Fálkinn


Fálkinn - 31.08.1956, Side 3

Fálkinn - 31.08.1956, Side 3
FÁLKINN 3 FARUK vonar, að Nasser geri ein- hverja skyssu í sambandi við Súez- málið, svo að hann komist til valda á ný. Annars má hann ekki skipta sér opinberlega af stjórnmálum að fyrirskipun ítölsku stjórnarinnar. j5ue%-rnðstefiuin Lundúnaráðstefnan um Suez-málið var aðalumræðuefni heimsblaðanna um nokkurt skeið. Henni er nú lokið, en samt er ekki ennþá séð fyrir endann á þessu þýðingarmikla máli. Ljóst er þó, að ólguna hefir lægt nokk- uð, og þykir nú síður ástæða til að óttast styrjöld heldur en áður var. — Þessi mynd er frá Lundúnaráðstefn- unni. Talið frá vinstri: John Foster Dulles, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þá rússneskur fulltrúi, síðan Dimitrij Shepilov, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, og við hlið hans Jakob Malik í léttum samræðum við Selwyn Lloyd, utanríkisráðherra Bretlands. Níxon í j5ou Ftflncisco Nú hafa báðir stærstu stjórnmálaflokkar Bandaríkjanna, repúblikanar og demókratar, valið frambjóðendur sína við forsetakosningarnar í haust. í demókrataflokknum var Stevenson valinn forsetaefni með yfirgnæf- andi meirihluta atkvæða, þrátt fyrir stuðning Trumans, fyrrv. forseta, við Harriman, og Kefauver var kjörinn varaforsetaefni. í republikanaflokknum kom aldrei neinn til álita sem forsetaefni nema Eisenhower, sem virðist öruggur í sessi og vinsæll innan flokksins, eins og hjá þjóðinni. Hins vegar var búist við miklum átökum um það, hver ætti að vera varaforsetaefni. Harold Stassen, hægri hönd Eisenhowers í efnahagsmálum, snerist opinberlega gegn Nixon varaforseta, en að lokum lét hann þó af andstöðu sinni og þeir Eisenhower (Ike) og Nixon (Dick) voru kjörnir einróma til framboðs. Fréttir herma, að enginn stjórnmálaleiðtogi hafi fengið betri viðtökur á flokksþingi vestra, hvorki fyrr né síðar, en Nixon, þegar hann kom til San Francisco, þar sem republikanar völdu frambjóðendur sína. Fylgismenn hans fjölmenntu til að tjá honum hollustu sína. — Hér sést hann ásamt konu sinni við komuna til borgarinnar. WILLY WILLIAMS nýi heimsmet- hafinn í 100 metra hlaupi. Hann hljóp vegalengdina á 10,1 sek. og bætti met Jesse Owens um 1/10 úr sek. SOPHIA LOREN leikur nú í mynd suður á Spáni ásamt Cary Grant og Frank Sinatra. Hér sést hún með asna, sem leikflokkurinn hefir sér til hcilla.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.