Fálkinn - 13.01.1956, Qupperneq 1
Uogur
nfreksnuiður
á á
Hinn ungi og efnilegi skákmeistari okkar Is-
lendinga, Friðrik Ólafsson, er nýkominn heim
frá Englandi, þar sem Jiann tók þátt í hinu
árlega Hastings-móti, en þangað bjóða Bretar
jafnan þekktum skákmönnum frá öðrum þjóð-
um. Að þessu sinni voru það tveir rússneskir
skákmeistarar, Taimanov og Korsnoj, júgóslav-
neski meistarinn Ivkov, þýski skákmeistarinn
Darga og spænski meistarinn dél Corrél, sem
boðið var ásamt Friðrik. Einnig tóku þátt í
mótinu fjórir breskir skákmenn.
Friðrik varð sigurvegari í þessu erfiða móti
og jafn rússneska skákmeistaranum Korsnoj.
Hlaut Jiann 7 vinninga af 9 mögulegum og tap-
aði engri skák. Hann vann m. a. rússneska
stórmeistarann Taimanov.
Aldrei mun hafa verið fylgst með skákfrétt-
um af meiri áhuga hér á landi en i sambandi
við þetta mót, og hin glæsilega frammistaða
FriðriJcs mun vafálaust verða til þess að glæða
áJiuga þjóðarinnar á þessari göfugu íþrótt.
Forsíðumynd Fálkans að þessu sinni er aj
Friðriki Ölafssyni, Júnum tvítuga skákmeistara.
Ljósmynd: Káldal.
á á