Fálkinn - 28.05.1954, Qupperneq 4
4
FÁLKINN
BROADWAY
spegilmynd Bandaríkjanna
Broadway að næturlagi og eftir hcllidcmbu, svo að enginn sést á götunni.
En ljósaauglýsingarnar frá Hotel Astor, Chevrolct og Hotel Claridge sjá
fyrir birtu á götunni.
ESTUR sem kemur til New Yorlc
og hefir ætlað sér að ganga endi-
langan Broadway og líta vel í kringum
sig, þarf helst að vera góður göngu-
maður. Flesta grunar sem sé ekki að
Broadway, sem liðast gegnum hjarta
Manhattans, er lengsta gata í heimi.
Eigi maður að ganga hana endanna
á milli — en það gera fáir'— yrði
það 30 kílómetra ganga!
Broadway skásker tröllaborgina á
Manhattan. Þetta stræti virðir að vett-
ugi hina stærðfræðilegu nákvæmni,
sem skipulag borgarinnar byggist að
öðru leyti á. Broadway er þrár og
sérvitur og það hefir hann alltaf verið,
enda er hann elsta gata borgarinnar.
Við Broadway tifa og starfa miltjónir
manna. Miltjónir elska og liata Broad-
way. Milljónir tigna liann eða for-
dæma, en liann þekkir ekki dag frá
nóttu, hann lifir aðeins og lijarta hans
stær, og hann er miðdepill Ameríku.
Þessi einkennilegi vegur rekur sögu
sina til ársins 1009. Hudson starfaði
hjá Vestur-Indíafélaginu hollenska, og
áteit að þarna væri hægt að gera góða
höfn. Og hann reyndist sannspár.
Þarna varð síðar stærsta höfn vcr-
aldar.
í Nýju Amsterdam — en svo hét
New York i fyrstu — var byggðin
víggirt. The Wall hét borgarmúrinn
og nafnið lifir enn þó að múrinn sé
hruninn, því að peningagatan Wall
Street lieldur því við. Árið 1635 réð-
ust bæjarbúar í að leggja nýja götu
út fyrir The Wall. Hún var miklu
breiðari en allar eldri göturnar og
þess vegna kölluðu þeir hana Broad-
way — breiða veginn. Þetta var í
fyrstu gert vegna kirkjufólksins og
vegurinn lá að kirkjunni, en von bráð-
ar fóru kaupmenn að byggja meðfram
Broadway, og í 300 ár liefir hann
verið að smálengjast norður á bóginn.
Og nú er bann orðinn 30 kilómetrar
og yfir 6000 byggingar standa við
hann.
Þarna eru skýjakljúfar og trölla-
gímöld, þar eru bankar, skipafélaga-
og vátryggingastórhýsi með þúsund-
um skrifstofuherbergja og tugþúsund-
um starfsmanna. Þar þjóta lyfturnar
eins og örskot milli kjallara og liáa-
lofts um tugi hæða, frá morgni til
kvölds. Og niðri í götugjánni milli
skýjakljúfanna miklu stendur enn
kirkjan gamla, Trinitatis, eins og of-
urlitið kríli í straumharðri elfu um-
ferðarinnar. Það er draumur allra
rómantískra New York-stúlkna að
ganga i hjónaband i þessari kirkju,
en það kostar skildinginn. Sóknar-
nefndin telur sig verða að heimta
of fjár fyrir hjónavígslurnar. Því að
kirkjan stendur á afar dýrri lóð og
verður að greiða geypihá afgjöld og
skatta. En í matartímanum uppúr há-
deginu má sjá fólk leita inn i kirkjuna
til að forða sér um stund úr öllu arg-
inu á götunni og reyna að hvíla sig.
í skrúðhúsinu er fallegt bókasafn, og
þar geta allir fengið léða bók með
sér inn í kirkjuna til að dreifa hug-
anum.
„STREETS“ OG „AVENUES“.
Broadway er heimur fyrir sig. Allt
sem yfirleitt er til i Ameriku af at-
vinnugreinum, kynþáttum og mann-
legum fyrirbærum á einliverja fulltrúa
þar. Þvergöturnar á Manhattan eru
kallaðar Streets, en göturnar 11,
langs eftir eyjunni heita Avenues og
torgin eru kölluð Squares. Við 23.
Street sker Broadway „milljónamær-
ingagötuna", hina frægu Fifth Avenue.
„Herald Square“ er vafalaust vin-
sælasta torg borgarinnar, þar er alltaf
mannþröng eins og þvaga hefði orðið
kringum áflogahunda eða ökuníðingar
rekist á. Þarna eru líka tvö stærstu
vöruhús veraldar: „MACYS“ og
„GIMPELS", sem geta selt manni hvað
sem er — frá títuprjón upp í lifandi
fíl, frá leikfangabíl upp í lysti-
snekkjur.
Við 42. Street byrjaY skemmtana-
hverfið — það sem útlendingar liafa
i huga þegar þeir nefna Broadway og
það sem flestir þekkja úr kvikmyndum
og bókum og blöðum. Þarna breikkar
gatan á báða vegu og heitir þar
„Times Square“, og þar verða Ijósa-
auglýsingarnar að glæsilegri flugelda-
sýningu. Það er blátt áfram undur
hvað Broadway getur boðið af Ijósa-
auglýsingum. Maður sér eldglæring-
ar og allt hringsnýst. Úr öllum áttum
kalla neonljósin: — komið hingað!
Hér er gott að skemmta sér.
Þarna er röð eftir röð af leikhús-
um, skopleikaliúsum og glaumbæjum,
og eins og gimsteinn í öllu þessu
skemmtihafi stendur hið heimsfræga
Metropolitan Opera House, þar sem
aðeins úrval söngvara fær að koma
fram. Neðstu svalirnar i leikhúsinu
eru kallaðar „demantaskeifan“, því
að þar eru stúkur dollaramilljónamær-
inganna. Þeir leigja þær til árs og
borga vel fyrir, og þess vegna getur
Metropolitan borgað frægu söngfólki
vel.
Á þessum slóðum hafa margir lista-
menn, sem síðar urðu heimsfrægir,
komið fram opinberlega i fyrsta skipti.
„Frumsýning á Broadway" eru orð,
sem tákna sigur eða ósigur fjölmargra
listamanna — leikara og leikstjóra,
söngvara, rithöfunda og tónskálda.
Þarna var háð fyrsta samkeppni i
maraþóndansi, þarna fór fram fyrsta
viðureignin um heimsmeistaratign í
linefaleik, þarna á „Great Way“, sem
hverfið er kallað, skemmta allir sér,
sem hafa efni á að borga fyrir það.
Talsvert löngu norðar, milli 160. og
170. Street, eru annars og þriðja
flokks leikhús og fjölleikahús, sem
draga að sér fjöldann, og þar þarf
enginn að vera samkvæmisklæddur
til að sleppa inn.
Kvikmyndafrumsýningar kringum
42. Street — hjá „Paramount“, „Capi-
tol“, Rialto“, Mayfair“ o. s. frv. þykja
merkisviðburðir. Þá þvergirðir ríð-
andi lögregla göturnar fyrir umferð-
ina tímunum saman, meðan „stjörn-
urnar“ frá leikhúsum og kvikmynd-
um koma prúðbúnar til samkomunnar
eða peningaljónin úr Wall Street eru
að koma og fara. í kvikmyndahúsum
eru víða sýningar frá kl. 9 á morgn-
ana og viðstöðulaust til miðnættis.
Skammt frá 51. Strcet og rétt við
„Lindys Restauranþ', sem allir
íþrótta- og veðmálaáhugamenn þekkja
(og Damon Runyon minnist oft á í
sögum sínum), er Madison Square
Garden, mesti íþróttastaður veraldar.
„Hjá Lindys“ er alltaf hægt að hitta
blaðamenn og leikara. Þar liafa marg-
ir „Gossip CoIumnists“ — blaðamenn
sem skrifa slúðurfrétir, sín föstu borð.
Þeir mundu veslast upp ef „Lindys“
og Broadway væru ekki til. Kunnastur
allra „slúðrara" nú mun Walter
Winchell vera, — hann sækir frétl-
irnar til „Lindys“ eða í „Stóra klúbb-
inn“ og hefir yfir hálfa milljón doll-
ara upp úr á ári.
DEIGLAN BROADWAY.
Broadway er spegilmynd Anieriku
— og Ameríka er þó alltaf innflvtj-
endaland. Hér er fólk og kynþættir
hrætt saman. Og deiglan er, ekki síst,
Broadway. Þegar maður kemur út úr
hálfdimmri gjánni milli skýjakljúf-
anna og lieldur norður á bóginn ligg-
ur leiðin um verslana- og ibúðaliverfi
Grikkja, Frakka, ítala, Þjóðverja og
Gyðinga. Og loks til Kínverja — i
Chinatown. Innflytjendurnir liafa
raðað sér niður eftir þjóðerni milli
60. og 120. Street, og þarna dafna fjöl-
skrúðugari og furðulegri lifsvenjur en
nokkur skáldsöguhöfundur gæti látið
sér detta í hug.
Eu þegar komið er út fyrir Harlem
liggur Broadway inn í nýja veröld
aftur: hér birtist Columbiaháskólinn
með tignum stórhýsum, rannsóknar-
stöðvum og stúdentagörðum.
„SÁPUKASSA-RÆÐUMENN“.
Columbus Circle heitir torg á
Broadway ,þar sem 8. Avenue og 59.
Street mætast. Þann stað er vert að
Broadway að degi til. Auglýsingarnar setja svip á götuna, jafnvel þó að þær
séu ekki lýsandi.