Fálkinn - 31.08.1956, Blaðsíða 4
4
FÁLKINN
lodversku furstarnir feigir
Lýsingarnar í „1001 nótt“ eru
enn í fullu gildi sums staðar í ver-
öldinni. Til dæmis í Indlandi og
Pakistan, hinum tveim ríkjum er
mynduð voru úr Indlandi hinu
forna, er Bretar slepptu yfirráð-
um þar 15. ágúst 1947. Nú er
Pandit Nehru, fornvinur þjóðhetj-
unnar Gandhi, sá sem mestu ræð-
ur í Indlandi og hefir haft stjórn-
arforustu í níu ár. Eitt af stefnu-
málum hans er að koma á meira
jafnrétti í þessu mikla ríki, sem
hefir um 370 milijón íbúa (Pak-
istan hefir um 80 milljónir). En
hér er við ramman reip að draga.
Andstaðan kemur ekki aðeins
frá forréttindastéttunum sjálfum
heldurlíka frá hinum kúgaða lýð,
sem sakir hjátrúar og vanafestu
telur sjálfsagt að allt haldist í
sama ófremdarástandinu.
Þriggja manna nefnd hefir
starfað að þessum málum í 21
mánuð. Samkvæmt tillögum
hennar eiga indversku furstarnir
— maharajaharnir — að hverfa
úr sögunni, auðævi þeirra að
renna til rikissjóðs og kvennabúr
þeirra að leysast upp. Nefndin hef-
ir kannað kringum 150.000 skjöl
viðvíkjandi þessu máli og leitað
munnlega álits 9.000 manna, og
hún hefir ferðast 60.000 kiló-
metra um landið til að kynna sér
málið af eigin sjón og raun.
Álit nefndarinnar gengur í þá
I Indlandi ríkir meira misrétti en í nokkru öðru menningarlandi. Örfáir menn
hafa safnað kynstrum auðæva en allur fjiildinn býr við kjör, sem alls ekki
eru mannsæmandi. — Nú vill Indverska stjórnin ráða bót á þessu og útrýma
blóðsugum þjóðféíagsins — furstunum, sem öldum sarnan hafa mergsogið
þjóðina.
átt að í stað þeirra 27 furstarikja,
sem nú eru í Indlandi komi 16
umdæmi, auk þriggja nýrra og
að hjálendunum í Indlandi verði
framvegis stjórnað beint frá Nýju
Delhi. En maharajaharnir og
prinsarnir, er ríkt hafa einvaldir
síðan 1947, verði settir af eftir-
launalaust og sviptir tignarheitum
sínum. Það er ekkert smáræðis-
kaup, sem þeir hafa haft. T. d.
hefir maharajahinn af Baroda
haft 11—12 millj. króna árslaun.
Nokkrir minni háttar maharaja-
har og prinsar voru settir af undir
eins og Indland varð sjálfstætt
ríki. Fluttust þeir til N.-Dehli og
lifa þar í höll eins hinna afdönk-
uðu, og hafa þar klúbb. Enginn
klúbbur telur jafn marga afsetta
þjóðhöfðingja og þessi. Þar ræða
furstarnir vandamál sín, einkum
hvernig þeir eigi að koma eign-
um sínum úr landi og losna við
konur sínar og hjákonur.
Fæstir þessara manna hafa þá
menntun, að þeir geti unnið fyrir
daglegu brauði. Þó er maharaja-
hinn af Gondal læknir, og hefir nú
sett upp lækningastofu. Sumir
hafa fengið stöðu í þjónustu ríkis-
ins og starfa í sendiráðum er-
iendis.
Margt einkennilegt mætti af
þessu mindversku furstum segja,
en hér verða nokkrar sundurlaus-
ar glefsur að nægja. Þær eru flest-
ar lygilegar og munu þó sannar
samt.
Rajahinn af Junnagar var einn
mesti eyðsluseggur sinna stéttar-
bræðra. Hann notaði til eigin
þarfa um helming af öllum tekj-
um ríkis sins og varð alræmdur
fyrir bruðl. En mestur grimmd-
arníðingurinn er rajahinn af
Akwar talinn. Sumar konur hans
dóu með grunsamlegum hætti og
var talið að hann hefði stytt þeim
aldur. Árið 1932 gerðu bændur
uppreisn í ríki hans og er fært í
frásögur hve níðingslega hann
hafi bælt uppreisnina niður. Eitt
sinn hellti hann bensíni yfir einn
hestinn sinn og kveikti í. Þetta
gekk svo fram af fólki að honum
varð illa vært í landinu og hrökl-
aðist hann þá til Frakklands og
dó í París árið 1937.
Maharajahinn af Kapurthala
hafði mikla ágirnd á perlum og
gimsteinum og var kóróna hans
Karan Singh einkasonur maharajahsins af Jammu og Kashmir, og prinsessan Yashorajya Laxmi.
nýlega gift.
Þau
Maharajahinn af Kashmir. Margar
muntlu vilja eiga periufestina.
alsett 3000 perlum og demöntum.
Annars lagði hann sig aðallega
eftir bifreiðum og hafði safnað
að sér 250 til eigin nota. Kon-
ungurinn í Kashmir keypti dýr-
indis bát handa hundinum sínum.
Og gimsteinarnir sem átján ára
furstasonur frá Jaipur bar, er
hann kom fram opinberlega, voru
svo þungir að tveir menn urðu
að styðja hann svo að hann kikn-
aði ekki undir þeim. Voru þessir
gimsteinar taldir kringum 16
milljón kr. virði.
Þó voru furstarnir af Patiala,
Travancore, Baroda og Hydera-
bad enn rikari. Maharajahinn af
Patiala átti fjölda ævintýrahalla
og stúlkurnar í kvennabúrum hans
skiptu hundruðum. Skemmtigarð-
ar hans voru undurfagrir og í
fuglagarði sínum hafði hann safn-
að saman sjaldgæfum fugium
víðs vegar úr veröldinni.
g3 Furstinn eða „gækvarinn" af
Baroda var frægur fyrir auðævi
sín. 1 höll hans er frægt klæði,
alsett perlum, turkísum, rúbínum,
smarögðum og demöntum. Hann
hafði nær 15 milljón krónur í árs-
laun og eignir hans voru metnar
á 2500 milljón krónur.
I einni ferð sinni til London
kynntist hann indverskri prins-
essu, Devi að nafni og varð ofsa-
lega ástfanginn af henni. En ýms
vandkvæði voru á því að þau
gætu náð saman. I fyrsta lagi voru
bæði gift er þau kynntust. Og
hann hafði nokkru áður gefið út
tilskipun og bannað fjölkvæni í