Fálkinn - 15.06.1956, Blaðsíða 3
FÁLKINN
3
Þessar 13 stúlkur komu fram í fegurðarsamkeppninni á sunnudagskvöldið. Sigurvegarinn, ungfrú Guðlaug Guðmundsdóttir, er í fremri röðinni,
lengst til vinstri. Ljósmynd: Vignir.
jr
''JegurðardrollnÍng öslands 1956«
Þessar fimm blómarósir kepptu til úrslita í fegurðarsamkeppninni.
Það var margt um manninn í
Tivoli á sunnudags- og mánu-
dagskvöld. Þar fór fram fegurð-
arsamkeppni, sem mjög var vand-
að til. Þrettán stúlkur tóku þátt
í samkeppninni og veitt voru
fimm verðlaun. „Fegurðardrottn-
ing íslands 1956“ var kjörin
Guðlaug Guðmundsdóttir, Kirkju-
teig 14, Reykjavík, og hlaut hún
framúrskarandi góðar viðtökur
hjá hinum mikla fjölda áhorf-
enda, sem safnast hafði saman í
skemmtigarðinum bæði kvöldin.
Það er mál manna, að margar
aðrar bráðfallegar stúlkur hafi
einnig verið meðal þátttakenda.
9
„Fegurðardrottning fslands 1956“,
Guðlaug Guðmundsdóttir, gengur fram
á sýningarpallinn.
Fyrra kvöldið völdu um sex
þúsund manns fimm úr hópi
þeirra þrettán, sem komu fram á
kjólum, til þess að taka þátt í úr-
slitakeppninni á mánudagskvöld-
ið. Þessar fimm stúlkur komu þá
fram á sundfötum og greiddu
áhorfendur atkvæði um það,
hver þeirra skyldi hreppa titilinn
„fegurðardrottning íslands 1956“.
Jafnframt var kjörseðillinn þann-
ig útbúinn, að kjósendur skyldu
greina röð stúlknanna að öðru
leyti, því að allar höfðu til verð-
launa að keppa.
Kl. 12 á miðnætti voru úrslit
kunngerð og tilkynnt að ungfrú
Guðlaug Guðmundsdóttir (númer
6) hefði verið kjörin fegurðar-
drottning. Hlýtur hún að verð-
launum, auk nafnbótarinnar, ó-
keypis ferð til Bandaríkjanna, þar
sem hún mun keppa um titilinn
„Miss Universe“ í Long Beach í
Kaliforníu í næsta mánuði. Önn-
ur verðlaun, útvarpsgrammófón,
hlaut Rúna Brynjólfsdóttir (nr.
3) Birkimel 8, þriðju verðlaun,
flugferð til Kaupmannahafnar og
til baka, Þórdís Tryggvadóttir
(nr. 5), Mávahlíð 1, fjórðu verð-
laun, dragt, Margrét Jónsdóttir
(nr. 9), Sólvallagötu 60, og
fimmtu verðlaun, gullúr, Jóhanna
Sigurjónsdóttir (nr. 7), Höfða-
borg 43.
Hin nýkjörna fegurðardrottn-
ing er 19 ára gömul verslunarmær
og hefir unnið í Ingólfsapóteki. *