Fálkinn - 15.04.1949, Side 15
DEAN ACHESON.
GARNER
DRÁTTARVÉL
með 5/6 ha. bensín
mótor á pumpuðum
hjólum eða járnhjól-
um með rjöddum.
Dráttarvélinni
fylgja: Plógur, áburð
urvagn, dislcaherfi og
kartöfluupptakari.
Verð ca. 6£00,00 kr.
fob. bresk höfn.
MOKSTURS
SKÓFLA
Mokstursskófla þessi er byggð
á 25 ha. Fordson dráttarvél
og hleður ca. 20 bíla á klukku-
stund. — Hentug til að moka
mold, sandi, möl o. fl. Einnig
er liægt að fá ýtublað og krana-
bómu, sem lyftir 1 smálest.
Ofangreindar vélar eru til afgreiðslu með sluttum afgreiðslutíma. -— Leitið frek-
ari upplýsinga.
Þ. I»ORGRÍ9ISSON «& €o.
umboðs- & heildverslun, Hamarshúsinu — Reykjavík. Sími 7385. — Símn.: „THCO“
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<>♦♦♦♦<>♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦«
Verð mokstursskóflunnar
er ca. kr. 30.000.00.
Frh. af bls. 2.
kvæmd „ne\vdeal“-áætlun Roósevelts,
en er hann hafði starfað að þvi i
tvö ár tók hann aftur upp mála-
færslustörfin og flutti einkum mál
sem snertu alþjóðarétt, m. a. flutti
hann mál fyrir bæði Norðmenn og
Svía fyrir dómstólnum í Haag. Þeg-
ar heimstyrjöldin síðari skall á fór
liann aftur að starfa fyrir stjórnina
og liafði m. a. mikil afskipti af
láns- og leigufrumvarpinu. Árið
1941 varð hann aðstoðar-utanrikis-
málaráðherra og siðan vara-utanrík-
isráðherra. En 1947 lét hann af því
embætti og ætlaði að setjast i helg-
an stein á búgarði sínum í Adiron-
dacks og stunda blómarækt og vís-
indi. En í janúar var hann skipað-
ur utanríkisráðherra eftir Marshall.
Dean Acheson er mjög liár vexti,
nokkuð suðrænn í sjón og svipar
talsvert til spánskra heldri manna.
Hann hefir lítið yfirskegg eins og
Anthony Eden, og mörgum finnsl
hann líkur honum. Og svo vandar
liann mjög til klæðaburðar síns eins
og Eden. í tómstundum sínum dútl-
ar hann við garðinn sinn, þvi að
hann er mikill blómavinur og hefir
áliuga á garðrækt. Hann er talinn
mestur mælskumaður þeirra, sem
nú sitja í Bandarikjastjórn.
Hann er eindreginn i þvi að slaka
hvergi fyrir Rússum og halda áfram
stefnu þeirri, sem Marshall hóf til
viðreisnar efnahags Evrópu. Hann
telur stefnu Rússa mótast af landa-
girnd og valdafikn, og telur sjálfsagl
að vesturveldin sameinist i eina
heild, sem verði svo sterk, að hætta
á árásarstríði verði útilokuð.
Dean Aclieson hefir gaman af
bókum og safnar frumútgáfum af
gömlum lögfræðiskruddum. Hann
les grískar og latneskar bókmenntir
með miklum áhuga, og talar reip-
rennandi frönsku og þýsku. Hann
hefir gaman af golf. Ef liann hefði
ekki orðið lögfræðingur og lent á
stjórnmálabrautinni mundi hann
hafa orðið bóndi og garðyrkjumað-
ur.
DAMBOBG
Umboðsmenn vorir í Hamborff eru frá 1. apríl 1949:
Tlieodor «& F. Eimbckc,
„Rriigrgfehaiis46,
RaXioisen 5
H.f. nimskipafélag: í§land§.
Rafvélaverkstæði
Halldórs Ólafssonar
Njálsgðtu 112 — Slmi 4775
Framkvæmir:
Allar viðgerðir á rafmagns-
vélum og tækjum.
Rafmagnslagnir f verksm
og hús.
ÞAÐ VAR LYKTIN.
Preslur nokkur var að tala um
fyrir tugthúsfanga og talaði fallega
um iðrun og afturhvarf. Fanginn
lilustaði á með athygli og þegar
presturinn hafði lokið máli sinu
bað fanginn liann um að liafa þetta
yfir aftur, og þegar hann hafði gert
það vildi fanginn lieyra það einu
sinni enn. „Eigið þér svona bágt
með að taka eftir þvi sem ég segi?“
spurði presturinn forviða, en fang-
inn svaraði: „Nei, eiginlega var
það nú ekki það. En það er svo
dæmalaust góð koníakslykt út úr
prestinum.“