Fálkinn


Fálkinn - 06.04.1956, Qupperneq 11

Fálkinn - 06.04.1956, Qupperneq 11
FÁLKINN 11 LITLA SAGAN. Síðasto fullii DILLANDI valslagiS fyllir salinn. Valsinn úr Hnetubrjótssyrpu Tsja- kovskis. Það er þröngt á gólfinu og dansað kinn við kinn. Loftið er þykkt af ilmvatnsangan, tóbaksreyk og svita- lykt. Fullt hús á náttklúbbnum fræga. Skammt frá inngöngudyrunum stendur ung stúlka. Hún er rúmlega tvítug, hárið í liðum, andlitið óvenju- lega fallegt og enn ósnortið af brenni- marki svallsins. Hún er ímynd æsku og fegurðar. Fallega vaxin og kjóll- inn fellur vel að iíkamanum, svo að vaxtarlagið sést. Hún starir í sífeilu á dyrnar. Andlitið er með eftirvænt- ingarsvip. Hvers vegna kemur hann ekki, ævintýraprinsinn hennar? Aldraður svallari með kúiumaga færir sig nær ungu stúlkunni. „Ma petite,“ segir hann og afklæðir hana með augunum, „einn drink!“ Hún mælir hann með augunum og snýr fyrirlitlega bakinu að lionum. Fyrir viku hefði hún fúslega þegið bæði glasið og svallarann. Eftir út- litinu að dæma var þetta „gullfugl“. En síðan kvöldið sem prinsinn hennar kom í náttklúbbinn var Mar- iiza gerbreytt. Hann var ungur og friður, aiveg eins og ævintýraprins- ar eiga að vera, hann liafði ausið út peningunum og gefið kampavín ekki aðeins Iienni heldur iíka ýmsum vinkonum hennar. Og á eftir hafði hann farið með henni heim. Þau liöfðu iifað unaðslegar sælustundir saman. En nú hafði hann ekki komið í tvo daga. Hann varð að skreppa í ferðalag, liafði hann sagt. Og liann hafði verið svo órólegur og fumandi. Hún iitur snöggvast á hringinn á fingrinum á sér. Það glitrar á stóran demant. Gjöf frá lionum. Hann hlaut að vera afar ríkur. Þjónarnir töluðu um hann. „Þarna hefirðu náð i gull- fugl, Maritza." „Þökk fyrir, sömuleið- is,“ liafði liún sagt. Það fer ylur um hana alla. Þarna, þarna kemur liann. Hún flýtir sér á móti honum. „Darling, darling!" Það liggur við að hún kjökri. — „Maritza!" Hann virðist vera mjög órólegur. — Ég mátti til að hitta þig,“ livislar hann, „ég veit að það er fásinna — ég ætti að vera farinn fyrir löngu! Áríðandi erindi. En í kvöld skulum við skemmta okkur meira en nokkurn tíma áður. Tveir þjónar vísa þeim á horð. Þeir hneigja sig og beygja. Innan skamms er kampavin komið á borðið. Hinir þjónarnir hafa séð fyrir blómum. l>að smellur í tappa. Þau drekka. Hann drekkur út úr glasinu í einum teyg. Fyllir það aftur. Tæmir það aft- ur. Ofuriítill roði færist í fölar kinn- arnar. Svo brosir hann til hennar. „Maritza.“ Aldrei verður hlé á músíkinni. Hljómsveitirnar leika á víxl. Aldrei lilé. Þjónarnir þeytast milli borðanna. Fólkið dansar — dansar. Tveir nýjir gestir eru komnir inn. Annar feitur og þrekinn. Hinn hár og magur, með dökk, stingandi augu. Brytinn hefir komið auga á þá, flýtir sér til þeirra, stimamjúkur. Það borgar sig í náttklúbbnmn að koma I-------------------- ★ TískumifDdir ★ ____________________i sér vel við lögregluna. Þeir tala sam- an um stund og augu magra manns- ins hvarfla bm allan salinn. í þessum svifum iyftir ungi mað- urinn glasinu til að skála við álaritzu. En hann skálar ekki. Það er likast og hann fái krampa. Hann starir fram lijá stúlkunni og sér tvö dökk augu. Þeir horfast í augu brot úr sekúndu. Svo ryður magri maðurinn sér braut gegnum dansgólfið og nálgast borðið. Óp yfirgnæfir hljóðfærasláttinn, skerandi neyðaróp. I>að hefir eitthvað gerst þarna við borð unga mannsins. Gestirnir þyrpast að. Það er Maritza sem hrópar. Ungi maðurinn, ævintýra- prinsinn hennar hefir hnigið á gólfið. Enginn hefir tekið eftir að hann hefir i einni svipan stungið einliverju upp í sig. Lögreglumaðurinn herðir á sér, olnbogar sig áfram að manninum, sem liggur á gólfinu. „Of seint,“ tautar lögreglumaður- inn. „Cyankalium". Ungur maður er borinn út, síttur í lögreglubíl, sem bíður fyrir utan. Hljómsveitin leikur „Quand 1’ Amour meurt“ og fólkið lieldur áfram að dansa. En þjónarnir eru í uppnámi: „Að hugsa sér að ])essi laglegi, ungi piltur skuii hafa drepið menn og rænt banka.“ * Seig er Bai'bara! Giftist í 6. sinn BARBARA HUTTON hin rika, sem nú er 41 árs og enn erfingi að Woolworthmilljónunum — öðru nafni kölluð „veslings ríka konan“ ’hefir nú gifst i 6. sinn. Nýi maðurinn heitir Gottfried von Cramm og er þýskur tenniskappi. Þau voru gefin saman í Versailles og aðeins þrír voru viðstaddir, nefni- lega bróðir Cramms, og safnvörður- inn í Versailles, sem voru svaramenn, og mr. álignot borgarstjóri, sem gaf þau saman. Siðan héldu þau til sala- kynna Barböru á Ilotel Ritz í París, og þar hafði auðvilað fjöldi blaða- manna safnasl saman til að tala við Barböru, sem nú var orðin barónessa. Hún var föl og sagðist vera kvefuð. „Það eina sem ég hugsaði um meðan verið var að gifta mig, var að komast sem fyrst heim og í rúmið. Ég hugsa að ég sé með hálsbólgu!“ sagði hún. En livað sagði Cramm barón? — „Við hefðum átt að giftast fyrir átján árum. Við urðum ástfangin hvort af öðru þegar við sátimst í fyrsta skipti, í Cairo 1937. En af einhverjum ástæð- um varð ekkert af því að við giftumst þá.“ Barbara bætti við: „Já, við hefð- um átt að giftast þá, en það var ekki iiægt því að ég var gift öðrum. Ég skil það núna, að ég hefði átt að gift- ast lionum Gottfried þá. Það hefði sparað mér margar hjartasorgir — og eiginmenn." Barbara er enn danskur ríkisborg- ari, siðan í öðru hjónabandinu. Fyrri mennirnir eru: Alexis Mdivani (1933— 35), Kurt Reventlow (1935—41), Cary Grant (1942—45), Igor Trouetskoy (1947—51) og Porfirio Rubirosa (1953—55). Von Cramm hefir verið kvæntur einu sinni áður. * Þegar maður andvarpar dregur mað- ur andann helmingi dýpra en við v e n j uleg a n a n d a r d r á 11. % EMPIRE LÍNAN. — Falli manni ekki við hinar nýju línur á frönskum sýn- ishornum má ætíð flýja til hinnar gömlu og góðu empire línu, sem nú er komin í tísku. Rykkingarnar eru látnar koma undir breitt belti undir brjóstunum með flatri slaulu að fram- an. Annars er kjóllinn alveg sléttur. Þessi samstæða, skinnhúfa og trefill, má kallast luxus, því að efnið er nerts- skinn, sannkallaður óskadraumur flestra, enda ekki furða þar sem jafn- vcl eftirlíking af nerts er mjög dýrt. En leyfilegt er að láta sig dreyma. Á járnbrautarstöðinni i Innsbruck hafa verið settir sérstakir ofnar á gólfið lianda fótköldu fólki að orna sér við. PRINSESSUSNIÐIÐ er alltaf í tísku, og eftir því sem okkur lærist betur að halda okkur grönnum og beinum, eftir því mun það verða almennara í notkun. — Fath sýnir okkur þennan gráa ullartauskjól fallega rykktan á brjóstunum og ermalangan. SMÁKÖFLÓTT SAMSTÆÐA. Carden hefir samið þessa samstæðu við sléttan, þröngan kjól og •% síðan frakka fóðraðan með skinni og sést það vel á myndinni, einnig uppbrot á ermunum. Mannfjöldi Bandaríkjanna varð 162.250.000 á árinu sem leið. Það er 55 sinmim meira en þegar Bandaríkin lýstu yfir sjálfstæði sinu 4. júlí 1776.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.