Fálkinn - 10.08.1956, Blaðsíða 3
FÁLKINN
3
Þann 17. júlí var afhjúpað í sal Alþingishússins á neðstu hæð málverk Gunnlaugs Blöndal af þjóðfundinum 1851. Sigurður Bjarnason,
forseti neðri deildar, flutti stutta ræðu við það tœkifæri og lýsti tildrögum að gerð myndarinnar. — Það var árið 19'+3 sem Gísli Sveins-
son, þáverandi forseti sameinaðs þings og Jónas Jónsson, alþingismaður, beittu sér fyrir því, að mynd yrði gerð af þjóðfundinum og var
Gunnlaugur fenginn til þess. Ráðgert var, að myndin yrði til á lýðveldishátíðinni 19ýJj, en verkið reyndist tafsamara og umfangsmeira
en œtlað var í fyrstu og var þá aðeins til frumteikning, sem þótti þegar mjög góð og var sett á sýningu. Gisli Sveinsson og Jón Sigurðs-
son, skrifstofustjóri Alþingis sömdu svo við Blöndal að halda verkinu áfram, og er því nú lokið. Myndin er 2xý,6 metrar að stærð.
Kvaðst forseti neðri deildar vilja færa listamanninum þakkir þingsins fyrir þetta ágæta verk, sem væri brautryðjendastarf á sviði sögu-
legrar málarálistar hér á landi.
Framan við borðið, frá vinstri: 2. Kristján Kristjánsson, land- og bæjarfógeti. 3. Hélgi Thordersen, biskup. ý. Trampe, greifi. 8. Jón Sig-
urðsson, forseti. 9. Jón Gúðmundsson, ritstjóri. 10. Björn Hálldórsson, prestur. 11. Eggert Briem, sýslumaður. — Sitjandi bák við
borðið, frá vinstri: 1. Sveinn Níelsson, prestur. 2. Gisli Magnússon, kennari. 3. Þórður Sveinbjörnsson, konferensráð. ý. Árni Böðvarsson,
prestur. 5. Þórarinn Kristjánsson, prófastur. 7. Páll Melsteð, sýslumaður. 9. Pétur Pétursson, síðar biskup. 10. Guðmundur Einarsson,
prestur. — Standandi bak við borðið, frá vinstri: 6. Jón Jónsson, Munkaþverá. 7. Jakob Guðmundsson, prestur. 8. Þorváldur Sivertsen,
Hrappsey. 9. Jósep Skaptason, héraðslæknir. 10. Páll Mélsteð, amtmaður. 11. Jens Sigurðsson, kennari. 12. Ásgeir Emarsson, Kolla-
fjarðarnesi. 13. Hannes Stephensen, prófastur. 15. Hálldór Jónsson, prófastur. 16. Ólafur Johnsen, prestur, 19. Jóhann Briem, prófastur.
20. Páll Sigurðsson, Árkvörn. 21. Magnús Stephensen, sýslumaður. — (Þessir eru þjóðfundarmenn, sem hægt var að nafngreina örugg-
lega af öðrum myndum, af flestum hinna var engin Ijósmynd til).
Hotðiu lappirnar - og hjdlpaiu hjartann
scgir hjartasjúkdómasérfræðingur Eisenhowers.
Hann vegur ekki nema 70 kíló, en er þó 186 sm. hár. Eisenhower hlýðir hon-
um eins og rakki og þess vegna má segja að þessi maður, dr. Paul Dudley White
sé verðugri en sjálfur forsetinn. Hann er sem sé læknir hans og segir honum
hvað hann má gera og hvað hann má ekki gera. Og Eisenhower hlýðir alltaf.
Hár maður gráhærður stigur út úr
járnbrautarvagni í New Yorlc með
stórar töskur i báðum böndum. Burð-
arkarlar koma þjótandi til að bjóðast
til að bera töskurnar. — Nei, þökk
fyrir, segir sá gráhærði. — Eg ber
alltaf töskurnar minar sjálfur ...
Þegar hann var farinn segir einn
burðarmaðurinn: — Maðurinn er
geggjaður. Hafið þið nokluirn tíma
vilað, að maður rogist með svoná
byrði sjálfur?
Þetta gerðist í fyrrasumar. Skönnnu
siðar vissu allir burðarkarlar USA,
að ekki þýðir að reyna að versla við
þann langa gráhærða. Það bafði nfl.
spurst að dr. Paul Dudley White, einn
af 5 frægustu bjartasjúkdómalæknum
Ameríku og iæknir Eisenhowers,
liefði sett sér fimm lifsreglur, scm
bann brá ekki út af, til að halda bjart-
anu í sér sem best við. Þær voru
þessar:
1. Þegar þú kemur i borg þá láttu
samfcrðafólkið sitja fyrir leigubíln-
um. Þú ferð gangandi sjálfur.
2. Ef gistihúsið er ekki nema tíu
minútna leið frá stöðinni, þá haltu
sjálfur á farangrinum þinum þangað.
3. Sértu í þínum eigin bæ þá farðu
gangandi í búðirnar. Þurfir þú að
fara langt, þá notaðu reiðhjól en ekki
bíl.
4. Mokaðu snjó-
inn frá búsdyrun-
um þinum sjálfur.
5. Dútlaðu að
minnsta kosti hálf
tíma á dag úti við
í garðinum cða við
eitthvað annað.
Þessar reglur vill
dr. White að allir
haldi, ef bjartað í
þeim er í lagi. En
jafnvel þó að um
hjartveikt fólk sé
að ræða, er bann
á móti of mikilli
varúð. „Tilfellið
Eisenhower“ sýnir
það.
Þó að Eisen-
bower væri ekki
nema hársbreidd
frá dauðanum að-
faranótt 24. sept. í
fyrra, bleypur bann
nú upp og niður
stigana í hvíta hús-
inu en lætur gest-
Frh. á bls. 14.
Dr. Paul Dudley Wliite.