Fálkinn


Fálkinn - 07.03.1952, Side 15

Fálkinn - 07.03.1952, Side 15
FÁLKINN 15 Starfsreglur fyrir lánadeild smáíbúðarhúsa Lánadeild smáíbúðarhúsa, sem stofnuð var með lög- um nr. 36 1952, er tekin til starfa og hafa til hráða- hirgða verið seltar eftirfarandi starfsreglur: 1. Lánadeild smáíbúðarhúsa veitir einstaklingnm i kaupstöðum og kauptúnum lán, eftir því sem fé er fyrir hendi i sjóði lánadeildarinnar hverju sinni til hyggingar smárra sérstæðra íbúðarhúsa og einlyftra, sambyggðra smáhúsa, er þeir hyggjast að koma upp, að verulegu leyti með eigin vinnu sinni og fjölskyldu sinnar. Engum veitist lán nema til eigin íbúðar og ekki veitist lán til iiniða, í samhyggingum, sem stærri eru en tvær íbúðir, annarra en þeirra, sem getið er hér að framan. 2. Umsóknir um lán skulu sendar félagsmálaráðuneyt- inu, en tveir menn, er ríkisstjórnin velur, ráða lán- vcitingunum. — Umsókn fylgi eftirtalin skilríki: 1. Lóðarsamningur eða önnur fullnægjandi skilríki fyrir lóðarréttinduin. 2. Uppdráttur af liúsinu, sem reisa á, götunafn og númer. 3. Upplýsingar um, hver.su hátt lán liafi verið tekið eða muni verða tekið út á fyrsta veðrétt í húsinu og hvar það lán er eða verður tekið. 4. Umsögn sveitarstjórnar um Iiúsnæðisþörf um- sækjanda. 3. Landsbanki íslands annast, samkvæmt samningi við rikisstjórnina, afgreiðslu lána þeirra, sem veitt verða, sér um veðsetningar og' þinglýsingar og annast inn- heimtu vaxta og afborgana af veittum lánum. Um- sóknareyðublöð fást aflient í afgreiðslu Landsbank- ans (veðdeild). 4. Lán þau, sem lánadeildin veitir, skulu tryggð með 2. veðrétti í húseign þeirri, sem féð er lánað til. Árs- vextir eru 5% af hundraði og lánstimi allt að 15 árum. Eigi má veita hærra lán á eina íbúð en 30 þús. krónur og eigi má hvila hærri upphæð á fyrsta veðrétti smá- íbúðar, sem lán er veilt til, en 60 þúsund krónur. 5. Eftirtaldir aðilar skulu sitja fyrir lánum til smá- íbúðabygginga: 1. Barnafjölskyldur. 2. Ungt fólk, sem stofnar til hjúskapar. 3. Fólk, sem býr i heilsuspillandi liúsnæði, er ekki verður útiýmt samkvæmt III. kafla laga nr. 44 frá 1946, eða á annan hátt. Þetta tilkynnist hér með þeim, sem hlut eiga að máli. Félagsmálaráðuneytið, 29. febrúar 1952. Steingrímur Steinþórsson (sign.) Jónas Guðmundsson (sign.) í Áíli ineð íslenskum skipmn! FÁLKINN - VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM - Afgreiösla: Bankastræti 3, Reykjavík. Opin kl. 10-12 og 1-6. Blaðið kemur út á föstudögum. Áskriftir greiðist fyrirfram. Ritstjóri: Skúli Skúlason. Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested. — Herbertsprent. 1 I 4 \ I i I x I 1 Karlmannaföt úr erlendum og innlendum sfnum, saumuð með nýj- asta, amerísku sniði. GEFJUN — IÐUNN Iíirkjustræti. SKILNAÐARSÖK. Kona ein í Chicago liefir fengið skilnað frá manninum, því að hann þvingaði hana til að eta kjúklinga og kalkúna á hverjum degi þessar þrjár vikur sem þau voru saman. Hún heitir Leota Ray og er 23 ára. í réttinum sagði hún að hún hefði orðið að éta fuglana á hverjum degi frá því að hún giftist og þangað til hún flutti frá manninum. Mað- urinn var fuglakaupmaður. SÆNSKUR SILFURSJÓÐUR. í Stokkhólmi hefir nýlega fundist all mikið af gömlu sænsku gangsilfri, frá 17. öld. Var það þar innan um ýmislegt gamalt rusl uppi á pakk- húslofti. Málmvirði silfursins er að minnsta kosti 30.000 krónur sænsk- ar, en vitanlega er þessi fjársjóður margfalt meira virði, vegna þess sögulega gildis sem hann hefir. ' f ' Méaddin^ Olíuofnar jœl Borðlampar Hengilampar V'egglampar Gasluktir með hraðkveikju. Allir varahlutir. Verslun 0. ELLINGSEN H.F. Y A \r V v \r \r \r \r \r \r \r \r \r \r \r \r Yr \ r Fyrir SKIÐAFERÐIR munið Verndar gegn kulda og stormi, eykur hin heilnæmu áhrif loft, jg sólar og gerir húð- ina mjúka og fallega. NIVEA fæst allsstaðar

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.