Fálkinn - 07.09.1956, Qupperneq 15
FÁLKINN
15
VilduS þér FITNA um 10, 20,
30 pund eða meira? Loks er
leiðin fundin. Skrifið eftir
ókeypis upplýsingum (með 2
shillinga breskri póstávísun)
um uppbyggingu magurs
líkama.
Activities, Kingsway
(T 827) Delhi-9, India.
STÆKKIÐ
um 2—6 þumlunga með hinni
nýju aðferð okkar, sem hæfir
bæði körlum og konum.
Ábyrgjumst árangur eða end-
urgreiðum afgjaldið eins og
það leggur sig. Góðfúslega
sendið 30 shillinga póst-
banka- eða ferðaávísun, sem
greiða má með á Indlandi, i
Englandi eða Ameríku.
Activities (Dept. 927)
Kingsway, Delhi-9, India.
— Kennarinn spurði mig í dag hvort
ég ætti nokkra yngri bræður, og ég
sagði honum þá að ég væri einbirni.
— Og hvað sagði hann við því?
— Hann sagði bara guði sé lof!
Sjómannsunnustan vældi og kvein-
aði: — Ég er viss um að þú ert með
stelpu í liverri einustu höfn!
Sjómaðurinn reyndi að liugga hana
og sannfæra um að þetta væri eklú
svo: — Ég get sannað þér að ég hefi
ekki verið í nærri öllum höfnum
ennþá.
Unga stúlkan fór til spákonu, sem
las í lófa hennar og segir: — Ég sé
að bér eruð ástfangin af ungum, háum,
dökkhærðum manni, sem vantar eina
framtönn.
— Alveg rétt.
— Hann hefir beðið yður að giftast
sér, liélt spákonan áfram.
— Það er iíka laukrétt.
— Hann heitir Pétur Hansson.
— Þetta er dæmalaust! Hvernig
getið þér lesið allt þetta úr lófanum
á mér?
— Ég ias það nú ekki úr lófanum
heldur úr hringnum, sem þér eruð
með. Ég sendi honum Pétri hann
fyrir nokkrum vikum.
Lina úr Öífusinu hafði ráðið sig í
vist hjá nýgiftum heildsala. Fyrsta
sunnudagsmorguninn átti hún að færa
hjónunum kaffið í rúmið, en athugaði
ekki að réttara væri að drepa á dyrn-
ar fyrst, og ganaði inn i herbergið
á nijög óþægilegum tima. Heildsalinn
varð fokvondur og rak liana út og
sagði að iiún mætti aldrei koma inn
án þess að drepa á dyr. Eftir hálf-
tíma kom Lína aftur, drap á dyrnar
og segir: — Nú hugsa ég að yður veiti
ekki af hressingunni!
ísinn var ótraustur á firðinum ]ieg-
ar bóndinn norðanfjarðar sendi kon-
una sina í kaupstaðinn til að versla.
Hún fór með pöntunárseðil yfir vör-
urnar, sem hún átti að kaupa, en neðst
á seðilinn hafði bóndinn skrifað:
„Peningana skal ég senda seinna,
því að ég þori ekki að treysta ísnum
núna.“
Gæðanna vegna
veljið yður
Al-Stál Reiðhjólið
RALEIGH
EINKAUMBOÐ
5AMBAND fSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
REYKJAVÍK
Trúlofunarhringir
Ijósir, rauðir. — Steinhringar fyrir dömur og herra. —
Hálsmen, armbönd, gull og silfur. — Borðbúnaður, silfur,
plett. — Úr fyrir dömur og herra, gull og stál.
Tegundir: Marvin, Damas, Tissot, Certina.
sm)
Laugavegi 50. — Reykjavík.
ÁSKORUN!
Þvoið með einhverju af
gömlu þvottaefnunum.
Reynið síðan Omo, bláa
þvottaefnið, sem raun-
verulega gerir hvítt.
Já, rcyuiö þau öll og uiður-
staða yða r iiiiin ferða^
OMO SKILAR YCUR
HEIMSINS HVÍmSTA
ÞVOTTI!
Áskorun til allra kvenna i landinu. Gerið tilraunir
með hin ýmsu þvottaefni sem á markaðinum eru og
takið vel eftir árangrinum. Þvoið síðan með Omo,
hinu ilmandi bláa þvottadufti. Og skiljið ekkert eftir,
tínið til óhreinustu fötin, sem hægt er að finna, og
dembið þeim í hina glitrandi froðu Omo-þvotta-
efnisins.
Þegar komið er að því að strauja þvottinn, þá gerið
samanburð, og þá munuð þér reiðubúin að fallast á,
að Omo gerir hvitara en þér hafið nokkurn tima áður
séð. Hvort heldur sem Omo fæst við venjuleg óhrein-
indi eða bletti, þá er eitt víst, að það skilar þér hvít-
asta þvotti í heimi.
X-OMO 8/a-1725-50
— Slritvinna liefir aldrei orðið
neinum hættuleg, segir faðirinn.
— En ég kýs að lifa hættulega,
svarar sonurinn.
— Svo að hann slapp! segir lög-
reglustjórinn. — Höfðuð þið vörð við
allar útgöngudyr, eins og ég sagði
ykkur?
— Já, svaraði lögregluþjónninn. —
En mannskrattinn hlýtur að liafa
sloppið út uni einhverjar inngöngu-
dyrnar.