blómkál Gúrkur í pökkum, fæst í flestum kjötverslunum. $ölufélag: grarðyrkjumanna Einholt 8, símar 5836 og 5837. Glæsileg bók Hún heitir „Reykjavík fyrr og nú“, og er gefin út af ísafoldarprent- smiðju. Árið 1937 gaf ísafoldarprentsmiðja út Reykjavík i myndum. Uppistaðan í þeirri bók var myndasafn Jóns heitins Helgasonar biskups. En sú bók seldist á skömmum tíma og er nú í fárra manna eigu. Þessi bók sýnir samfellda sögu Reykjavíkur í myndum. Við sjáum hvernig byggðin vex smátt og smátt — hvernig bærinn breytist úr örlitlu þorpi i fallega nýtísku borg. Við sjáum lifnaðarhætti Reykvikinga fyrr og nú. Áður bar mest á kálgörðum og fiskreitum, hestum og hestvögn- um, Franskmönnum og fiskimönn- um. Nú hefir gróðurinn yfirhönd- ina, iðnaður, verslun og skólarnir setja nú svip sinn á bæinn. Það er gama að bera saman fjör- una fyrrum og nú. Á gömlu mynd- unum má sjá, hvernig þanghaugarn- ir hlaðast upp fyrir framan pakk- liúsin og verslunarhúsin, sem byggð voru niður við sjó. Bryggjurnar eru eins og langir fingur, sem teygja sig út frá ströndinni — en i fjörunni eru hestar á beit. Skútur og bátar liggja þar til lireingerninga og viðgerða, en seglskipin eru eins og breiða út undir eyjar. Gömlu mennirnir gera þar að grásleppunni og inn lijá Sjávarborg' og á Kirkjusandi eru stórar breiður af sólþurrkuðum salt- fiski, sem í þá daga var að mestu sendur suður til Spánar. Maður saknar þó strákanna, sem alltaf voru í þönglastríði og að róta i fjörunni, i von um að finna þar skildinga eftir Sæfinn gamla á sex- tán skóm. Nú eru bryggjurnar horfnar. Hafnargarðarnir tengja saman land og eyjar við uppfyllinguna liggja stór hafskip, og veiðiskipin ösla vélknúin út og inn um hafnaropið. Götulifið er iíka breytt. Það er ekki ófróðlegt að bera saman Lækjartorg Staríið er margt - en vellíðan afkost og vinnuþol er háð þvi að fatnaðurinn sé hagkvæmur og ♦raustur VÖK VDRINttJffADAClEtRtl) ÖSB.AN1DS REYKIAVlK tiUta aMsiato 04 luJlkummMto v*rk«miOio imnai ^iotncu a Utandt EIN ROTTA Á DAG. Lögreglan í Kumming hefir til- kynnt að hver fjölskylda í borginni verði að afhenda lögreglunni eina rottu á dag framvegis, en ella greiða 5000 kínverska dollara (um 15 aura) í sekt. Það er nefnilega talið að rotturnar breiði út kýlapest þá, sem nú gengur i Kumming. Lög- regla greiðir 2000 dollara fyrir hverja rottu, sem afhent er umfram þessa skyldu. fyrrum og nú. Á gömlu myndunum eru þar ferðamenn, sem hafa slegið niður tjöldum sínum til gistingar •— og þótti engum mikið. Á nýjustu myndunum er dansað á Lækjartorgi, þúsundir prúðbúinna æskumanna safnast þar saman og njóta lífsins. Á einni af gömlu myndunum eru konur að koma úr Þvottalaugunum. Þær draga jjvottinn á gamalli kerru. Klæðnaður þeirra er lika annar en nú. Það væri kailaður þurinur þrett- ándi í dag, sem þá var daglegt brauð. I bókinni eru Hka myndir af æsku Reykjavíkur og elli. Falleg glaðleg börn og æskumenn við iþróttir, leik og störf, og gamla fólkið situr i hlýlegu horni og nýtur kyrrðarinnar. Nokkrar myndir eru úr atvinnu- lífi bæjarmanna. Þær sýna að við stöndum að ýmsu leyti fyllilega jafn- fætis öðrum þjóðum, og að iðnað- ur á flestum sviðum er hér í mjög örum vexti. Á saurblöðum bókarinnar eru stór- merkar myndir — fjögur blöð úr sögu þjóðarinnar — auglýsingar, sem festar voru upp hér i Reykja- vík fyrir og eftir valdatöku Jör- undar hundadagakonungs og tvær, sem hann lét sjátfur festa upp, með- an hann réð liér rikjum. Þessi bók, „Reykjavík fyrr og nú“, segir betdr sögu Reykjavíkur en iiægt væri að gera í mörgum þykk- um bindum — og kemur öllum að gagni. Vilþjálmur Þ. Gíslason skóla- stjóri ritar formála bókarinnar, en Páli Jónsson vaidi myndirnar. Bókin ,er gerð i samvinnu við Reýkjavíkur- félagið. Þetta verður jólabókin mín. Gamall fíeykvíkingur. ^ Óskadrykkur þjóðarinnar ^

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.