Fálkinn - 07.09.1956, Page 3
FÁLKINN
3
SOPHIA LOREN leikur nú í mynd
suður á Spáni ásamt þeim Cary Grant
og Frank Sinatra. Þetta verður ein
mesta og dýrasta kvikmynd, sem tekin
hefir verið og fjallar um hernám
Napóleons á Spáni og andróðurinn
gegn honum.
DIMITRY SJEPILOV, utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, kom í fyrsta
skipti til Bretlands, er hann sat
Lundúnaráðstefnuna.
„Hiss World 1949“
fyrirfór sér
Fegurðarsamkeppnirnar, sem nú
eru í tísku, hafa ýmsar skuggahliðar.
Þær koma veikgeðja stúlkum úr jafn-
vægi, freista lacirra með lokkandi
glysheimi, sem stundum ríður þeim
að fullu er þær uppgötva að ekki er
allt gull sem glóir. Saga frönsku feg-
urðardrottningarinnar Antoinette Big-
ard er eitt dæmi þessa. Hinu verður
þó ekki neitað, að margar hafa verið
vandanum vaxnar og þolað vegsemd-
ina með jafnaðargeði.
Antoinette Bigard var kjörin „Miss
World" í Florida árið 1949. Og það
var fágætara að eignast það lieiti fyrir
NOURI-EL-SAID, forsætisráðherra
Iraks sat einnig Lundúnaráðstefnuna
og vakti mikla athygli á sér.
6 árum enn í dag. Veröldin virtist
standa lienni opin. Flestar fegurðar-
drottningar vilja komast að kvik-
myndum og það vildi Antoinette líka.
Og ítalski leikstjórinn Vittorio de
Sica réð hana til þess að leika aðal-
hlutverk i mynd, sem átti að segja
ævisögu hennar.
En hún gat ekki leikið. Hafði enga
leikgáfu og var eins og staur frammi
fyrir myndavélinni. Loksins gafst de
Sica upp við liana og sendi hana heim
eftir hálft ár. Þá var hún orðin veikluð
og tærð af vonleysi og andstreymi.
Ilún hafði gert sér vonir um glæsi-
k-ga framtið, en nú varð hún að hverfa
að fyrra starfi sínu. sem tiskusýn-
ingarstúlka i Paris og jafnframt
fleygði hún sér hemjulaust út í glaum-
líf Parisarborgar. Árið 1951 var hún
orðin svo biluð að hún reyndi að
fyrirfara sér með livi að fleygja sér
út um glugga úr hinni glæsilegu íbúð
MAKARIOS erkibiskup, sem situr í
útlegð á Seychelles-eyjum í Indlandi,
hefir verið sakaður um stuðning
við EOKA á Kýpur.
sinni við Champs Elysées. Hún slapp
með fótbrot, og stakk alltaf við eftir
það. Velgerðarmaður hennar, ríkur
iðjuliöldur sem hafði alið önn fyrir
lienni, sló af henni liendinni eftir
þessa sjálfsmorðstilraun, og ekki
batnaði sálarástandið við það.
Samt kom lífsþráin aftur og nú
settist hún að á litlu gistihúsi á vestri
Signubakka og varð fyrirmynd hjá
málurum og myndhöggvurum, en á
hverju kvöldi sást hún á hinúm minni
drykkjustofum. Hún drakk grænt
„pastis“.
Eitt kvöldið heinrsótti hún vinstúlku
sina, Annette Macliy, og var þá mjög
bág. „Lífið er lúalegt," sagði hún „og
ég er að bugsa um að fremja sjálfs-
morð.“
Klukkutíma síðar, kringum kl.
tíu um kvöldið, bað hún Annette um
að skreppa út og kaupa flösku af
Framhald á bls. 14.
DOUGLAS FAIRBANKS JR. hefir ver-
ið nefndur í sambandi við sendiherra-
skipti Bandaríkjamanna á Ítalíu. Þessi
vinsæli kvikmyndaleikari hefir áður
liaft diplomatisk störf með höndum.
GENE KELLY vann „gullbjörninn"
á kvikmyndahátíðinni í Berlín fyrir
leik sinn í myndinni „Boðið upp í
dans“.
Á FLEKA YFIR ATLANTSHAF. — Þetta er flekinn, sem hinir djörfu fransk-kanadísku félagar fóru á yfir
Atlantshafið í sumar. Þeir eru komnir upp að strönd Cornwalls á Englandi og hafa fengið björgunarbát til
þess að draga sig til strandar. Ferðin hafði staðið í 88 sólarhringa, og þeir félagarnir höfðu aðallega nærst
á fiski, sem þeir veiddu og rigningarvatni.