Fálkinn - 13.04.1956, Qupperneq 14
14
FÁLKINN
Lárétt skýring:
1. óveður, 5. dyr, 10. guð, 11. svip-
aða, 13. tónn, 14. fljólur, 10. veiði,
17. tveir eins, 19. stafur, 21. þykkni,
22. vefnaður, 23. kvenheiti, 20. óþef,
27. laust, 28. slæma, 30. leyfi, 31. kenna,
32. amboðin, 33. upphafsst., 34. íþrótta-
fél., 30. keipa, 38. ólipurt, 41. sáðkorn,
43. bleyða, 45. niæla, 47. beiskt, 48.
ástundunarsamt, 49. órækt, 50. biblíu-
nafn, 53. atviksorð, 54. skammst., 55.
Valdi, 57. gylta, 00. tveir eins, 01.
gróðurlands, 03. undantekningarlaust,
05. lasta, 00. afhenda.
Lóðrétt skýring:
1. samhljóðar, 2. dýr, 3. sandrif, 4. á
litinn, 0. rölt, 7. gælunafn, 8. sáld, 9.
samhljóðar, 10. blóm (þf.), 12. ílát,
13. kirkjuathöfn, 15. þvaðra, 10. liljóð-
stafir, 18. vitranir, 20. guðhrædd, 21.
samtíningur, 23. líflátið, 24. fanga-
mark, 25. erfiðið, 28. raðtala, 29. sam-
rit, 25. þrekvirki, 30. gælunafn, 37.
steins, 38. nýgotinn fiskur, 39. skolt-
ur, 40. ljóða, 42. skemmta sér, 44. sam-
hljóðar, 40. snoppur, 51. martröð, 52.
ávöxtur, 55. nepja, 50. upphrópun, 58.
eftirstöðvar, 59. atviksorð, 02. stafur,
04. afhenda.
LAUSN Á SÍÐUSTU KROSSGÁTU.
Lárétt ráðning:
1. kvakl, 5. stamt, 10. klerk, 11.
ókind, 13. RU, 14. ríks, 10, gaur, 17.
RI, 19. RRR, 21. kóð, 22. áfir, 23. brauk,
20. sæma, 27. KAS, 28. fleipur, 30. nið,
31. skraf, 32. akarn, 33. au, 34. LS,
30. dauðs, 38. lakur,, 41. ámu, 43. sann-
ara, 45. jóð, 47. tæla, 48. rausa, 49.
'hóll, 50. ina, 53. LÍÚ, 54. NI, 55. ærna,
57. ausa, 00. kr, 01. regin, 03. stirt,
05. sinna, 00. ísaða.
Lóðrétt ráðning:
1. KL, 2. ver, 3. aría, 4. KKK, 0.
tóa, 7. akur, 8. Mír, 9. TN, 10. kurfa,
12. drómi, 13. kráka, 15. skref, 10.
gaupa, 18. iðaði, 20. riss, 21. kænn,
23. blauðar, 24. AI, 25. kuklara, 28.
fraus, 29. raska, 35. látin, 30. dula, 37.
snapa, 38. lasta, 39. rjól, 40. eðlur,
42. mænir, 44. N'U, 40. ólíkt, 51. ærin,
52. ásta, 55. ægi, 50. NNN, 58. uss, 59.
aið, 02. es, 04. R A.
Canberraflugvélin enska hefir
heimsmet í hæðarflugi. Hefir hún
komist upp í 20.079 metra hæð eða
2% sinnum hærra en Everesttindur-
inn.
Konunp il Madttgaskar
UNGVERSKI greifinn Moritz August
Benjovski var einn af mestu ævin-
týramönnum 18. aldar. Hann fæddist
1741 og tók þátt í sjö ára stríðinu,
sem kornungur lautinant i her Austur-
ríkis. Árið 1708 barðist hann hraust-
lega gegn Rússum sem pólskur hers-
höfðingi, en var liandtekinn og sendur
til Petropavlosk á Kamtsjatkaskaga,
sem rússneskur herfangi.
Þar var greifanum holað niður í lé-
legum kofa, sem veiðimenn höfðu átt,
og nú reyndi hann að drepa timann
með því að fara á veiðar. í einni
veiðiferðinni bjargaði hann ungri
stúlku, sem úlfar höfðu ráðist á, og
það sneri örlagalijólinu fyrir honum.
Því að stúlkan var dóttir setuliðs-
stjórans i Petropavlovsk!
Henni mun hafa litist vel á greifann,
því að nú var hann boðinn heim til
setuliðsstjórans og talaði lengi við
hann. Sá setuliðsstjóri að þetta var
vel menntaður maður, og veitti honum
ýms hlunnindi, sem aðrir fangar fóru
á mis við. Setuliðsstjórinn fékk því
rneiri mætur á honum sem lengur leið
og þeir spiluðu saman á kvöldin. En
þó var dóttur hans, Ivatarina, enn
hrifnari af honum og áttu þau oft
stefnumót saman. Og loks bað Ben-
jovski stúlkunnar.
„Ég vil gjarnan fá yður fyrir tengda-
son,“ sagði Zamenov aetuliðsstjóri,
„en fyrst verðið þér að fá frelsi. Ég
r-"1-1 ...........-...
Vilduð þér FITNA um 10, 20,
30 pund eða meira? Loks er
leiðin fundin. Skrifið eftir
ókeypis uppiýsingum (með 2
shillinga breskri póstávísun)
um uppbyggingu magurs
líkama.
Activities, Kingsway
(T 827) Delhi-9, India.
skal skrifa „föður vorum“ í Moskva
og tala máli yðar.“
Og árið 1771 var greifinn látinn
laus og giftist Katarinu Zamenov
sarna árið. Ungu hjónin fengu hús-
næði í dyravarðarbústaðnum neðan
við virkið og nú fór greifinn að
stunda veiðar á ný. En i raun réttri
var liann að undirbúa uppreisn og
fékk á nokkrum vikum um 100 fanga
til fylgis við sig, til að hjálpa sér til
að taka virkið. — Og eina september-
nótt tók greifinn ásamt tveim pólsk-
um liðsforingjum virkisverðina hönd-
um, og setuliðsstjórinn varð fangi í
sínu eigin virki. Ekki er vitað hvernig
skildi með Benjovski og konu hans
og tengdaföður, en hann og fangarnir
gengu um borð í rússneska skipið
„Safanova“, sem var ferðbúið, og
þröngvuðu skipstjóranum til að sigla
til Kína.
Þetta varð ævintýraleg ferð, því að
fyrir sunnan Sakkalín lenti skipið í
fárviðri, sem braut aðra sigluna. Við
Kínaströnd réðust kínverskar djunkar
á skipið hvað eftir annað og i þessum
skærum missti Benjovski 53 af mönn-
um sínum á tíu dögum. Nú voru mat-
vælin þrotin og lítið orðið um drykkj-
arvatn.
Einn daginn hljóp Ziemiradski
fyrir borð í vitfirringarkasti og næstu
daga dóu margir úr skyrbjúg. Lolcs
komst skipið til Macao, eftir tveggja
mánaða ferð frá Ivamtsjakta, en þá
voru aðeins fjórtán eftir lifandi um
borð.
Arið eftir komst Bcnjovski með
portúgölsku skipi til Frakklands, og
skömmu síðar var honum falið að
stofna franska nýlendu við Antongil-
flóa á Madagaskar. Þar lenti hann
árið eftir og náði mörgum höfðingj-
um til fylgis við sig. Óx honum nú
metnaður, svo að tveimur árum siðar
tók hann sér konungstign yfir allri
Madagaskar. En Frakkar höfðu gert
ráð fyrir þessu, og neituðu að viður-
kenna konunginn. Var sendur lier
austur og nú varð Benjovski að flýja
land. En ekki var hann á því að sleppa
konungstigninni samt. Hann fór til
Englands og safnaði þar fé og fékk
skipakost og menn til að taka Madaga-
skar af Frökkum.
Lenti liann á Madagaskar 1785 og
hófust nú orrustur. En Frakkar höfðu
fengið mikinn liðsauka nieðan „kon-
ungurinn“ var i útlegðinni, og varð
þvi að láta sér nægja skæruhernað.
Fékk hann marga liöfðingja til fylgis
við sig. En svo fóru skotfærin að
ganga til þurrðar og skæruliðarnir
að hypja sig á lengra inn í landið. —
Loks umkringdi franskt lið hann.
Benjovski reyndi að komast úr um-
sátinni, en varð fyrir mörgum skot-
um. Loks var liann ofurliði borinn
en varðist til síðustu stundar.
Hann hafði skrifað ævisögu sina
áður en hann féll, og kom hún út i
London fjórum árum eftir að hann
dó. Hún er tvö stór bindi og var síðan
gefin út á frönsku og þýsku.
Um Katarinu konu lians vita menn
lítið annað en það, að liún átti heima
i Frakklandi í mörg ár, og dó 1836
á ferðalagi í Rússlandi. Hún lifði
mann sinn í 50 ár og gat aldrei gleymt
hönum. *
Kínverjar skrifa ofan frá og niður
og byrja hægra megin á blaðinu. Jap-
onar skrifa lika ofan frá og niður, en
frá vinstri til hægri. Frumbyggjarnir
í Mexico skrifuðu neðan frá og upp.
Hebreska, arabiska og persneska er
skrifuð frá hægri til vinstri, en í lá-
réttum línum. Fyrst i stað skrifuðu
Grikkir fyrstu línuna frá hægri til
vinstri og þá næstu frá vinstri til
hægri. Kölluðu þeir þetta „bustrop-
hedon“, sem þýðir: öfugt plógfar.
Mannseyrað getur aðeins heyrt tóna,
sem hafa minni sveifluhraða en
16.000 á mínútu. En tæki eru til þess
að framleiða hljóð, sem hafa miklu
meiri sveifluhraða og gera þvi engan
hávaða. Eru vonir til að liægt sé að
auka sveifluhraða ýmissa hljóða og
skrölts í vélum, þannig að hljótt geti
orðið í verksmiðjunum.
Fiiir n dn
Heimsblöðin hafa nýlega birt stór-
letraða fregn um að Eli gamli Lucas
í Kentucky sé nýlega orðinn pabbi í
19. skipti, 92 ára gamall. Öllum þótti
þetta tíðindum sæta nema Lucasi
sjálfum og konunni hans, sem er ekki
nema 35 ára og heitir Rita. Og ná-
grönnum þeirra þótti þetta ekki nema
sjálfsagt.
Lucas gamli er fyrrverandi námu-
vinnumaður, og ber vel ellina þó að
hann sé kominn á tíræðisaldur. Hann
átti þrettán börn með fyrri konunni,
og er það elsta þeirra nú sextugur
nia.ður, litlu unglegri en faðir hans.
Tuttugu og fimm ár eru liðin síðan
fyrri konan dó, og það liðu tíu ár
þangað til Lucas giftist seinni kon-
unni, sem þá var tvítug. Þá byrjuðu
barneignirnar á nýjan leik, og nú eru
seinni konu börnin orðin sex. Hjóna-
bandið er mesta fyrirmynd, þó að 57
ára aldursmunur sé á hjónunum.
Lucas er alls ekki af baki dottinn
enn. „Ég vona að við eignumst mörg
börn ennþá, okkur til hamingju og
gleði,“ segir þessi gamli pabbi. Ef
honum tekst að halda áfram barn-
eignunum í átta ár enn, verður hann
áreiðanlega heimsfrægur. *
I----------------------------
STÆKKIÐ
um 2—6 þumlunga með hinni
nýju aðferð okkar, sem hæfir
bæði körlum og konum.
Ábyrgjumst árangur eða end-
urgreiðum afgjaldið eins og
það Icggur sig. Góðfúslega
sendið 30 shillinga póst-
banka- eða ferðaávísun, sem
greiða má með á Indlandi, í
Englandi eða Ameriku.
Activities (Dcpt. 927)
Kingsway, Delhi-9, India.