Fálkinn


Fálkinn - 08.06.1956, Síða 9

Fálkinn - 08.06.1956, Síða 9
FÁLKINN 9 henni en nokkurn tíma áður. Ég held að ef við hefðum ekki alist upp sam- an — ef ég hefði kynnsl henni eftir að við vorum orðin uppkomin — mundi hún kannske hafa tekið mig alvarlegar. En núna má ég ekki gera mér neina von, því að ég er bara gamli leikbróðirinn hennar hinu megin við götuna. Ég var að ieita að einhverju til að svara. En það var litið sem ég gat fundið honum til huggunar. Og alltaf var ég að hugsa um livað væri að gerast frammi í forstofunni, hver þessi geslur væri, sem kominn var til að tala við Kathie. Var hann eitthvað viðriðinn þessa snögglegu heimkonm hennar? Var það hann, sem átti sök á þvi, að hún var svona miður sín? Allt í einu sá ég að Robin stirðnaði í framan. Ég leit í sömu átt og hann — horfði út um gluggann — og sá Kathie og.háan og herðabreiðan mann ganga framhjá. Þau töluðu saman í ákafa, og ég fann að mér varð órótt. Hver var þessi maður? Hvers virði var hann Ivatliie? — Nei, það er best að ég fari að hypja mig heim, sagði Robin með uppgerðar rósemi. — Viljið þér skila kveðju frá mér til Kathie? — Þú getur hinkrað dálítið við. Hún hlýtur að koma innan skamms. En Robin vildi eklci bíða. Ég fylgdi honum til dyra. Hann brosti neyðar- lega. — Góða nótt! sagði hann. Og svo hvarf hann út í myrkrið. ALLT í einu fékk ég bugboð um að fara út i garðinn. Ég vildi ná i Kat- hie og fá hana til að koma með mér inn, annað hvort með eða án þessa dularfulla gests, sem mér var í nöp við. Meðan hún ætti lieima undir mínu þaki, yrði hún að láta svo litið að haga sér skikkanlega og vera ekki ókurteis við sína gesti eða mína. Ég var langstígur niður í garðinn, og því meira sem ég hugsaði um þetta því reiðari varð ég. Ég sá hvergi Kathie eða þennan vin hennar. Mér dat't í hug hvort þau mundu hafa laumast niður á milli trjánna neðst í garðinum. Þegar ég kom niður að trjánum lieyrði ég raddir innan úr lystihúsinu til hægri við mig. — Þú hafðir engan rétt til að koma hingað yfirleitt! Það var rödd Kathie sem ég heyrði, og liún var nærri því eins reið og ég. — Hvers vegna ekki? Mannsröddin var djúp og stilliteg. Það varð ekki annað heyrt en að honum liði vel. — Ég elska þig, trúirðu því ekki? Þú talar eins og barn, Kathie. Ég hélt að þú værir vaxin upp úr þvi. —- Ég er vaxin upp úr því, sagði Kathie áköf. — Það er þess vegna, sem ég fór heim. Ég er ekki svo mikið barn, að ég láti fanta eins og þig villa mér sjónir, Barney! — Farðu nú liægt, telpa mín! Þó að ég sé i hamingjulausu hjónabandi, þarf ég ekki að vera fantur .. . — Nei, en það var fúlmennska að segja mér ekki frá því! Þú ællaðir þér að ginna mig burt með þér og segja mér ekki frá neinu fyrr en það væri orðið um seinan. — Skrambi ertu orðin siðavönd, Kathie, svona allt i einu! Það er ekki langt síðan þú sagðir mér, að þú fyrir- litir fólk, sem væri tiltektasamt og gamaldags. — En þetta er hvorki tiltektarsemi né gamaldags, það er ... Framhald á bls. 11. Stjörnulestur eftir Jón Árnason, prentara. Sólmyrkvi 8. júni 1956. Alþjóðayfirlit. Loftsmerkin eru yfirgnæfandi i áhrifum og benda á aukna hugræna starfsemi. En breylilegu merkin eru einnig yfirgnæfandi og því munu ákvarðanirnar frekar óákveðnar og breytilegar. Sólmyrkvinn iokar fyrir lífsorkuna í bili og mun það draga frekar úr þrótti viss flokks manna í Bandaríkjunum. Þeim, sem fæddir eru á þessum degi er hætt við að taki sjúkdóm, sem gæti orðið örð- ugt að lækna. Áhrif jiessi gætu dregið úr minni og tafið hugsanastarfsemina að einhverju leyti, einnig vegna þess að myrkvinn hefir slæma afstöðu frá Úran. — Einnig hefir myrkvinn sterk áhrif í þeim löndum, sem hann er hátt á lofti. Einn eða fleiri jarðskjálftar gætu átt sér stað. Lundúnir. — Sólmyrkvinn i 6. lnisi. Verkamenn og málefni þeirra munu undir áberandi áhrifum og veitt eftir- tekt. Fjárhagsástæður munu koma þar til greina. — Mars í 2. húsi. Fjárhags- reksturinn mun tviræður og ágrein- ingur gæti komið upp í sambandi við pcningaverstunina. Eldur gæti komið upp í banka. — Merkúr i 5. húsi. Álita- mál um rekstur leikhúsa og skemmti- staða. — Venus og Úran í 7. húsi. Ágreiningur mikill gæti átt sér stað út af utanríkismálunum og mun stjórnin eiga í vök að verjast. — Júpiter i 8. húsi. Sæmileg afstaða fyrir ríkið til erfða og gjafa og leyndar- ráðið hefir sæmilega afstöðu. — Nep- tún og Satúrn í 9. liúsi. Búast má við töfum i utanlandssiglingum og við- skiptum og útflutningi. Berlín. Sólmyrlcvinn í 5. húsi. Skemmtanir, leikhús og leikarar und- ir áberandi áhrifum og þeim veitt mikil atliygli. Þó mun eftirtekjan nokkru minni en vonað var. — Mars i 1. húsi. Óánægja nokkur mun rísa út af trúmálum og um það gætu orðið blaðadeilur. — Merkúr í 4. liúsi. Um- ræður miklar og ágreiningur um rekstur landbúnaðar og eignir gætu lækkað í verði. — Venus i 6. húsi. Aðstaða verkamanna ætti að vera góð og heilbrigði ætti að vera með betra móti. — Úran í 7. húsi. Ekki bein- línis heppileg afstaða fyrir utanríkis- þjónustuna. Itætt við töfum og svik gæti komið í ljós. — Neptún í 9. lnisi. Uppreisn gæti komið i ljós í siglinga- og flutningaflótanum og útlendum við- skiptum. — Satúrn í 10. húsi. Stjórnin á í örðugleikum ýmsum, bæði inn á við og út á við. Moskóva. — Sólmyrkvinn í 4. húsi. Athugaverð afstaða fyrir landbúnað- inn og rekstur hans. Ágóðinn ekki nægilegur. •— Mars í 1. húsi. Urgur nokkur liklegur vegna trúmála og slikrar starfsemi. Hitasóttir gætu gerl vart við og sig eldsvoðar. —- Merkúr í 3. húsi. Samgöngur og flutn- ingar undir áberandi áhrifum, urgur og umræður og reksturinn lélegur. —- Venus i 5. húsi. Leikstörf og skenmit- anir undir góðum áhrifum, þó gæti fjárhagurinn orðið minni en æskilegt væri. — Úran í G. húsi. — Óróleiki nokkur gæti átt sér stað meðal verka- manna og jafnvel í hernum og undan- gröftur gæli átt sér stað. — Júpíter í 7. lnisi. Athugaverð afstaða í utan- rikisviðskiptum og rekstri utanríkis- mála. — Satúrn i 8. lnisi. Dauðsföll meðal fyrrv. embættismanna frekar áberandi. Tokyó. •— Sólmyrkvinn i 12. húsi. Góðgerðastofnanir, fangelsi, sjúkra- hús og vinnuhæli undir athyglisverð- um áhrifum og gagnrýni. — Venus i 1. liúsi. Bendir á frekar góða afstöðu almennings og heilsufar gott. — Júpíter í 3. lnisi. Samgöngur og flutn- ingar undir góðum áhrifum og gefa góðan arð. — Neptún i 5. húsi. Leik- hús og leiklist og skemmtanastarf- semi gengur frekar vel og undir dul- rænum áhrifum. — Mars í 9. húsi. Barátta meðal siglingamanna og eid- ur gæti komið upp í flutninga- og farþegaskipi. Washington. — Sólmyrkvinn i 8. húsi. Dauðsfötl meðal háttsettra manna áberandi. — Úran í 9. húsi. Óeirðir í siglingaflotanum og spreng- ing gæti komið upp í flutningaskipi. — Júpiter í 10. húsi. Góð afstaða stjórnarinnar bæði úl á við og inn á við. — Neptún í 12. húsi. Sviksemi gæti komið í ljós i rekstri vinnuhæla, sjúkrahúsa og góðgerðastofnana. — Satúrn í 1. húsi. Örðug aðstaða al- mennings og kvillasamt. — Mars i 4. húsi. Eldur gæti lcomið upp i sveita- setri eða búgarði. ÍSLAND. 7. hús. — Sólmyrkvinn í húsi þessu. Líklegt að utanríkismálin mun mjög á dagskrá og hæpið um meðferð þeirra, jafnvel undirróður og svik komi i ljós og undangröftur á bak við tjöldin. 1. hús. — Júpiter ræður húsi þessu. Hefir yfirgnæfandi slæmar afstöður. Líklegt að aðstaða almennings verði örðug á ýmsa lund og koma áhrifin úr ýmsum áttum: Frá þinginu. stjórn- inni, utanríkismálum og fjármálum. 2. hús. — Satúrn ræður húsi þessu. — Örðugleikar miklir i fjármála- rekstrinum og bönkunum. 3. hús. — Júpíter ræður húsi þessu. Tafir nokkrar gætu ált sér stað i flutn- ingum, bókaútgáfu og blaða og frétta. 4. hús. — Mars ræður húsi þessu. Urgur meðal bænda, útgerðarmanna og annarra styi-kþega út af erfiðum viðskiptum út af styrkgreiðslum o. fl. 5. hús. — Venus ræður húsi þessu. Dugnaður nokkur ætti að koma í ljós í rekstri skemmtistaða og leikhúsa, en fjárhagsafkoman verri og kostnað- ur meiri. 6. hús. — Venus ræður húsi þessu. Afstaða verkamanna ætti að vera frekar góð, en þó er liklegt að auknir fjárhagsmöguleikar verði minni en við var búist. 8. hús. — Vcnus í 'húsi þessu. — Ríkið gæti eignast arf eða gjöf. 9. hús. — Merkúr ræður luisi. þessu. Umræður gætu orðið miklar um utan- landsverslun og siglingar og afkoman versnað. 10. liús. — Neptún í liúsi þessu. F.kki heppileg afstaða ráðendanna og ýms- ir háttsettir mcnn gætu tapað áliti og fylgi. 11. hús. — Satúrn i húsi þessu. ■—- Stjórnin á i örðugleikum, tafir í fram- vindu og meðferð mála. Þingmaður gæti látist. 12. hús. — Engin pláneta í húsi þessu og þvi eru áhrif þess lítt ábcr- andi. Ititað 22. maí 1956. Vitið þér...? VDHJ að í sumum löndum eru menn- ingarverðmæti tolluð eftir þyngd? Þetta á sérstakiega við um bækur og höggmyndir, en bækurnar eru víða tollaðar sérstaklega, ef þær eru bundnar í skinn. Tollur er líka lagður á málverk, vísindatæki, segul- bönd, kvikmyndir og fleira því líkt. En allt þetta skiptir miklu máli fyrir gagnkvæm menningarsamskipti þjóð- anna, og þess vegna er nú verið að ræða um að fá tollana lækkaða eða afnumda. »o •' n að met-framleiðsla varð á kolum í Evrópu 1955? Framleiðslan varð — Sovétrikin ekki meðtalin —. GIG milljón smálestir, og er það G milljón smálestum meira en 1954. Eigi að síður fullnægir fram- leiðslan ekki eftirspurninni, og voru 24 milljón smálestir fluttar inn frá Ameríku síðasta ár, en 9 milljón smá- lestir árið áður. að enginn munur er á ýmsum eðalsteinum — nema liturinn? Ametyst er purpurarauður, smar- agðinn er grænn, tópazinn gulur og rúbíninn rauður, en eigi að síður er sania efnið í þeim öllum, •— aðallega súrefnissamband af aluminium. — Ef þessir steinar væru með sama lit, mundi vera ógerningur að þekkja þá sundur.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.