Fálkinn - 07.09.1956, Síða 5
FÁLKINN
5
Hvar er Rtoul Wallenlierg!
Týndur í nær 11 ár, en liklega lifandi!
Spænski stjórnarerindrekinn Raoul
Wallenberg var handtekinn af Rúss-
um í Budapest í janúar 1945. Hvað
eftir annað liafa komið óglöggar frétt-
ir um að 'hann sitji i fangelsi i Rúss-
landi, en þegar sænska stjórnin hefir
spurst fyrir um hann hjá yfirvöld-
unum í Moskva hefir svarið jafnan
verið það, að Wallenberg liafi látið
lífið í rústum, sem urðu i Budapest
árið 1945.
í liaust hefir fjöldi þýskra fanga
fengið heimfaraleyfi frá Rússlandi.
Náðust samningar loks um þetta, er
Adenauer kanslari fór til Moskva i
haust. Einn þessara heimkomnu fanga
segist liafa hitt sænskan mann, Raoul
Wilborg að nafni, sem sé þar í fang-
elsi. Hafi hann verið dæmdur i 25 ára
fangelsi fyrir njósnir árið 1945.
Enginn Svíi er til í Rússlandi með
þessu nafni, og því hyggja menn, að
þetta hljóti að vera Raoul Wallen-
berg.
Raoul Wallenberg vann ómetanlegt
starf i Ungverjalandi, þegar Þjóðverj-
ar og Ungverjar voru að bíða lægra
hlut þar og Rússar sóttu inn í landið.
Hann bjargaði þúsundum Gyðinga frá
bráðum bana. En svo hvarf hann —-
og enginn veit hvert hann fór.
Siðasti Svíinn sem hitti liann var
Langleth sendiherra. Wallenberg
sagði honum 17. jan. að tveir rúss-
neskir liðsforingjar væri komnir til
að sækja liann. Sama dag féklt sendi-
herrann í Moskvu tilkynningu um,
að rússenska herstjórnin hefði tekið
suðræn aldin, vinvið og ólívur með
gamla laginu, en sökum þess að hár
útflutningstollur er á flestum afurð-
um, fá þeir sáralítið verð fyrir þess-
ar afurðir. Og sama á við húsdýra-
afurðirnar, sem þeir framleiða. Nokk-
ur iðnaður er í Marokko og sumt af
honum er selt dýrum dómum til út-
landa og þykir gersemi, svo sem
ullar- og silkidúkar, leðurvörur
(Maroquin eða saffian) og útflúruð
vopn, sverð og spjót. Ýmsir máhnar
eru i landinu, en hömlur hafa verið
lagðar á að vinna þá. Þjóðin sem hýr
i þessu góða landi er afturhaldssöm
og sérvitur, eins og flestar þær, sem
stjórnað hefir verið af andlegum
höfðingjum öldum sanian. Því að þó
að Frakkar og Spánverjar ráði miklu
um ýms mál, er það þó soldáninn,
sem allur almenningur tekur aðallega
mark á.
Tetuan er höfuðborgin i spánska
Marokko og búa þar tæplega 100 þús-
und manns. Borgin stendur við Mið-
jarða.rhaf i austurjaðri landsins. Hún
er ósvikið sýnishorn austurlanda-
menningarinnar, eins og flestir bæir
i Marokkó, þar er allt með austræn-
u msvip, bæði hús og fólk. Þar koma
bændurnir á torgið með múlasna sína
undir drápsklyfjum — sauðarkrof,
hænsni, kálmeti og ávexti, sem þeir
selja helst milliliðalaust. Og á torgið
kemur líka bæjarbúinn með iðnað
sinn, flúraðar skinnvörur, fallegt
málmsmíði, einkum eggvopn og alls
konar inuni úr tágum. Og kerling-
arnar með silkisjöl og klúta og fal-
lega ofna dúka.
En upp úr þyrpingum hinna lágu
húsa með gluggalitlum veggjum og
flötu þaki, rísa á víð og dreif stórhýsi
í vesturlandastíl. Það eru gistihúsin
eða bækistöðvar erlendra verslunar-
félaga og stóriðjufyrirtækja. Og á
síðustu árum eru nýtisku búnaðarvél-
ar farnar að urga á ökrum bændanna.
En tíminn líður hægt í Marokko, og
liklega verður ekki hætt að kalla það
eftirleguland fyrr en eftir nokkra
mannsaldra. *
Svona líta göturnar og fólkið út í Tetuan. Karlmennirnir með vefjarhött en
kvenfólkið með stóran hettuklút eða stráhatt með börðum, sem nær út fyrir
axlir. Og enginn flýtir sér.
Raoul undir sína umsjá. Hann 3. febr.
var þessi frétt staðfest og rússneski
sendifulltrúinn í Stokkhólmi sagði
móður Wallenbergs það sama. En 8.
mars tilkynnti rússneska útvarpið í
Budapest ,að Gestapo liefði myrt
Wallenberg. Ungverski sendiherrann
í Stokkhólmi staðfesti þetta. Svo
komu ekki fleiri opinberar tilkynn-
ingar. En sögurnar um að Wallen-
berg væri lifandi, þögnuðu ekki. Fyrir
þremur árum sagðist ítalskur stjórn-
arerindreki, sem sat í rússnesku fang-
elsi, hafa haft samband við Wallen-
berg þar. Og sænsku yfirvöldin hafa
ávallt haldið hann vera lifandi. Fyrir
þremur árum særndi Gustaf Adolf
Svíakonungur hann tignarmerki fyrir
afrek hans í Budapest, og var hann
talinn lifandi þá.
Hver er Raoul Wallenberg? Hann
er ættingi liinnar viðkunnu auð-
mannafjölskyldu og fæddur 1912.
Hann fékk ágæta menntun, ferðaðist
víða og varð mikill tungumálamaður.
Stundaði nám í Frakklandi og síðar
í Bandaríkjunum og lauk húsameist-
araprófi þar, árið 1935. Síðustu árin
fyrir stríð starfaði hann í Haifa og
kynntist þá málefnum Gyðinga. Árið
1941 stofnaði liann verslunarfélag í
Stokkhólmi og skipti mikið við Ung-
verja.
í Ungverjlandi bjuggu um 800.000
Gyðingar. Þjóðverjar höfðu látið þá
í friði þangað til í ársbyrjun 1944.
Þá fóru nasistar að ofsækja þá. Sænski
sendiherrann i Budapest var önnum
kafinn við að svara fyrirspurnum frá
Gyðingum ,sem vildu fá dvalarleyfi
í Svíþjóð. Hann þurfti aðstoðarmann,
og i sameiningu með amerísku flótta-
mannanefndinni fékk hann Raoul
Wallenberg.
Þegar Wallenberg kom til Budapest
höfðu nasistar sent um liálfa milljón
Gyðinga í gasklefana. Svíar höfðu
ekki getað hjálpað nema þúsund Gyð-
ingum og nú hóf Wallenberg starfið,
sem hann hefir getið sér orðstír fyrir.
Gata í Budapest hefir verið heitin
eftir honum og líkneski af honum
stendur i Budapest.
Wallenberg fékk sér mörg hundruð
aðstoðarmenn, safnaði Gyðingum
saman í sérstakt hverfi i borginni og
lét þá fá sænsk ríkisborgarabréf. Þeg-
ar eyðublöðin þraut lét liann prenta
önnur ný, óleyfilega, og stimplaði þau
með aragrúa af stimplum svo að nas-
istar skyldu fremur taka mark á þeim.
Hann var óhræddur við Þjóðverja.
Þegar hann fékk ekki það sem hann
vildi jós hann yfir þá skömmunum.
Og ungverskum embættismönnum
mútaði hann. Og bæði skammirnar og
múturnar hrifu.
Þjóðverjum var meinilla við hann,
en þetta var sænskur stjórnarfull-
trúi og þeir vildu ekki móðga Svía.
En þeir gerðu nokkrar tilraunir til
að láta flugumenn myrða hann og
tóku af ,honum bílinn. Þá féklc Wall-
enberg sér reiðlijól. Og hvað eftir
annað tókst honum að bjarga hópum
af föngum. Þegar Rússar nálguðust
Budapest gripu Þjóðverjar til örþrifa-
ráða og drápu Gyðinga i hrönnum.
En samt tókst Wallenberg að bjarga
250.000 manns. í óðagotinu náði hann
í þýska einkennisbúninga og herbíla
handa þeim og kom þeim þannig
undan. *
DrekkiS^
, COLA
Spur\ DJty/oc
Vitið þér...?
að blendingur úr beryllium og
kopar er harðari en stál?
í blendingnum er aðeins 2% af
beryllium og því 98% af kopar.
Blendlngufinn er einkum notaður í
verkfæri, sem höfð eru til að vinna
með þar sem sprengihætta er mikil,
því að aldrei verða neistar þó að
tækin séu notuð á járn og stál.
að sumir jakarnir, sem eru á reki
í Norður-Atlantshafi eru ef til
vill milljón ára gamlir?
Vísindamenn hafa sem sé sannað,
að súrefnið í loftbólunum, sem éru í
jökunum sé miklu minna en súrefnið
i andrúmsloftinu, og draga þá ályktun
af þessu að jakarnir hafi myndast á
jarðöld er var miklu súrefnisminni
en nú ,eða fyrir um milljón árum.
Ályktunin er hæpin, og ráði liver sem
yill hvort liann trúir hcnni.
að heimsframleiðsla matvæla vex
hraðar en íbúatala jarðarinnar?
Sé miðað við töluna 100, sem meðal-
frandeiðslu áranna 1935—39 þá hefir
hún stígið upp í 119 núna, en á sama
tima heifir ibúafjöldinn stigið úr 100
í 117. — En þar með er ekki sagt, að
nóg sé til af mat handa öllu fólki á
jörðinni. Það vantar enn mikið á það.