Fálkinn


Fálkinn - 07.09.1956, Síða 3

Fálkinn - 07.09.1956, Síða 3
FÁLKINN 3 SOPHIA LOREN leikur nú í mynd suður á Spáni ásamt þeim Cary Grant og Frank Sinatra. Þetta verður ein mesta og dýrasta kvikmynd, sem tekin hefir verið og fjallar um hernám Napóleons á Spáni og andróðurinn gegn honum. DIMITRY SJEPILOV, utanríkisráð- herra Sovétríkjanna, kom í fyrsta skipti til Bretlands, er hann sat Lundúnaráðstefnuna. „Hiss World 1949“ fyrirfór sér Fegurðarsamkeppnirnar, sem nú eru í tísku, hafa ýmsar skuggahliðar. Þær koma veikgeðja stúlkum úr jafn- vægi, freista lacirra með lokkandi glysheimi, sem stundum ríður þeim að fullu er þær uppgötva að ekki er allt gull sem glóir. Saga frönsku feg- urðardrottningarinnar Antoinette Big- ard er eitt dæmi þessa. Hinu verður þó ekki neitað, að margar hafa verið vandanum vaxnar og þolað vegsemd- ina með jafnaðargeði. Antoinette Bigard var kjörin „Miss World" í Florida árið 1949. Og það var fágætara að eignast það lieiti fyrir NOURI-EL-SAID, forsætisráðherra Iraks sat einnig Lundúnaráðstefnuna og vakti mikla athygli á sér. 6 árum enn í dag. Veröldin virtist standa lienni opin. Flestar fegurðar- drottningar vilja komast að kvik- myndum og það vildi Antoinette líka. Og ítalski leikstjórinn Vittorio de Sica réð hana til þess að leika aðal- hlutverk i mynd, sem átti að segja ævisögu hennar. En hún gat ekki leikið. Hafði enga leikgáfu og var eins og staur frammi fyrir myndavélinni. Loksins gafst de Sica upp við liana og sendi hana heim eftir hálft ár. Þá var hún orðin veikluð og tærð af vonleysi og andstreymi. Ilún hafði gert sér vonir um glæsi- k-ga framtið, en nú varð hún að hverfa að fyrra starfi sínu. sem tiskusýn- ingarstúlka i Paris og jafnframt fleygði hún sér hemjulaust út í glaum- líf Parisarborgar. Árið 1951 var hún orðin svo biluð að hún reyndi að fyrirfara sér með livi að fleygja sér út um glugga úr hinni glæsilegu íbúð MAKARIOS erkibiskup, sem situr í útlegð á Seychelles-eyjum í Indlandi, hefir verið sakaður um stuðning við EOKA á Kýpur. sinni við Champs Elysées. Hún slapp með fótbrot, og stakk alltaf við eftir það. Velgerðarmaður hennar, ríkur iðjuliöldur sem hafði alið önn fyrir lienni, sló af henni liendinni eftir þessa sjálfsmorðstilraun, og ekki batnaði sálarástandið við það. Samt kom lífsþráin aftur og nú settist hún að á litlu gistihúsi á vestri Signubakka og varð fyrirmynd hjá málurum og myndhöggvurum, en á hverju kvöldi sást hún á hinúm minni drykkjustofum. Hún drakk grænt „pastis“. Eitt kvöldið heinrsótti hún vinstúlku sina, Annette Macliy, og var þá mjög bág. „Lífið er lúalegt," sagði hún „og ég er að bugsa um að fremja sjálfs- morð.“ Klukkutíma síðar, kringum kl. tíu um kvöldið, bað hún Annette um að skreppa út og kaupa flösku af Framhald á bls. 14. DOUGLAS FAIRBANKS JR. hefir ver- ið nefndur í sambandi við sendiherra- skipti Bandaríkjamanna á Ítalíu. Þessi vinsæli kvikmyndaleikari hefir áður liaft diplomatisk störf með höndum. GENE KELLY vann „gullbjörninn" á kvikmyndahátíðinni í Berlín fyrir leik sinn í myndinni „Boðið upp í dans“. Á FLEKA YFIR ATLANTSHAF. — Þetta er flekinn, sem hinir djörfu fransk-kanadísku félagar fóru á yfir Atlantshafið í sumar. Þeir eru komnir upp að strönd Cornwalls á Englandi og hafa fengið björgunarbát til þess að draga sig til strandar. Ferðin hafði staðið í 88 sólarhringa, og þeir félagarnir höfðu aðallega nærst á fiski, sem þeir veiddu og rigningarvatni.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.