Fálkinn - 01.06.1956, Síða 3
FÁLKINN
3
Iíússar og Pólverjar skoða íslensku /ningardeildina.
Fiskiðnaðarsýning í Kaupmanna
höfn vekur athygli
Fiskiðnaðarsýningin, sem halclin
er í Kaupmannahöfn um þessár miind-
ir, vekur mikla athygli, og íslands-
deild sýningarinnar hefir hlotið mjög
góða dóma.
Þetta mun vera cin af stærstu vöru-
sýningum sinnar tegundar, sem haldin
hefir verið, og fjölmargar þjóðir hafa
þar deildir sem kynna fiskiðnað
landanna og ýmiss konar framleiðslu,
sem er tengd fiskveiðum og nýtingu
sjávarafla.
íslenska deildin nær yfir 400 fer-
metra sýningarsvæði á ágætum stað
í sýningarhöllinni Forum, og hafa
margir gestir skoðað sýninguna, þar
á meðal sendinefndir frá mörgum
viðskiptalöndum okkar. Þar er t. d.
sýndur saltfiskur á öllum vinnslu-
stigum, skreið, frystur fiskur í marg-
víslegum umbúðum, niðursuðuvörur,
lýsi og mjöl alls konar o. fl.
Eftirtaldir aðilar sýna fiskafurðir
í íslensku deildinni: Samband isl.
samvinnufélaga, Sölusamband ísl.
fiskframleiðenda, Sölumiðstöð lirað-
frystiliúsanna, Samlag skreiðarfram-
leiðenda, Matborg h.f., Mata h.f., Ora,
niðursuðuverksmiðja, Niðursuðuverk-
smiðjan á Bíldudal, Lýsi og Mjöl h.f.,
Síldar & fiskimjölsverksmiðjan h.f.
Kletti, Fiskimjölsverksmiðja Sig.
Ágústssonar, Stykkishólmi, Síldar- &
fiskimjölsverksmiðja Akraness h.f.,
Fiskiðjan s.f., Bernharð Petersen, Lýsi
h.f. og Lýsissamlag ísl. botnvörp-
unga. *
Við brottför úr Iteykjavík. I)r. Finnur Guðmundsson er fimmti frá hægri,
en annar frá vinstri er Carl Petersen, yfirmaður upplýsingaþjónustu
bandaríska sendiráðsins. Ljósmynd: P. Thomsen.
Varplönd heiöagæs-
arinnar rannsökuð
Um miðja síðustu viku lagði leið-
angur af stað til rannsókna á varp-
löndum heiðagæsarinnar í Þjórsárver-
um. Dr. Finnur Guðmundsson fugla-
fræðingur stjórnar leiðangrinum, en
bandaríski herinn lagði til ýmsan út-
búnað og annaðist flutninga á vistum.
Er talið, að varplönd heiðagæsarinnar
á þessum slóðúm séu hin mestu í
heimi. *
Agúst Bjartmarz írá Stykkishólmi
vinnur glæsilegt afrek í badminton
Ágúst Bjartmarz frá Stykkishólmi
varð íslandsmeistari í einliðaleik
karla í badminton árið 1950. Mótið
fór fram i Reykjavík dagana 5. og 0.
júní og voru þátttakendur margir.
Keppt var bæði í meistaraflokki og
fyrsta fiokki. Sigur Ágústs kom nokk-
uð á óvænt, en var þó fyllilega verð-
skuldaður. Undanfarin ár hefir
Wagner Walbom frá Tennis- og
Badmintonfélagi Reykjavíkur verið
ókrýndur konungur badmintoníþrótt-
arinnar og jafnan gengið jneð sigur
af hólmi úr hverjum leik. Er það
vissulega gleðiefni og tákn hin mikla
framgangs þessarar fögru iþróttar,
að hinn snjalli badmintonleikari hef-
ir fengið svo liarða keppinauta sem
raun ber vitni um. Úrslitaleikirnir
í öllum greinum badmintonsins voru
mjög tvísýnir og skemmtilegir.
1 Stykkishóhni hefir badminton-
íþróttin verið iðkuð um alllangt skeið
af miklu kappi og þaðan hafa komið
margir góðir badmintonieikarar.
Formaður Tennis- og Badmintonfé-
lags Reykjavíkur, Kristján Benjamíns-
son, afhendir Guðjóni Einarssyni,
varaformanni ISI, gullmerki félagsins.
Ljósmynd: P. Thomsen.
Það var i stjórnarbyltingunni miklu
í Frakklandi, sem afráðið var að taka
upp metramálið. Alþjóðaskrifstofan
fyrir mál og vog var stofnuð af 18
þjóðum árið 1875. Hún er i Sevres
við París, og þar er geymd liin upp-
runalega meterstika og lóð, hvort
tveggja úr platínu.
Dennis Anson, 25 ára, strauk úr
fangelsi i Leicester. En tveimur tim-
um seinna hringdi hann til lögregl-
unnar og bað liana um að sækja sig
og koma sér í fangelsið. Ástæðan var
sú, að buxurnar hans höfðu rifnað,
svo að liann gat ekki látið sjá sig.
Ein af stærstu kjötverslunum i New
York hefir svolátandi auglýsingu í
gluggunum: „Kótelettur og steik selt
með afborgunum. Ef þér viljið fá ket
þá borgið helming verðs við móttöku
og afganginn seinna.“ Fyrsta daginn
notuðu 14.000 manns sér þetta boð
og átu miðdegisverð með afborgun.
Ágúst Bjartmarz, íslandsmeistari í
einliðaleik karla. Ljósm.: P. Thomsen.
Á skemmtifundi Tennis- og badmin-
tonfélags Reykjavíkur að afloknu
mótinu, voru ýmsir brautryðjendur
badmintoniþróttarinnar sæmdir gull-
merki félagsins. Meðal þeirra var Jón
Jóhannesson stórkaupm., sem mun
hafa „flutt iþróttina inn“ til lands-
ins. Auk þess voru eftirtaldir badmin-
tonleikarar sæmdir merkinu: Unnur
Briem, Jakobína Jóscfsdóttir, Einar
Jónsson, Friðrik Sigurbjörnsson,
Kjartan Hjaltested, Páll Andrésson,
Wagner Walbom, Ingólfur Ásmunds-
son, Magnús Davíðsson og Guðjón
Einarsson. *
Síðastliðinn láugardag voru liðin
100 ár frá fæðingu Páls Eriingssonar
sundkennara. Við það tækifæri var
afhjúpað minnismerki um hann í
Fossvogskirkjugarði. Minnismerkið
gerði Guðmundur Einarsson frá Mið-
dal. (Ljósm.: Ragnar R. Vignir).