Fálkinn - 15.06.1956, Page 11
FÁLKINN
11
Vitið þér...?
VOll-l
að síðan 1938 hefir iðnaðar- og
námuframleiðsla heimsins tvö-
faldast?
Og jafnframt hefir flutningageta
skipa og járnbrauta tvöfaldast líka,
og bílar eru tvöfalt fleiri en 1938. En
verðmagn alþjóðlegrar verslunar 'hefir
þrefaldast. — Þetta stafar ekki aðeins
af því aS fókinu i heiminum hefir
fjölgaS, eSa um 500 milljónir, á undan-
förnum 18 árum, en einnig vegna þess
að framleiðsluaðferðirnar eru orðnar
fullkomnari.
að í mörgum löndum er helming-
ur fullorðins fólks ólæs?
Með „fullorðnum" eru þá taldir all-
ir sem eru yfir tíu ára. Bæði i Brasilíu
og Venezuela eru 51% af þjóðinni ó-
æsir, og eru þó alls ekki taldir með
villimennirnir í frumskógunum. I
portugölsku Guineu í Afríku teljast
aðeins þrjár manneskjur af hverjum
þúsund læsar og skrifandi.
CHAPLIN. Framhald af bls. 7.
sagt. Að minni skoðun er Charlie
Ohaplin mesti listamaður, sem við
höfum nokkurn tíma átt, og það getur
enginn farið í fötin hans. Ég hefi
þekkt hann i tuttugu ár, og við höf-
um oft rifist, því að hann hefir skoð-
un og bein i nefinu. Það getur verið
að hann hafi farið eitthvað út af lin-
unni, en kommúnisti er hann ekki.
Þetta var saga Charlie Chaplin fram
til þessa. Hann er nú 66 ára, og ýmsir
halda að hann búi ekki til fleiri
myndir. En þessu hefir verið spáð svo
oft áður að því er ekki treystandi.
Margir segja að hann liafi verið
heppinn, að koma til sögunnar svo
að segja um leið og kvikmyndin. Það
er ekki vafi á að kvikmyndin hefir
skapað lionum heimsfrægð. En það
er sennilegt að hann mundi lika hafa
komist á hátindinn sem leikhúsaleik-
ari, eða sem rithöfundur og tónskáld.
En það verður umrenningurinn með
harða hattinn, stafinn og stóru stíg-
vélin, sem í meðvitund fjöldans lifir
sem Charlie Chaplin um ókomin ár. *
E n d i r .
LITLA SAGAN
Harmsaga við
landamærin
HEBBA Analole Merveille seltist
hljóðleiga i klefahornið. Leitaði í vös-
unum, dró upp vasaklút og þerraði
svitadropana af enninu. Höndin skalf.
Hann hafði lent i mörgu mótlæti
um morguninn. Hann hafði að visu
átl von á að þetta yrði erfitt og reyndi
á taugarnar, en ekki því að taugarnar
biluðu svona. Skjálfandi stunur
heyrðust þegar hann dró andann og
hann leit ílóttalega kringum sig. Þótt
allt hefði gengið eftir áætluninni, sem
hann hafði gert fyrir löngu, fannst
honum að eitthvað mundi gerast á
síðustu stundu, sem eyðilegði allt fyr-
ir 'honum.
Hann leit á klukkuna á stöðvarhúss-
veggnum. Eftir þrjár mínútur átti
lestin að fara. Þrjár óendanlegar mín-
útur. Hann færði sig fram og aftur
á bekknum og hrökk í kút þegar 3—4
farþegar konm inn i klefann.
Hann hafði drepið mann. Með köldu
blóði. Kæft mann í greipunum, mann
sem hann þekkti nauðalitið. Honum
fannst stundin, sem liann var að þessu,
fyrir löngu liðin, og þó var ekki nema
hálftími síðan. í rauninni hafði þetta
verið auðvelt. Maðurinn hafði ekki
veitt mótspyrnu, hann var of gamall
til þess. Óg svo hafði hann enga von
um að sleppa. — Það fór hrollur um
hann þegar hann minntist þess hvern-
ig augu gamla Brisquets höfðu starað
á hann stutta sekúndu áður en lifið
slokknaði. Peningarnir, sem hann
fann hjá okraranum — þrjú hundruð
þúsund frankar i stórum og smáum
seðlúm — voru geymdir á öruggum
slað, þar sem lögreglan niundi aldrei
finna þá. Eftir nokkra mánuði, þegar
lögreglan hefði komist að raun um,
að ekki væri hægt að finna morðingj-
ann, því áð hvergi var spor til að
rekja, ætlaði hann að skreppa i stutta
heimsókn, hirða peningana og hverfa
fyrir fullt og allt. Morð Maurices
Brisquets mundi verða ráðgáta um
aldur og ævi.
Hann strauk döggina af rúðunni og
leit á klukkuna aftur. Enn vöru nærri
í Bandaríkjunum eru 755 útvarps-
tæki á hverja þúsund ibúa.
Elsti háslcóli í heimi er háskólinn
í Bologna í Ítalíu.
Samkvæmt hagskýrslum er ein fæð-
ing af hverjum 85 tvíburafæðing, ein
af hverjum 7628 er þríburafæðing og
ein af hverjum 670.734 er fjórbura-
fæðing.
íbúar heimsins borða nú á dögum
meira af ávöxtum og grænmeti en af
kartöflum.
í árslok 1954 voru kringum 1500
hlöð í Vestur-Þýskalandi.
1. janúar var talinn fyrsti dagur
ársins frá 700 til 450 f. Kr. En þaðan
frá og til ársins 46 f. Kr. var árs-
byrjunin talin frá marsmánuði. Juli-
us Cæsar lét endurskoða tímatalið og
siðan 4(i f. Kr. hefir 1. janúar jafnan
verið nýársdagur.
tvær mínútur eftir. Þetta var óþol-
andi. Aðeins kortéri eftir að lestin
færi af stað, nmndi hún fara yfir
landamærin. Og eftir það gat enginn
mannlegur máttur náð til lians. Hann
ætlaði að minnsta kosti ekki að láta
taka sig lifandi. Hann strauk hend-
inni um jakkavasann, sem skamm-
byssan var í, og hægði við það.
Hvað þurfti hann að óttast? Lik
Brisquets gamla mundi ekki vera
fundið enn])á, og þótt það væri fundið,
gat enginn sagt að hann hefði séð
Anatole Merveille í grennd við morð-
staðinn. í mesta lagi gat einhver hafa
séð kengboginn karl með gleraugu
og skegg hafa komið út frá Brisquet
um hádegið. Gervið var ágætt. Og
hann hafði æft hlutverkið i marga
mánuði. Eólk sem þekkli Anatole
Merveille mundi fúst til að sverja, að
þetta hefði ekki verið hann.
Ein mínúta eftir. Anatole elti vís-
inn með augunum. Allt í einu hrökk
hann við. Tveir lögregluþjónar komu
fram stéttina. Töluðu svið stöðvar-
stjórann, sem var að bera blistruna
upp að vörunum. Svo stefndu þeir á
vagninn, sem hann sat í, þann fremsta.
Anatole Merveille fékk velgju og
svima. Ósjálfrátt stakk hann liendinni
í vasann og greip um skammbyssuna.
Kaldur sviti spratt fram á en'ninu.
Nú heyrði hann að dyrnar á næsta
klefa voru opnaðar.
— Þeir eru að leita að einhverjum,
— leita að mér, sagði hann við sjálfan
sig og fann að hann hriðskalf.
Á næsta augnabliki var tekið i lás-
inn lijá 'honum og þegar hann leit upp
sá hann stóran lögregluþjón með grátt
yfirskegg í dyrunum.
Lögreglúþjónninn leit á farþegána
og þegar hann sá Anatole, tók hann
hendinni um öxlina á honum.
— Anatole Merveille, sagði hann,
— ég ...
Þetta gerðist svo fljótt að enginn
vissi fyrr en það var afstaðið. Anatole
hafði þrifið skammbyssuna og skot-
ið sig.
Lestinni seinkaði um 20 mínútur.
Lík Anatoles lá á bekk inni hjá stöðv-
arstjórannm. — Ég skil þetia ekki,
sagði lögrégluþjónninn. Um leið og
ég sagði nafnið hans og klappaði á
öxlina á honum skaut hann sig. Ég
þekkti hann nefnilega síðan við vor-
um saman í hernum fyrir tuttugu ár-
um, og langaði til að heilsa honum. *
Frú i Ivaliforníu fékk skilnað eftir
fimm daga hjónaband. Maðurinn
hafði eyðilagt hveitibrauðsdagana
með því að ganga i flúnelsnáttfötum.
Múhamed skrifaði ekki einn staf
i Kóraninum — biblíunni sinni. Það
voru lærisveinar hans sem gerðu það,
og þeir skrifuðu hann ýmist á steina,
pálmablöð, skinn eða dýrabein. Þegar
Múhameð dó vár öllum þessum skrif-
um safnað sarnan í eina lieild, undir
ritstjórn Otmans kalífa, sem þó vins-
aði úr það, sem honum þótti ótrú-
legast og hleypti þvi ekki inn í Ivór-
aninn.
Loftsteinar — meteorar — lenda
oft á tunglinu ekki síður en á jörð-
inni. Munurinn er aðeins sá, að á
tunglinu lenda þeir nær óskaddaðir.
Þetta stafar af því, að ekkert loftlag
er kringum tunglið, sem hitar þá eða
jafnvel brennir þá upp til agna, eins
og loftsteinana sem koma til jarðar-
innar.
T ískumynclir
TWEED SAMSTÆÐA með stökum
jakka. Það er skrítið uppátæki hjá
Pierre Balmain að koma með þessa
rauð- og svartsprengdu dragt og stak-
an jakka fóðraðan með persian. Á
þennan hátt fæst ekki einungis dragt-
in heldur einnig hlý yfirflík svo óþarft
er að kalla þetta lúxus.
VARIST FELLINGAR. — Konur
skyldu ekki velja þetta snið nema gild-
leikinn sé hæfilegur. Það fer best á
grönnum. Maurice Retner hefir valið
flöskugrænt jersey í kjólinn og skjólið
er núr ncrts. Það er hneppt með þrem-
ur hnöppum að framan.