Fálkinn - 20.04.1956, Side 11
FÁLKINN
11
LITLA SAGAN.
„Svona m yfirmenn -
og tenqdapabbar oi mo!“
PÉTUR ANDREAS FALK kvæntist
dóttur ofurstans síns sama daginn,
sem endurgjaldssprengjur Adolfs byrj-
uðu að sallast yfir London. Hann gift-
ist Lisu-Lottu sinni í kirkjunni St.
Martin in the Fields.
Þegar Pétur Andreas — kallaður
PAF — og IJsa-Lotta komu aftur úr
alltof snubbóttri brúðkaupsferð til
Torquay, bafði Adolf sleppt sér alveg
og jós sprengjunum yfir London og
gaf skít í aRa hveitibrauðsdaga, þvi að
sjálfur átti hann ekki nema rúgmél.
Svo að PAF þótti vissast að láta
tengdapabba senda Lísu-Lottu til Skot-
lands, sem bilstjóra í Kvenlijálpar-
liðinu.
Þannig varð PAF graselckill í heims-
borginni. Hann vann á skrifstofu
tengdapabba á daginn en lét sér leið-
ast á nóttinni — aleinn í hjónarúm-
inu. En svo kom Anton í borgina og
það var tilbreyting. Anton var á leið
til Normandí, en átti sólarhrings ieyfi
í borginni. Undir slíkum kringumstæð-
um er það heilög skylda að skjóta
skjólsliúsi yfir vini sína og fylgja
þeim á brautarstöðina. Það gerði
PAF.
Fyrst skerptu þeir matarlystina með
nokkrum sterkum heima hjá PAF, svo
borðuðu þeir á Hungaria, besta rnat-
inn sem hægt var að fá á þeim stað.
Og er þeir höfðu melt kaffið með
nokkrum koniaksstaupum og löngum
vindlum afréðu þeir að húsvitja á
kránum meðan kvöldið entist.
Þeir gengu á milli klúbbanna. Fengu
sér „einn lítinn" á hverjum stað. Væri
PAF ekki meðlimur þá var Anton það,
og ef hvorugur var það þá varð annar
hvor það. Þeir byrjuðu á Piccadilly
Circus og þreifuðu sig áfram vestur
Mayfair, uns þeir lentu á hinum gamla
góða Wellington á Iínightsbridge,
prýðilega upplagðir.
Og þar hittu þeir Blondie Bess —
upplagða líka. Hárið á henni var eins
og þunnt tevatn á Rtinn, og hörundið
„jarðarberjaljóst", sem Englendingar
kalla. Þar urðu miklir fagnaðarfundir.
í Wellington er gestrisni mikil með-
an nóg er til af reiðu fé til að fram-
lengja hana. En þegar klukkan var
eitt voru buddurnar tómar og þeim
var mjakað út. Hvergi var leigubíl
að fá. Og nú dundi yfir ferlegt reiðar-
slag. Sprengja liafði komið niður
skammt frá.
„Ég fer ekki heim í nóttl“ hrópaði
Bess. „Ekki eitt fet ...“
„Höfum við nokkurn tímia bfugðist
þér?“ sagði Anton. „Heldurðu að við
gerum það núna. Onei, það er. nú eitt-
hvað annað. Þú kemur!“
„En livað haldið þið að hún Lisa-
Lotta segi?“ sagði PAF.
„Þarftu að spyrja hana úm leyfi?“
sagði Benn. „Hver er hún?“
„Hún er konan mín,“ svaraði PAF.
„En lnin er í SkotIandi.“
„Þá þarf hún ekki að vita neitt um
þetta, og þá getur hún ekki orðið
hrædd um þig. Og það er liann Anton
sem ég er með, en ekki þú.“
iSvo héldu þau heim til PAF. öll
þrjú, og PAF raðaði öllu fljótahdi sem
hann átti á borðið. Um klukkan þrjú
heyrðist merki um, að hættan væri
afstaðin og loftárásin búin, og svo
skynjaði PAF ekki íneira, unS hann
vaknaði rétt fyrir niu, með þyngsta
haus Norður-Evrópu. Anton hafði far-
ið með morgunlestinni klukkan sjö.
PAF þorði ekki einu sinni að Rta
i spegilinn. En hann fór í símann til
að ná í lnisvörðinn áður en ofurstinn,
tengdapabbi, kæmi, og bað fyrir skila-
boð um að hann væri veikur — ekki
mikið — en yrði að liggja i dag. Hús-
vörðurinn skrifaði þetta og.PAF fór
i rúmið aftur.
Næst rankaði hann við sér er dyra-
bj'llunni var hringt. Látum liana bara
hringja, þangað til á morgun, hugsaði
hann með sér. En svo fór samt að
hann skreiddist til dyra. Og hver stóð
liar: Ofurstinn! í
Yfirbragðið var hermannlegt en
hjartað var gull, og þess vegna hafði
hann afráðið að sleppa portvínsglas-
inu eftir matinn og heimsækja sjúkl-
inginn, tengdason sinn.
I sömu svifum kom Bess fram i
dyrnar, nýbökuð og ilmandi af bað-
salti og anganlyfjUm Lísu-Lottu, og í
iniskónum hennar og baðsloppnum.
Munnurinn á ofurstanum opnaðist og
stóð upp á gátt.
„Heyrðu elskan," sagði hún. „Hve-
nær fær maður morgunkaffið hjá þér.
Og hvar er hann Anton? Og hver er
þétta?“
. „Má ég kynna tengdaföður minn,
Carsten Peter Bernt Anker ofursta —
miss Bess Bud.“
„Ég skal játa að þetta er grunsam-
legt,“ sagði hann þegar hún var horfin
inn úr dyrunum. „Og svo sagði hann
honum af Anton. „Við skulum nú at-
huga það betur,“ sagði ofurstinn. „En
komstu nú í fötin og farðu á skrifstof-
una. Ég skal sjá um stelpuna. — Halló,
Bess! Viltu koma út og borða með
mér?“
„Já, það veit sá sem allt veit. „Ég
er glorhungruð. En ég verð víst að
fara í einhver föt fyrst.
— Þú þarft þess ekki mín vegna,“
sagði ofurstinn og kveikti sér i
sígarettu. *
Alveg' his§a.
Ekki fullgildur.
Lítil stúlka i Paris, sem hafði séð
hinn fræga gamanleikara Fernandel
í hlutverki „Don Camillos" í kvilc-
myndinni, kom auga á leikarann á
veitingahúsi. Hún liljóp frá móður
sinni til hans, rétti honum gúmmi-
hund, sem hún var með á handleggn-
um og spurði Fernandel hvort liann
vildi ekki skíra hann. „Það get ég
ekki, ég er nefnilega ekki fullgildur
prestur,“ sagði Fernandel. „Það gerir
ekkert til,“ sagði telpan. „Þetta er
ekki fullgildur hundur heldur."
Ferðamannaleiðheinendur i Róm
hafa komist að þessari niðurstöðu um
háttalag skemmtiferðamanna frá ýms-
um þjóðum: Norðurlandabúar éta og
drekka mest. Englendingar eyða
minnstu af peningum. Frakkar eru
hávaðasamastir. Bandríkjamenn taka
flestar myndir. Og Þjóðverjar eru
spurulastir.
Margt gerir fólk sér til dægraslytt-
ingar. Það safnar frímerkjum og fcr
í bíó. Spánverjinn Jose Alvares fer
í jarðarfarir i staðinn. Hann hefir
þegar verið viðstaddur 15.200 jarðar-
farir og er þó maður. á besta aldri,
svo að sennilega á hann margar eftir.
★ Tískumifndir ★
-------------------j
SMÁVEGISLEIKUR MEÐ SKINNAF-
GANGA. — Það er ótrúlegt hvað gera
má úr smáskinntuskum. Vitanlega
þarf stóra bót í asolotmúffuna og
hattinn. Hálsmálið á næstu mynd
er lagt með hermelíni og einnig erm-
arnar. Neðst er mynd sem hentar vel
ungu stúlkunum. Líningarnar eru úr
nertz og skreyttar similisteinum.
í Ástralíu er til fiskur, sem bæði
getur synt, gengið og flogið. Ekki er
hann nema tíu sentimetra langur.
Ha'nn gengur á uggunum eftir hafs-
botninum, og ef hann verður lirædd-
ur getur hann tekið sig á loft og flog-
ið stuttan spöl.
Frú Anne Snoyer í Los Angeles
hefir fengið skilnað frá manninum
sínum. Hann át alltaf þrjá lauka eftir
að hann var háttaður á kvöldin.
London Airport, sem er stærsta
flugliöfn lieimsins, eftir Chicago, fer
væntanlega fram úr Chicago eftir 1—2
ár. Árið 1954 tók flughöfnin á móti
1,5 milljón farþegum, og starfsfólkið
þar er um þúsund manns. — Þar koma
og fara 400 flugvélar á dag. Það færist
mjög í vöxt að senda lifandi skepnur
með flugvélum, og þess vegna hafa
verið reist stór gripahús við flugvöll-
inn og dýralæknir cr jafnan við liönd-
ina þar.
Skammt frá bænum Cecina í Italiu
hefir fundist beinagrind úr fiski, sem
er fjögurra metra langur. Giskað er
á að hann sé um tveggja milljón ára.
í FÍNT SAMKVÆMI. — Þessi kjóll
er frá Dior úr svörtu ullarmusselíni.
Hann er stuttur að framan en verður
að páfuglsstéli að aftan. Hann er mjög
fallegur en þó einfaldur. Hanskarnir
eru saumaðir úr sama efni og kjóllinn.
Á FEIIÐALÖGUM þarf maður að
vera í skjólgóðum fötum. Christian
Dior hefir gert fallega dragt úr rúð-
óttu efni. Slétt pils, sem gott er að
ferðast í og einfaldan kragalausan
jakka. Hann er einhnepptur. Yfir
þessu er stuttur frakki með stórum
vösum.