Fálkinn - 23.11.1956, Síða 7
FÁLKINN
7
UNGVERJALANDI “«««■■**
^ LYFTIIÍ 1500 KG.
Það hefir vakið hrylling um allan hinn siðmenntaða heim. hve óblíðum örlögum hin ungverska þjóð hefir
orðið að sæta. Flestir höfðu talið, að slíkir atburðir gætu ekki gerst í Evrópu nú orðið, heldur væri slíkt of-
beldi, sem stjórn Kadars og rússneski herinn sýna, einkenni siðlausra miðaldaþjóða. Æska Ungverjalands hef-
ir orðið mjög hart úti í þessum átökum. Myndin sýnir ungar frelsishetjur á verði á götu úti.
Eyðilögð hús og sundurskotna stríðsvagna gat að líta um gjörvalla Budapest, þegar sigurgleðin eftir fyrsta
þátt uppreisnarinnar breyttist skyndilega í kvíða og hörmungar, er rússieski herinn umkringdi borgina og
lagði til atlögu við íbúa hennar. Mikil spjöll hafa verið gerð á hinni fögru borg síðan.
þeim kringum mig. Ég sá þá ekki
fyrr en ég var kominn upp á miðja
skipssíðuna.
Við borðstokkinn var gripið í axl-
irnar á mér. Fullt af andlitum kring-
um mig. Indversk og hvít andlit. Og
ullarvoðum var vafið um mig og mér
gefið vatn að drekka.
Ég lá á bakið og starði upp. Yfir-
maður stóð á efra þilfarinu og leit
á klukkuna. Seinna var mér sagt að
hún hefði verið 20 minútur yfir tvö,
að morgni 27. mars. — Þá voru liðnir
réttir 32 sólarhringar síðan við Fred
Ericsson undum okkur fyrir borð af
„Skaubryn“. *
Gesturinn kallaði á þjóninn og
spurði: — Hvor af súpunum á mat-
seðlinum er þetta, sem ég hefi fcngið
— tómatsúpa eða baunir? Mér finnst
sápubragð af henni.
— Nú, þá eru það baunir, sagði
þjónninn. — Það er nefnilega stein-
olíubragð að tómatsúpunni.
ALLT er mest hjá Ameríkumönnum.
Og vitanlega eiga þeir sterkasta mann
i heimi. Hann heitir Paul Anderson
og er 23 ára og frá smábæ i Georgia,
sem heitir Toccoa. Hann lyftir liest-
um og peningaskápum jafn auðveld-
lega og við tökum upp rúsinukassa.
Og þó að margra tonna vörubíll sé
á herðunum á honum kemur ekki
svitadropi fram á enninu á honum.
Aldrei hafa farið sögur af krafta-
mönnum. sem komast í námunda við
Paul Anderson. Fyrir 50 árum var
jötunninn Cyr allra manna sterkastur.
Og fyrir 30—40 árum fékk Sigmund
Breitpart fimmtiu þúsund dollara á
viku fyrir lyftingar. Cyr vóg 150 kg.
og át ferlega mikið. Hann setti planka
á bringuna á sér og lét 20 manns
setjast á hann. Og svo lyfti hann öllu
saman. Arthur Saxon var iíka frægur
kraftamaður. Hann æfði sig aldrei
en drakk hundrað flöskur af öli á dag.
Sandow, sem kraftæfingaböndin eru
kennd við, vóg aðeins 85 kg. og var
frábærlega fallega vaxinn. Það var
sagt að hann hefði grætt sjö milljón
krónur, fyrir að standa cins og
líkneski á leiksviðinu. Ziegfield
Follies réð liann til sín, og Sandow
varð til þess að endurvekja áhuga
manna á fögrum líkamsskapnaði. Iin
Paul Anderson getur ekki talist fal-
lega vaxinn. Hann er fitukhunpnr,
vegur 170 kg. og er 5 fet og 9 þuml-
ungar.
Þessi Samson vorra daga vakti fyrst
athygli í lyftingasamkeppni árið
1952. Hann hafði æft sig aðeins þrjá
daga fyrir mótið og hratt öllum fyrri
metum með því að lyfta 400 kg. Hann
gerði djúpa hnébeygingu með 350 kg.
og það var 30 kg. yfir fyrra metinu.
Þetta þóttu tíðindi og nú fékk hann
lilboð úr öllum áttum.
Anderson fór í opinbera kynningar-
för til ýmissa landa, m. a. til Rúss-
lands. Þetta var ein fyrsta ferðin af
slíku tagi frá vesturlöndum til Rúss-
lands og hann varð afar vinsæll þar.
Paul Anderson er heimakært barn
og býr hjá pabba og mömmu í Tugalo-
götu 912 i Toccoa, en þar fæddist hann,
17. okt. 1932. Foreldrar lians eru eiris
og fólk flest í vexti. Undir eins og
móðir hans tók eftir hve sterkur Paul
var, fór hún að hvetja hann til að
æfa lyftingar, og hefir verið þjálfari
hans síðan. Faðir hans smíðaði lyfti-
stengurnar og boltana á þær. Og Paul
fékk sérstakt herbergi til að æfa sig i.
Hann fer á fætur kl. 9 á morgnana
og borðar fjórar dósir af „gelatine“
og drekkur þrjú glös af appelsínu-
safa og hálfpott af mjölk. Svo æfir
hann sig i þrjá tima og drekkur tvær
hálflöskur af mjólk á meðan. Klukk-
an sex borðar hann miðdegisverð og
síðar kvöldsins fær hánn smurt brauð.
Hann fer aldrei út að skemmta sér.
— Það fara ýmsar sögur af þvi að
hann borði mikið, m. a. sú, að hann
hafi orðið að fara úr heimavistar-
skóla vegna þess að hann var að
svelta i hel þar.
Það var svertingi frá Brooklyn sem
hafði heimsmet í lyftingum þangað til
Paul Anderson kom til sögunnar. Nú
lyftir hann 1500 kg. frá jörðu, með
því að nota leðurbelti. Hann gerir
hnébeygingu með 1000 kg. á bakinu
og segist niunu gera betur.
Framhald á bls. 14.