Fálkinn


Fálkinn - 13.01.1956, Blaðsíða 10

Fálkinn - 13.01.1956, Blaðsíða 10
10 FÁLKINN Witið þér...? Að sums staðar í Sahara kemur aldrei dropi úr lofti? Þó er ekki svo að skilja, að aldrei myndist regnský yfir þessum svæS- um. En hitinn frá eyðimörkinni er svo mikill, aS regniS breytist i gufti á leiSinni til jarSar og hverfur upp i himinhvolfiS aftur. að í Bandaríkjunum hafa verið gerðar ráðstafanir til að afstýra skaðlegum vatnavöxtum? Þar sem þrengsli eru mest i árfar- vegum, svo aS hætta sé á aS áin flói yfir bakkana, hafa verið settar upp stórvirkar dælustöSvar, sem dæla vatninu þangaS, sem þaS gerir ekki mein. Sumar af þessum dælum getíi dælt 8—9 milljón lítrum af vatni á hverri mínútu. að í Bandaríkjunum koma hvirfil- byljir þriðja hvern dag? Sem betur fer eru flestir þeirra svo vægir aS þeir valda ekki stórtjóni. En ltinir ofsafengnu hvirfilvindar eyða öllu, sem verður á vegi þeirra, og vegirnir cru svo órannsakanlegir að það er ekki nema sjaldan, sent veð- urathuganastöSvarnar geta tilgreint hvar fárviSrin fari um, svo að oftast konta þau yfir eins og þjófur á nóttu. □ U/UttURNIR Jólasveinninii ogr Njórænlngrjarnir Framhaldssaga fyrir börn unginn á skipinu. Og svo fóru ])eir að klifra um borð. En nú kom Pési pukrari hlaupandi innan úr bæ með tvo stóra poka. Hann fór beint til jólasveinsins og fleygði pokunum. — Þú verður aS afsaka niig Pési, sagði jólasveinninn. — Ég má ekki vera að sinna þér. Við erunt að fara að leita að sjóræningjafjársjóði. — Sjóræningjafjársjóði og rétt komin jól, gelti pukarinn. Hann leysti frá pokanum. — Sjáðu öll jólabréfin, sem þú hefir gleymt í skattholinu þínu! Hver á að afgreiða þau? Þau cru frá krökkum sem óska sér gúrnmí- bolta til jólanna, og við höfum ekki búið til einn einasta ennþá! Jólasveinninn ræskti sig. — Þetta er alveg satt, pukrari. Það er kannske best að við verðum lteima. FERÐIN. En þá sagði prinsinn: — Getið þið ekki búið til boltana á leiðinni. — Jú, það er þjóðráð, sagði jólasveinn- inn. Áður en Pési pukrari komst að til að andmæla, lét jólasveinninn flytja um borð nóg af efni i boltana. Og hann tók Pésa pukrara nteð í ferð- ina, til vonar og vara. Hann gat séð um boltagerðina. Svo tók jótasveinninn stýrið, prins- inn dró ■ upp akkerið, og „Gleðileg jól“ sigldi til hafs undir fullum segl- um. Lítill, freknóttur jólasveinn, sem hét Sprettur málaði „Gleðileg jól“ á kinn- unginn. — Ilæ og hó! æpti digri Ptutó, og hinir jótasveinarnir höfðu ekki ver- ið lengi um borð l)egar þeir fóru að æpa „hæ—og—hó“ líka. Pési pukrari skátmaði um þilfarið. — Farið þið að vinna! hrópaði hann með bylmingsraust. — Bræðið þið nú gúmmíið! Og þeir fylltu stóran ketil með gúmmí og settu hvítt duft og rauðan lit santan við. Og dálítið af tjöru og 200 bréf af tuggugúmmí og loks 10 dropa úr flösku, sem „Gort“ stóð á. Þessi blanda var soðin í marga ktukkutíma. Svo voru hnoðaðir úr Itenni boltar, og þcir þurrkaðir. Þeir voru að þessu alla nóttina. í birtingu heyrðist Plutó segja: — Ég sé land, strákar. Ég sé land. Hæ—og—hó! — Já, ltann segir þetta satt, sagði prinsinn. — Þarna er eyjan með fjár- sjóði sjóræningjanna! V. EYJAN. Jólasveinarnir vörpuðu akkérum og fóru í land. — Hvar er fjársjóð- urinn? orgaði Plútó undir eins og hann kom i fjöruna. — Ég sé engan fjársjóð ltérna! — Þú átt að leita að honum, bján- inn þinn sagði Pési pukrari fyrirlit- lega. — Þess vegna er það kallað fjársjóðaleit. Jólasveinninn og prinsinn breiddu út- blaðinu með uppdrættinum og lásu leiðbeiningarnar: Efst stóð: „Risafuran". Nú kallaði jólasveinninn til allra strákanna sinna: — Dreifið ykkur og leitið að risafurunni. Sá setn fyrstur finnur ltana á að blístra! Og svo trítluðu allir jólasveinarn- ir inn i skóginn. Einn jólasveinninn og prinsinn biðu og biðu, en heyrðu engan blístra. Loks sagði jólasveinn- inn: — Ég lield við verður að fara að leita líka, því að eftir einn dag og nótt er „Gleðileg jól“ orðin að leik- fangi aftur. Og innan skamms fundu þeir him- inháa furu. Það hlaut að vera sú rétta. Og jólasveinninn blístraði og þá komu allir hinir hlaupandi og þyrptust kringum hann. — Sjáið þið þessa? sagði hann og benti á furuna. — Við höfum séð hana fyrir löngu, svaraði einn. — En við héldum á fram inn í skóginn til að leita að annarri, enn stærri. Jólasveinninn ræskti sig og breiddi úr uppdrættinum. Næsta leiðbeining- in var: „Trjátoppur." Nú reyndi prinsinn að klifra upp í tréð. En börkurinn var háll og hátt til neðstu greinanna. Þá sagði jóla- sveinninn: — Sntíðið þið stiga, dreng- ir. Og svo klifraði Plútó upp á Sprett og Ronald upp á Plútó, og Donald á Ronald og svo frantvegis, þangað til stiginn var orðinn nógu langur. Og svo klifraði prinsinn öxl af öxl og náði í neðstu greinarnar, og nú var auðvelt að komast upp í topp. Og nú sá hann yfir alla hina trjá- toppana og út á sjó þar sent „Gleðileg jól“ lá vaggandi. En fjársjóðinn sá hann hvergi. LEITIN. Þegar hann var að klifra niður rak hann augun í hreiður. En þar voru engin egg, en bara lítill hvítur steinn. Á hann var skrifað: „50 skrcf austur. 80 skref norðaustur og 20 skref norð- ur. Prinsinn las sig grein af grein og síðan niður axlirnar á sveininum og las svo tilvísunina hátt fyrir jóla- svcininn. Framhald í næsta blaði. — Hvað viltu? — Sígarettur eða súkkulaði? — Má ég h'ta á veiðileyfið yðar. lierra minn? — Bíðið þið nú hægir, drengir, — þið skuluð fá blöðrurnar ykkar undir eins og við komum heim. Á flugnaveiðum.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.