Fálkinn


Fálkinn - 09.11.1956, Blaðsíða 1

Fálkinn - 09.11.1956, Blaðsíða 1
»TEHÚS ÁGÚSTMÁNANS« Bandaríski leikritahöfundurinn John Patrick hefir hlotiö mikið lof fyrir leikritið „Tehús Ágústmánans“, sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu um þessar mundir. Bregður hann á góðlátlegan hátt upp mynd af lífi hinna innfœddu á japönsku eynni Okinawa, sem bandariski her- inn tók herskildi undir lok siðustu styrjáldar, og ýmsum vandamálum í samskiptum hersins við hina innfœddu, Sérstaklega gerir hann sér far um að lýsa gildi tehússins fyrir félags- og menningarlif fólksins og varpa nýju Ijósi á japönsku geishuna, sem til þessa hefir ekki fengið að njóta sannmælis á Vesturlöndum. — Myndin hér að ofan er af tehúsinu i Tobiki-þorpi, sem verður uppistaða leikntsins. Fremst á myndinni sjást túlkurinn Sakini (Lárus Pálsson), amerisku liðsforingjarnir Fisby og McLean (Rúrik Haraldsson og Gestur Pálsson), sem hafa tíleinkað sér viðliorf hinna innfœddu á vissan hátt, og „Lótusblómið“ (Margrét Guðmundsdóttir) — geishan, sem ríkir i tehúsinu.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.