Fálkinn


Fálkinn - 28.05.1954, Síða 10

Fálkinn - 28.05.1954, Síða 10
10 FALKINN Vitið þér...? VD.6-I að afríska gazellan er með hleypnustu spendýrum jarðar- innar? Hún getur hlaupið kílómetrann með 85 kilómetra hraða á klukkustund. Sum dýr t. d. leóparðinn kemst upp í 100 km. hraða á stuttum spretti, en heldur honum ekki nema fáeinar sekúndur. að í líkama yðar er svo mikill sykur, að hann gæti nægt í 50 meðalstóra sykurmola? En það yrði of dýrt að vinna þann sykur! vr>g,-Ti að á jörðinni eru 50 borgir með meira en milljón íbúum? Af þeim eru 19 i Evrópu, 16 í Asíu, 12 í Ameríku, 2 í Ástralíu en aðeins ein í Afríku, nefnilega Cairo. — Fimm stærstu milljónaborgirnar eru Lon- don, New York, Moskva, Tokio og París, en Kaupmannahöfn er minnst. VO 14 -I að duglegur vélritari getur skrifað um 30.000 stafi og merki á klukku- stund? Það svarar til þess að 8 stafir séu skrifaðir á hverri sekúndu. En það eru ekki nema fúir, sem ná þeim hraða. NAUTABANINN. Framh. af bls. 9. var kvenliollur, en kærleikurinn var allur hjá nautum og nauta-ati. Einn daginn sagði umboðsmaður Curros honum að það hefði vakað fyr- ir Greifanum að stíga í vænginn við La Triana, að opna augu Curros og bjarga góðum nautabana frá að fara í hundana. Curro trúði honum. Hvers vegna ekki? í augum Greifans var hann ekki maður heldur nautabani. Alveg á sama hátt sem La Triana var ekki annað en hættuleg og falleg gleðidrós. Það getur vel verið að hún hafi verið það, en hún var virkileg kona líka. Þegar hún frétti að Greifinn liafði haft hana að leiksoppi, skildi bún við hann, — svo hefir fólk að minnsta kosti sagt mér. Og hún fór ekki aftur til Curros vegna þess að lm hefði hún verið algerlcga á hans valdi, og þá tilhugsun þoldi hún ekki. Það eina sem þún gat gert var að hverfa út i buskann. Ég veit ekkert hvað af henni varð. Ilún var dásam- lega fögur, en hún elskaði aldrei aðra en sjálfa sig. — Og þér? .... Æ, afsakið þér. — Ekkert að afsaka. Auðvitað var ég Curro. Mér stendur alveg á sama Jdó að ég tali um hann. Nú skuluð þér heyra: eftir sjötta og siðasta atið bað Curro rakarann á gistihúsinu að skera af sér linakkafléttuna — lielgi- dóm nautabananna. Það var ójjarfi að drepa Curro. Þegar ég fór út úr rak- arastofunni vissi ég að Curro var dauður. Ég gaf rakara fléttuna, því að hann grét heitum tárum yfir henni. Og þetta eru sögulokin. En ég þykist vita að þér viljið láta söguna enda vel. Jæja, ég el upp naut núna. ’Ég er kvæntur. Á þrjá syni og þrjár dæt- ur. Hvað viljið þér svo hafa það meira. Ég er ég sjálfur. 29 ÁRA AMMA. Virginia Mease frá Ashville í Norð- ur-CaroIina er röskleika kvenmaður. Hún giftist 14 ára og dóttir hennar giftist jafngömul og liefir eignast strák, svo að nú er Virginia orðin amma, þó ekki sé liún nema 29 ára. Býður nokkur betur? Margir vilja eiga páfagauk, einkum fyrir það að þeir geta talað og hermt eftir fólki. En í Hollywood er kona, sem undanfarin 40 ár hefir lifað á því að herma eftir páfagaukum. Hún lieit- ir Dororhy Lloyd og hefir hermt eftir páfagaukaröddum i meira en 100 kvikmyndum. PÍNA, PUSI OG SIGGI SVARTI 1. mynd: Loksins 'losnaði vængurinn á Lora, en hræðsluna losnaði liann ekki við. — 2. mynd: „Lora!“ hrópar Maren. „Meiddirðu þig? Komdu liingað niður!“ En hann situr kyrr. — 3. mynd: Ef til vill getum við lokkað hann með sykurmola," segir Pina. „Við bindum langt band i liann.“ — 4. mynd: Við leggjum hann á jörðina, förum inn í skúrinn og gægjumst. — 5. mynd: Lora sér sykurmolann brátt. Hann fetar sig i áttina til lians. — 6. mynd: Pína togar í bandið, en Lora lileypur á eftir, því að hann vill ekki missa af molanum. — 7. mynd: Þannig náðu þau í Lora og Maren var frá sér numin af gleði yfir því. — 8. mynd: En livað var þetta? Annar vængurinn var svo undarlegur. Hann skyldi þó ekki vera brotinn? — Nú tölum við ekki meira um það. Það var Pétur litli, sem vann vindlana. — Þegar maður sleppir skegginu — finnst þér þá að ég hafi breytst? — Frænka, við lcikum að þú sért stórt tré, sem ég ætla að flýja upp í þegar ljónið ætlar að drepa mig. — Þetta er uppgötvun sem ég hefi gert sjálfur.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.